Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
13
ANDINN LÍFGAR..
Békmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Emil Björnsson: Litríkt fólk.
Æviminningar.
Útg. Örn og Örlygur hf.1987.
Hér heldur séra Emil Björnsson
áfram sögu sinni, en þar var kom-
ið, að hann hélt að heiman, óharðn-
aður unglingurinn á sautjánda ári.
Fuglar íslands.
Hjálmar R. Bárðarson.
Höfundur gaf út.
Reykjavík 1986, 336 bls.
Undanfarin misseri hafa verið
íslenskum náttúruunnendum gjöful
hvað bókakost snertir. Hvert ritið á
fætur öðru um náttúru íslands hefur
rekið á flörumar. Er tími til kominn
að gera grein fyrir einum hinum
mesta hvalrekanum. Eru það Euglar
íslands eftir Hjálmar R. Bárðarson.
Hjálmar er löngu víðkunnur af ljós-
myndum sínum, og hefur hann áður
gefíð út sýnishom af myndasafni
sínu, m.a. í tveimur stórum bókum.
Þeim er skoðað hafa ís og eld og
ísland, Svip lands og þjóðar, dylst
ekki að höfundur leggur sál sína og
metnað í þessar bækur. Fuglar ís-
lands er ekki síður full metnaðar en
fyrri bækumar. Bókin er 336 bls. í
stóm broti. í henni eru um 500 ljós-
myndir, teikningar og kort, og þar
af eru tæplega 400 litmyndir. Mikið
lesmál er í bókinni.
Fyrsti kafli bókarinnar, Heimur
manna og fugla, er nk. inngangur
og fjallar um umgengni manna við
fugla og ýmislegt í atferli fuglanna.
Annar kaflinn ber nafnið Síðsti geir-
fuglinn. Þar er gerð grein fyrir
útrýmingu geirfuglsins. Er sú saga
einkar fróðleg og umhugsunarverð.
í þriðja kaflanum er sagt frá helstu
einkenrium íslensku fuglafánunnar
og getið helstu staða á landinu sem
áhugaverðir eru til fuglaskoðunar.
í næstu ellefu köflum eru ljós-
myndir af öllum íslenskum varp-
fuglum auk ýmissa flækingsfugla
og fargesta, en ljósmyndimar eru,
eins og gefur að skilja, aðaluppistaða
bókarinnar. Fuglunum er að mestu
skipt milli kafla eftir því í hvers
konar kjörlendi þeir búa. Dæmi um
þessa kafla eru: Strandfuglar, bjarg-
fuglar; eyjar og sker; og hálendið.
Þessi kaflaskipting hygg ég að sé
góð, því að hún auðveldar lesandan-
um að gera sér grein fyrir hvar
fuglanna er von. Höfundur hefur
kosið að helga öndum og ránfuglum
sérstaka kafla, og sérstakur kafli
er um gesti og stopula varpfugla.
Er síðastnefndi kaflinn nokkuð sund-
urleitur, því að þar er blandað saman
fuglum sem fara um ísland vor og
haust — sk. fargestum — og flæk-
ingsfuglum, sumum mjög sjaldgæf-
um, öðrum algengum.1
Hjálmar hefur lagt alúð við að
ná góðum ljósmyndum af öllum fugl-
um, sem eitthvað kveður að hér á
landi, þ. á. m. öllum varpfuglum.
Nokkuð kemur því á óvart að ekki
skuli vera myndir af Blesgæs og
bjartmáfi. Á móti kemur að í bók-
inni er mikil myndaröð af keldusvíni,
en þar skýtur Hjálmar flestum öðr-
um fuglaskoðurum ref fyrir rass, því
að keldusvínið er eitt vandfundnasta
kvikindi á landinu.
Fuglar eru líklega með erfíðasta
myndefni sem ljósmyndari getur
fengist við. Fyrst er að leysa tækni-
leg vandamál við að komast sem
næst fuglinum. Lýsir Hjálmar þeirri
glímu í sérstökum kafla. Val mynda
til birtingar er ekki síður vandaverk.
Ekki er nóg að birta myndir sem
sýna fuglinn sem best, þannig að
helstu sérkenni hans sjáist. Slíkar
myndir er góðar til síns brúks, en
eru álíka dauðar og uppstoppaður
Mér þótti höfundur komast vel að
orði í formálsorðum þessarar bók-
ar, er hann lýsir ævisögum; að þær
verði aldrei hrein sagnfræði. „Uppi-
staðan er afstæð sannfræði," segir
hann. Enda er gildi endurminninga-
bóka af þessu tagi ekki endilega,
að þar sé allt samkvæmt bókstafn-
um. Kúnstin er að hafa eitthvað sem
veigur er í fram að færa og geta
síðan glætt það lífi.
fugl á safni. Því þurfa einnig að
vera myndir sem vekja einhvem sér-
stakan hugblæ, annað hvort vegna
stellinga fuglsins eða vegna þess
hvemig hann nýtur sín í landslag-
inu. Myndimar mega einnig sýna
fuglinn sem óijúfanlegan hluta af
náttúrunni, t.d. með því að lýsa
fæðuöflun hans eða kjörlendi.
