Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Messías á hljómleikum,
hljómplötum og geisladiskum
30 ára starfsafmælis Pólýfónkórsins minnst með jólatónleikum í Hallgrímskirkj u
Pólýfónkórinn á tónleikum i HallgTÍmskirkju.
og 83033
AUSTURBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1-38
Skipholt 40-50
Stigahlíð 37-97
VESTURBÆR
Fomaströnd
Bauganes
Nýlendugata
Einarsnes
Látraströnd
SELTJNES
Hrólfsskálavör
UTHVERFI
Kirkjuteigur
MIÐBÆR
Grettisgata 37-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Barónsstígur 4-33 o.fl.
Laugavegur 32-80 o.fl.
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning
frá Pólýfónkórnum:
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Pólýfónkómum. Messías
Hándels hljómaði í fyrsta sinn í
Hallgrímskirkju, nývígðri, í des-
ember í fyrra í flutningi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, frægra
einsöngvara og Pólýfónkórsins
undir stjóm Ingólfs Guðbrands-
sonar við fádæma hrifningu
áheyrenda.
Fyrstu íslensku geisla-
diskarnir með klass-
ískri tónlist
Messías var hljóðritaður á
þessum hljómleikum og er nú
kominn út í heild á fyrstu
klassísku geisladiskunum, sem
gefnir em út með íslenskum flytj-
endum. Útgáfan er í tilefni 30
ára starfs Pólýfónkórsins, fram-
leidd hjá fyrirtækinu Disctronics
í Bretlandi. Einsöngvarar vom
Maureen Brathwaite, sópran,
Sigríður Ella Magnúsdóttir, altó,
Jón Þórsteinsson og Ian
Partridge, tenór og Peter Cole-
man-Wright, bassi.
Pólýfónkórinn gaf út hljóðritun
af Messíasi í styttri gerð árið
1977, en sú útgáfa er uppseld.
Nýja útgáfan á geisladiskum tek-
ur hinni langt fram að tóngæðum.
Hún er gerð á kostnað og ábyrgð
Pólýfónkórsins og hefði verið
óframkvæmanleg nema fyrir vel-
vild flytjenda, sem gáfu flutnings-
rétt sinn. Upplag er lítið, aðeins
1000 sett og þrátt fyrir mikinn
útgáfukostnað, er útsöluverði
stillt í hóf.
Þessir fyrstu geisladiskar kórs-
ins verða safngripir er fram líða
tímar, og em því tilvalin gjöf.
Jafnhliða þessari útgáfu koma
valdir kaflar verksins út á einni
stereo-hljómplötu handa þeim,
sem enn eiga ekki geislaspilara.
Messías ætti að vera til í plötu-
safni hvers heimilis.
Messías fluttur í Hall-
grímskirkju laugar-
daginn 12. desember
Messías er vinsælasta jólatón-
list allra tíma. í vestrænum
löndum er Messías fluttur í flest-
um borgum í desembermánuði og
þykir ómissandi þáttur jólanna.
Fá verk hafa haft jafnsterk áhrif
vegna fegurðar sinnar og þar með
mótað góðan tónlistarsmekk.
Messías er endalaus uppspretta
lagrænnar fegurðar og öllum auð-
skilinn.
Það telst til tíðinda að þrír
ungir einsöngvarar, íslenskir,
þreyta nú fmmraun sína í flutn-
ingi stórverks með Pólýfónkóm-
um. Þeir em: Inga Backman,
sópran, Sigríður Elliðadóttir, altó
og Gunnar Guðbjömsson, tenór.
Allt em þetta ferskar raddir, sem
miklar vonir era bundnar við og
vekja forvitni hlustenda. Eina
tækifærið til að hlýða á þau í
þessum hlutverkum verður á
laugardaginn kemur, því ekki
verður unnt að endurtaka hljóm-
leikana. Hljómsveitina skipa
hljóðfæraleikarar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands, konsertmeist-
ari er Simon Kúran. Aðgöngumið-
ar em seldir hjá Sævari Karli í
Bankastræti og Kringlunni og hjá
Útsýn.
