Morgunblaðið - 10.12.1987, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
7
Sýnishornafok^ffiafötum
Skyrta m/bindi kr. ^ jgo,-
Buxur
D \rr 1 990,-
Itakurjakki kr. 2.990,-
llíS KARNABÆR
f * barnadeild - Austurstræti 22
sem ekki gengu út
síðasta laugardag, leggjast við
1. vinninginn núna.
Morgunblaðið/RAX
Arni Johnsen ásamt Matthiasi Bjarnasyni, alþingismanni, einum við-
mælenda sinna.
nFleiri kvistir“ eftir
Áma Johnsen komin út
ÚT ER komin bókin „Fleiri kvist-
ir“ eftir Árna Johnsen, sem hefur
að geyma viðtalsþætti við fólk
úr ýmsum áttum. Það er bókaút-
gáfan Örn og Örlygur sem gefur
bókina út, en hún gaf einnig út
fyrri bók Árna með samtalsþátt-
um, „Kvistir í lífstrénu", árið
1982.
Sum viðtalanna í bókinni hafa
áður birst í Morgunblaðinu en önnur
eru ný af nálinni, t.d. viðtöl við
Matthías Bjamason, fyrrverandi ráð-
herra, og Veturliða Gunnarsson,
listmálara. Þá hafa sum viðtölin ver-
ið endursamin og öðrum breytt
verulega, t.d. við Ása í Bæ og Binna
í Gröf.
Um 120 ljósmyndir eru í bókinni,
og eru flestar þeirra eftir Ragnar
Axelsson, Sigurgeir Jónasson, og
Árna sjálfan.
í fréttatilkynningu frá Emi og
Örlygi segir m.a.: „Ámi Johnsen
hefiir einstakt lag á því að laða fram
í fólki persónuleika þess og skila
efninu þannig að viðmælandinn nýt-
ur sín til fulls".
Þeir sem Ámi tekur tali í bókinni
em: Veturliði Gunnarsson, Aðalheið-
ur Helgadóttir í Laugaseli, Jón
Vigfússon í Holti, Ólafur og Sigríður
í Forsæludal, Þorsteinn Jónsson,
flugmaður, Ási í Bæ, Gunnar Gunn-
arsson, skáld, Ríkarður Jónsson,
myndhöggvari, Lási kokkur, Dr.
Kristján Eldjám, Elías á Sveinseyri
í Dýrafirði, Matthías Bjamason, al-
þingismaður, Þóra Borg, leikkona,
Guðlaugur Friðþórsson, Grænlensk
hjörtu, Jón Berg Halldórsson, Andrés
Olsen, Páll í Þórlaugargerði, Agnar
Koefod-Hansen, Jón Pálsson, dýra-
læknir, Emil Thomsen í Færeyjum,
aldís á Stokkahlöðum, Baddi í Vog-
um, Bjöm í Bæ, og Binni í Gröf.
„Fleiri kvistir“ eru settir og prent-
aðir í prentstofu G. Benediktssonar,
en bundin hjá Amarfelli hf. Kápu
hannaði Ámi Jörgensen.
Amnesty International:
Hátíðardagskrá og
listmunauppboð
í TILEFNI af 10. desember, sem
er alþjóðlegur mannréttindadag-
ur Sameinuðu þjóðanna, munu
samtökin Amnesty International
gangast fyrir hátíðardagskrá og
listmunauppboði á Hótel Borg.
Dagskráin hefst kl. 20.30 og verð-
ur sem hér segir:
Formaður íslandsdeildar Amnesty
Intemational, Ævar Kjartansson,
setur dagskrána. Thor Vilhjálmsson,
formaður Pen klúbbins, flytur ávarp.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir, píanóleik-
ari, og Sigurður Bragason, barítón-
söngvari, flytja valin lög. Gallerí Borg
annast listmunauppboð. Uppboðs-
haldari verður Úlfar Þormóðsson.
Bubbi Morthens flytur lög af nýju
plötunni sinni „Dögun".
Á listmunauppboðinu verður að
finna verk bestu listamanna þjóðar-
innar, sem með framlagi sínu styðja
starfsemi íslandsdeilarinnar af höfð-
ingsskap. Sama gildir um þá lista-
menn, sem koma fram. Þá heldur
Gallerí Borg uppboðið samtökunum
að kostnaðarlausu.
Almenningi er bent á að listaverk-
in verða til sýnis í Gallerí Borg 10.
desember.