Hjálmar ratar í þessu efni hinn
gullna meðalveg, og fær þama hver
eitthvað við sitt hæfi. Myndir eru
einnig af eggjum, hreiðrum og ung-
um flestra tegundanna.
Hjálmar er ekki aðeins mynda-
smiður, textahöfundur og útgefandi,
heldur hefur hann einnig annast
útlitshönnun bókarinnar. Er það
ærið verk og til sóma í alla staði.
Bókin er fáanleg á ensku, þýsku,
dönsku og frönsku, og er það mikill
fengur fyrir ferðamenn, því að skort-
ur hefur verið á ritum á erlendum
tungum um íslenska fugla.
Kaflinn um vem piltsins á Korp-
úlfsstöðum um og upp úr 1930, var
ágætis lesning, en á honum 'nefst
bókin. Það er ég hreint viss um,
að margir em þeir, sem gera sér
enga grein fyrir þeim merkilega og
vélvædda, mætti ég segja framúr-
stefnu búskap sem þar var stundað-
ur-.
Á þessum síðustu tímum náms-
leiða, þegar allir telja svo sjálfsagt
Hjálmar R. Bárðarson
Aftast í bókinni er ritskrá og sýn-
ir hún að höfundur hefur víða aflað
fanga í bók sína.
í bókarlok era minningarorð um
Finn Guðmundsson, en bókin er til-
einkuð minningu hans. Er það
veglegur minnisvarði.
Emil Björnsson
að gcta notið menntunar, að fjöld-
inn allur víkur sér undan henni, er
líka athyglisvert að lesa um
menntaþörf unga drengsins og hvað
hann leggur hart að sér í þessu
skyni. Það hafa fleiri skrifað í þess-
um dúr, en mér finnst alltaf
lærdómsríkt aflestrar svo fremi að
því sé til skila komið á læsilegan
hátt.
En það er komið langtum víðar
við, lýsing höfundar á hinuiri nafn-
togaða skólamanni og þjóðsagna-
persónu Sigurði Skólameistara, er
hnýsileg og það sama má segja um
vem hans í guðfræðideild og vanga-
veltur hans um nýguðfræðina
versus nýrétttrúnaðinum. Eða
öfugt.
Séra Emil kom einnig til starfa
á útvarpinu, þegar það var enn á
uriglingsámm og vann þar í frétta-
deild lengi. Því hefði mátt gera
ítarlegri skil, jafnvel hefði ekki sak-
að að hann væri ögn opinskárri.
Og þegar betur er að gáð má lesa
ýmislegt milli línanna. Farið er
býsna fímlega í frásögnum um
smákóngana sem vom á útvarpinu
þá. í þessum kafla segir og frá
því, er Bjöm Franzson smíðaði ógn-
vænlegasta orð tungunnar, eins og
séra Emil segir réttilega. Kjam-
orka. Vissum við það eða hvað? Það
er gott dæmi, þótt kannski sé það
lítið, um að í mörgu má vemlega
græða á að lesa þessa bók. Þó
fannst mér kaflanum Óminnishegri
ofaukið. Þar er sagt frá mannfagn-
aði, sem varð eftir lýsingum býsna
skrautlegur. En þar er eiginlega
hvorki sagt a né b, hvað þá að
maður skilji annað en þama hafí
menn orðið fordmkknir og ferlegir.
Mér fannst þessi kafli ekki í takt
við bókina almennt.
Að mínu viti hefði verið fengur
að því að fá meira að heyra um
aðdraganda stofnunar Óháða safn-
aðarins. Ég veit ekki, hvort höfund-
ur hyggst koma að því í næstu
bók. Eða hvort honum finnst það
mál of nærri í tíma til að geta
rætt það hispurslaust. En stundum
verður að taka áhættuna.
Séra Emil hefur verið umdeildur
maður, bæði í prestsstarfí og starfs-
maður útvarpsins. En nú situr hann
á þessum svokallaða friðarstóli og
horfír yfír farinn veg. Og hann er
glaður og þakklátur forsjóninni fyr-
ir það sem hann hefur lifað. Þó
hefíir stundum verið þungt undir
fæti. Það sem úrslitum ræður með
þessa bók er að höfundur er óum-
deilanleg ritleikni höfundar og hann
á auðvelt með að koma frá sér
hugsunum sínum um atburði og
fólk. Og því verður þetta læsileg
bók og eftirminnileg. Maður les
hana sér til ánægju og sem betur
fer, maður er líka fróðari eftir.