Bókin „í ljósi
líðandi stundar“
30 ára starf Pólýfónkórsins er
rakið í máli og myndum í 120
blaðsíðna bók, sem ber þennan
titil. Þar senda 18 landsþekktir
greinarhöfundar kómum kveðju
sína eða umsögn um starf hans.
Jón Ásgeirsson skrifar stórmerka
grein um íslensk söngmál. í um-
fjöllun 18 íslenskra gagmýnenda,
um flutning kórsins á fjölda kór-
verka í 30 ár, kennir margra
grasa og er fróðlegt til glöggvun-
ar mörgum ámm síðar. Auk þess
er vitnað í umsagnir fjölda er-
lendra gagnrýnenda frá hljóm-
leikaferðum kórsins. Þá em
ferðasögubrot og fjöldi mynda,
þar af 36 litmyndir. Birtar em
myndir a 45 einsöngvuram með
kómum á þessu tímabili, íslensk-
um og erlendum, auk 14 undir-
leikara og aðstoðarfólks við
æfíngar. í bókarlok er skrá um
öll verk, sem Pólýfónkórinn hefur
flutt frá upphafí, um 200 talsins,
eftir 70 höfunda og loks nafna-
skrá allra þeirra, sem sungið hafa
á hljómleikum kórsins frá upp-
hafí, alls á níunda hundrað
manns.
Bókin geymir margar sögur
um Ingólf Guðbrandsson og Pólý-
fónkórinn og em sum ummælin
býsna rætin. Bókin er falleg og
vönduð að allri gerð og merk
heimild. Lesandinn verður
spenntur, og hans er að svara
spumingunni í bókarlok, hver til-
gangur Ingólfs var; átti hann
erindi við íslenskt þjóðfélag, hver
em laun hans, og hefur hann
„keypt sér sess með listamönn-
um“, eins og einn gagnrýnandi
komst að orði?
VERSLU N ARH ÚSNÆÐI
Til afhendingar strax
Til sölu 200-400 fm eftir samkomulagi á besta stað við
Grensásveg. Hentar vel fyrir hvers kyns verslunar- eða
veitingarekstur. Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Vesturbær
- 3ja herb. m. bílskúr
Vorum að fá í sölu nýlega og vandaða 3ja herb. íb. í
nýlegu húsi í Vesturbænum. Innb. bílsk. á jarðhæð.
Ákv. sala. Laus nú þegar.
Ingólfsstræti 8
Sími 19540 og 19191
Magnús Einarsson.
Heimasími 77789 (Eggert).
EIGNA8ALAM
REYKJAVIK
Dugguvogur
Vorum að fá til sölu iðnaöar- og verslunarhúsnæði 2 x 140 fm
á tveimur hæðum. Góðar innkeyrsludyr auk rishæðar sem
hefur möguleika á stækkun. Hagstæð lán. Góðir greiösluskil-
málar. Upplýsingar á skrifsstofunni.
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson hs: 77410.
Valur J. Ólafsson hs: 73869.
T^öminog
fuglalífið
FUGLALÍFIÐ á Tjörmnni og
Tjörnin er á dagskrá á fræðslu-
fundi Fuglaverndarfélags
íslands sem haldinn verður í
kvöld, í Norræna húsinu og er
sem aðrir fræðslufundir félags-
ins öllum opinn. Frummælendur
verða tveir, þeir Ólafur Nielsen
og Jóhann Oli Hilmarsson.
Þetta er annar fræðslufundur
félagsins á vetrinum. Hin fyrri var
vel sóttur, en þá fjallaði Kristinn
Skarphéðinsson líffræðingur um
Þórshanann, sem er orðinn sjald-
séður fugl, og rannsóknir á
útbreiðslu hans hérlendis.