Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
TIL VALIN JÓLAGJÖF
Astæðulaust að ótt-
ast umhverfisspjöll
eftirFinn
Björgvinsson
Að undanfömu hefur mikið verið
rætt og skrifað um verðandi ráðhús
okkar Reykvíkinga. Mest hefur þó
heyrst í óánægjuröddum og þá nán-
ast eingöngu frá leikmönnum enda
eru arkitektar búnir að heyja bar-
áttu sín á milli í samkeppni um
ráðhúsið. Sennilega kom meirihluti
stéttarinnar þar við sögu, sem gefur
nokkra vísbendingu um hrifningu
og áhuga fyrir verkefninu.
Það er ekki nema gott eitt um
það að segja þegar almenningur
gefur umhverfi sínu gaum og vil
ég ekki gera lítið úr því en nú virð-
ist sem allir hafi allt í einu betri
hugmyndir um staðsetningu ráð-
hússins en skipulagsyfirvöld borg-
arinnar. Flestir sem um þetta hafa
tjáð sig vilja ráðhúsið utan við Kvos-
ina en ég sem fagmaður er hins
vegar ánægður með að ráðhúsinu
skuli vera valinn staður við norður-
enda Tjarnarinnar og í mínum huga
koma ekki aðrir staðir til greina.
Ég vil líka benda á, að ekkert ligg-
ur fyrir um, að meirihluti borgarbúa
sé andvígur fyrirhuguðum stað,
þótt andstöðumennimir hafí hæst
nú um stundir.
Ráðhús borgarinnar verður að
vera miðsvæðis og aðgengilegt fyr-
ir okkur Reykvíkinga þegar við
eigum erindi við fulltrúa okkar í
borgarstjórn. Þar mun borgarstjóm
halda sína fundi og þar mun okkur
borgarbúum gefast mun betra tæki-
færi til að fylgjast með þeim
málefnum sem borgarstjóm fer með
um leið og við veitum borgarstjóm
visst aðhald.
Þar sem Tjamargatan er ein af
okkar fallégustu götum þarf að
meðhöndla hana með sérstakri
gætni. Borgaryfirvöldum ber því
skylda til að sjá svo um umferð að
ráðhúsinu komi ekki til með að
spilla götunni. Legg ég því til að
öll umferð til og frá ráðhúsinu verði
um skábrautir í miðju Vonarstræti.
Margir hafa látið þá skoðun í ljós
að umhverfí Tjamarinnar muni
stórlega spillast með tilkomu ráð-
hússins. Frá mínum bæjardyrum
séð er ástæðulaust að óttast um-
hverfísspjöll. Vil ég minna menn á
að Listasafn íslands er nú um þess-
ar mundir að flytja í nýtt húsnæði
með nýja og glæsilega sýningarsali
hinum megin Tjamarinnar. Tel ég
að ráðhúsið og Listasafnið eigi eft-
ir að hafa mikil áhrif á allt borg-
arlífíð. Staðsetning þeirra á eftir
að styrkja þau hvort um sig og
ekki rýrir það verðandi ráðhús að
form þessara húsa falla sérstaklega
vel hvort að öðru, ekki síst þökin.
Þess er og gætt að heildarsvipur
byggðarinnar við Tjamargötu og
Vonarstræti haldist eins og kom
Finnur Björgvinsson
„Ráðhús borgarinnar
verður að vera mið-
svæðis og aðg-engilegt
fyrir okkur Reyk-
víkinga.“
glögglega fram á dögunum þegar
strengdar voru línur sem afmörk-
uðu hæð og legu væntanlegs
ráðhúss. Þá sannfærðist ég endan-
lega um að ráðhúsið ætti hvergi
heima nema við norðurenda Tjam-
arinnar enda er verðlaunatillagan
bráðfalleg og dæmi um skemmti-
lega leystan arkitektúr. Þori ég að
fullyrða að arkitektar séu fyllilega
sammála niðurstöðu dómnefndar.
Höfundur er arkitekt.
HITACHJ ORBVI.GjUOFN...........
- tæknileg fullkomnun.
• 28.6 lítrar • Rústfrítt stál
• 600 WATTA geislaorka • 60 mínútna klukka
• Stiglaus geislastilling • Ljós í ofni
KRINGLUNNI - SÍMI 91-685868
Verð aðeins kr. 3.500.-
Söluaðili: Ellingsen Ánanaustum síni 28855
Nýjung til björgunar á
MANNSLIFUM
B — LÍNAN er flotbauja viðurkennd af Siglingamálastofnun Ríkisins sem jafngildi
björgunarhrings með línu, í bát minni en 8m. B — LINAN vegur aðeins rúm 4 kg. og
fara menn létt með að kasta henni allt að 25 metra. (Jafnvel börn)
B —LÍNAN sameinar ekki aðeins helstu kosti björgunarhringsins og kastlínunar,
heldur reynist hún betur við flest allar aðstæður.
Dreifing:
I FLUTNINGATÆKNI SF
— VATNAGÖHÐUM 12 - PÓSTHÓLF 4368 - 124 REYKJAVÍK - SÍMI (91) 68 81 55
Fullt hús af skíðavörum
Smábarnapakkl: 6.990,-
Austurrísk skíði 70-110 cm, Salomon bindingar,
Tecknica skór, stafir.
Barnapakki: 8.760,-
Austurrísk skíði 120-140 cm, Salomon bindingar,
Tecknica skór, stafir.
Unglingapakki: 9.950,-
Austurrísk skíði 150-170 cm, Salomon bindingar,
Tecknica skór, stafir.
Fullorðlnspakki: 11.900,-
Austurrísk skíði 175-195 cm, Salomon bindingar,
Tecknica skór, stafir.
Göngupakki: 5.520,-
Skíði, skór, bindingar, stafir.
Sportleigan,
gegnt UmferAarmlAstöAinnl, sími 13072.
Sendum í póstkröfu. OpiA allar helgar.