Höfundur er líffræðingur við
Líffræðistofnun háskóians.
!
^ p g K Verð P og K Verð G
□ □ JÓLAGESTIR. 699/m: 1.199/L39T
Glæsileg jólaplata. Björgvin Halldórsson býður til tónlistarveislu á
jólum með fjölda annarra þekktra listamanna.
Plötuklúbbur Skífunnar hefur nú þegar fengið prýðilegar viðtökur almennings.
Nú ætlum við að bjóða ykkur góðar plötur til jóla á góðu verði.
p Verð P og K Verð G
□ □ . SMELLIR 699/899,
Ný og fjölbreytt safnplata með íslensku og erlendu efni.
P Qj. K
□ □□ KVÖLD VIEj LÆKINN. 699/899; 1.199/láW
Kristinn Sigmundsson, Halla Margrét, Jóhann Helgason.
Lög Jóhanns Helgasonar við lög ýmissa góðskálda. Kristinn og
Halla Margrét koma hér til liðs við Jóhann. - Þetta er öndvegisplata.
P G K
□ □ □ STRAX. FACE THE FACTS 699/89<
Ný plata með réttri Stuðmennsku. Tónlist í sérflokki.
1.199/L399"
P G K
□ □ □ BERGÞÓRA
ARNADÓTTIR. í SEINNA LAGI.
Bergþóra flytur eigin lög með glæsibrag. Plata
699/899T \.99\!LÆ<f
í góðu lagi.
P K
□ □ GEIRISÆM 699/899T 1.199/L399-
Forsöngvari Pax Vobis með sína fyrstu sólóplötu.
P G K
□ □□GAUI 699/8997 1.199/L399'
Fyrsta nýja íslenska platan sem jafnframt er gefin út á geisladisk.
P G K
□ □ □ LÖG JÓNS MÚLA ÁRNA- 810/899r 1.260/1^99'
SONAR VIÐ TEXTA JÓNASAR
ÁRNASONAR
Lögin hans Jóns Múla eru fyrir löngu orðin þjóðareign.
Hér eru þau í nýjurn sparibúningi.
599/479, 1.199/1^99
P G K
□ □ □ VILHJÁLMUR
VILHJALMSSON. HANA NÚ
Hin fræga plata Vilhjálms endurútgefin, og sett á geisladisk.
Ég óska eftir að greiðsla verði skuldfærð á
visaQ eurocardD
Kort nr. i i i i 11_1_1—l—11—1—1—1—11—I—1—1
Gildistími til l_l_l/L
Ef pantað cr-fyrir 1<S. tíes.
vcrður pöntunin afgrcidd fyrir jól.
• TEKIÐ ER Á MÓTI ÁSKRIFTUM f SfMA 689985 EFTIR KL. 17.00.
P G K
□ □ □ EURYTHMICS. SAVAGE 639/399, 1.099/1*299
Þau Annie Lennox og Dave Stweart hafa aldrei verið betri.
699/8997 1.199/1*399
P G K
□ □ □ A VERY SPECIAL
CHRISTMAS
Aldrei hefur öðru eins stjörnuliði verið stefnt saman á nýja jólaplötu:
Eurythimics, Withney Huston, Bruce Springsteen, U2, Madonna,
Alison Moyet, Sting - og upptalningin þá aðeins hálfnuð.
P G K
□ □ □ RICHARD
CLAYDERMAN. SONGS OF LOVE
Lög úr Eastenders, Vesalingunum, Chess og fleira af ljúfri tónlist.
P G K
□ □ □ RICHARD STRAUSS: 639/399", 1.0990*2*
Also Sprach Zarathustra/Don/Juan
Berliner Philharmoniker. Stjórnandi: Herbert von Karajan fer
á kostum í glæsiupptöku. - Geisladiskurinn er í sérflokki.
639/399, 1.099/L299r
1.990/2-649, 1.990/2-649"
P G K
□ □ □ JOHANN SEBASTIAN
BACH
Jólaóratoría.
The Monteverdi Choir London, The English Baroque Soloists,
John Eliot Gardiner. Ný og björt og hátíðleg hljóðritun frá Archiv
á hinu glæsta jólaverki Bachs. 3 plötur/2 snældur/2 geisladiskar.
P plötur K snældur G geisladiskar
Ég óska eftir að gerast félagi í SKfFUKLÚBBNUM,
NAFN_______________________________________________
HEIMILI.
NAFNNR
POSTNR
_ FÆÐINGARD _
SlMI
STAÐUR-
B0RGARTÚN 24 105 REYKJAVlK
__• >
Fuglar Islands
____Bækur
Árni Einarsson