Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
£
KYNNING
á HITACHI ÖRBYLGJUOFNUM
Matreiðslumenn sýna hvernig hægt er
að matreiða á skömmum tíma
holla og ljúffenga fæðu.
HITACHI örbylgjuofninn
er RÖSKUR HEIMILISPJÓNN.
KYNNINGARDAGAR:
Föstudagur 11. des. frá kl. 16-19
Laugardagur 12. des. frá kl. 12-16
Verið hjartanlega velkomin.
vöeim it0MiixsJpjpwiV-
•//f// heimilistæki
KRINGLUNNI - SÍMI 91-685860”
Opið bréf til þátta-
gerðarfólks á tónlistar-
rásum og stöðvum
Við undirrituð vorum nýverið á
fundi með fulltrúum allflestra stofn-
ana sem starfa með unglingum á
Reykjavíkursvæðinu. Barst í tal
vinnubrögð starfsfólks ofannefndra
rása. Var ákveðið að láta ekki sitja
við nöldrið eitt og var okkur því
falið að koma á framfæri eftirfar-
andi athugasemdum til umhugsun-
ar, vonandi umfjöllunar og helst af
öllu eftirbreytni.
Nýverið hélt frelsjð innreið sína
í ljósvakafjölmiðlun íslendinga með
öllum sínum hressileika og kátínu.
Eitt af því sem virðist fylgja slagn-
um um athygli hlutenda er meira
og minna stöðug hvatning til
áfengisnotkunar og tilheyrandi
samkvæmislífs, frá því á föstudags-
morgni fram á sunnudag. A föstu-
dagsmorgnum er með reglulegu
millibili miðlað upplýsingum um hve
biðraðir séu langar á hinum ýmsu
útsölustöðum ÁTVR. Eftir hádégið
er gjaman hringt á vinnustaði og
talað við fólk og það þá næsta und-
artekningarlítið krafíð sagna um
hvort eigi nú ekki að „detta í það“
í kvöld. Síðan er tíminn mældur í
því hvenær ríkið lokar. Þegar líður
á kvöldið er hann aftur á móti
mældur í glösum af hinum hressu
umsjónarmönnum. „Klukkan er
korter gengin í fjórða glas.“ Þá
höfum við dæmi þess að venjulegt
bekkjarpartí hjá grunnskólanemum
var auglýst á einni útvarpsstöðinni
án leyfís gestgjafa með þeim afleið-
ingum að húsið fylltist af óboðnum,
drukknum gestum sem 14—16 ára
unglingar réðu auðvitað ekkert við.
Ofan á allt þetta er svo aðhláturs-
efni hjá þeim síkátu að fólk sé
vakandi á morgnana um helgar og
það þá yfírheyrt um það hvers
vegna í ósköpunum það liggi ekki
inni í bæli í þynnku.
Okkur er tíðrætt um þetta því
okkur fínnst svona vinnubrögð hjá
þáttagerðarfolki næsta ábyrgðar-
laus. Hér er ýtt undir þann hugsun-
arhátt að enginn sé maður með
mönnum nema hann sé í meira og
minna stöðugu svalli og „djammi"
allar helgar. Ekki viljum við halda
því fram að fjölmiðlar stýri hegðun
og lífí fólks en ómótmælanlega
hafa þeir sterk áhrif til mótunar.
Með vinsemd,
Hjördís Hjartardóttir,
forstöðumaður Unglinga-
samb. Reykjavíkur,
Samúel Lefever,
forstöðumaður Unglingaat-
hvarfs Reykjavíkur,
Þórkatla Aðalsteinsdóttir,
starfsm. Unglingaráðgjafar.
Mml 1 Íatjí )hm niíteí
Sól á heimsenda
Saga efitir Matthías Johannessen
Enn leggur Matthías á nýjar leiðir og sendir frá sér
alllanga sögu.
Hvemig tekst ljóðskáldinu upp við sagnagerð?
<á
bók
WAqóðhók
Egilsstaðir:
Um 1300jólatré felld
Morgunblaðið/Bjöm SveinBson
Jólatréð við verslun Kaupfélags Héraðsbúa er að jafnaði hæsta tré
sem fellt er á íslandi hverju sinni og kemur ævinlega úr Hallorms-
staðarskógi. Talið er að tréð í ár sé 50 til 60 ára gamalt.
Egilsstöðum.
SEGJA má að jólastemmningin
komi hér á Egilsstöðum þegar
kveikt er á jólatrénu við verslun
Kaupfélags Héraðsbúa en það er
að jafnaði hæsta tré sem fellt er
á Islandi hveiju sinni og kemur
ævinlega úr Hallormsstaðar-
skógi. Venjulegast er þetta
annað hæsta jólatré sem sett er
upp um hver jól, næst á eftir
Oslóartrénu á Austurvelli.
Að þessu sinni er tréð við kaup-
félagið rauðgrenistré um 14 metra
hátt, beinvaxið og fagurt. Tréð er
úr reit sem gróðursett var í áður
en nákvæm skráning á gróðursetn-
ingu hófst en árhringir trésins gefa
PIOIMEER
HUÓMTÆKI
til kynna að það sé á milli 50 og
60 ára gamalt.
Hjá Skógrækt ríkisins á Hall-
ormsstað verða felld milli 1300 og
1400 tré fyrir þessi jól. Hér er aðal-
lega um rauðgreni að ræða en
einnig blágreni og fjallaþin. Aðal-
markaðssvæði skógræktarinnar á
Hallormsstað er á Austurlandi en
þar seljast um 1000 tré. Afgangur-
inn er seldur á höfuðborgarsvæðinu.
Vinsælustu trén eru kringum 150
sm á hæð og eru þá 10—12 ára
gömul. Þau kosta frá 985 kr. og
upp í 1285 kr. en sama verð gildir
um_ allt Austurland.
Á Hallormsstað eru trén höggvin
eins seint og framast er unnt þann-
ig að t.d. rauðgreni heldur barrinu
ágætlega út öll jólin. Þetta hefúr
orðið til þess að eftirspum eftir
barrheldnari trjátegundum, eins og
fjallaþin, er ekki eins mikil hér og
fyrir sunnan en fjallaþinurinn er
nánast sama tegundin og Nor-
mannsþinur sem mikið hefur verið
í tísku víða um land undanfarin ár
og hefur verið fluttur inn í miklu
magni.
— Björn
4-