Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
49
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Kærleikurínn ber kosta mesta,
íiesta og besta.
— sígild sannindi —
Á jólaföstu finna menn gjarnan
fyrir hinni göfugu tilfinningu. Hugs-
unin snýst mikið um það, hvernig
hægt sé að gleðja aðra — með gjöf-
um og einnig í mat og drykk. En
þegar sá tími kemur að maginn
hafnar góðgætinu, getur verið mjög
gott að hafa við hendina fiskrétt sem
er einfaldur, léttur í maga og bragð-
góður ... eins og:
Soðinn fiskur
meðjógúrt-
sinnepssósu
800 gr fiskflök (ýsa)
2 bollar vatn
1 tsk. salt
1 lárviðarlauf
4 piparkom heil
og jógúrt-sinnepssósa .
soðnar kartöflur
1. Fiskflökin eru roðflett og skor-
in í hæfilega stór stykki. Að sjálf-
sögðu má einnig hafa steikur úr
heilum fiski.
2. Vatnið er sett á pönnu ásamt
salti, piparkomum og lárviðarlaufi.
Lárviðarlaufið er brotið í sundur svo
bragðefnin nái að koma fram. Suðan
er látin koma upp og er fiskurinn
soðinn í bragðbætta soðinu í 5—7
mín. Vatnið á rétt að fljóta yfir fisk-
inn.
Jógúrtsósan: Best er að bytja á
því, í upphafi matargerðar, að búa
til sósuna. Þetta er sósa fyrir fjóra.
1 bikar jógúrt án ávaxta
XU bolli majones
1 tsk. sinnep (Dijon)
V2 tsk. chervil
V4 tsk. hvítlauksduft
Jógúrt, majonesi, sinnepi, chervil
(eða graslauk) og hvítlauksdufti er
blandað vel saman og sett í skál og
henni lokað. Sósan er látin standa
á svölum stað í klukkutíma svo
bragðefnin nái að jafnast og njóta
sín. Sósan er ekki soðin.
Vatninu er hellt af fiskinum á
pönnunni og er krydd, lárviðarlauf
og piparkom fjarlægð. Fiskstykkin
eru höfð við miðju pönnunar og af-
hýddum kartöflum raðað í hring.
Þá er sósunni hellt yfir heitan fisk-
inn og kartöflumar og rétturinn
borinn fram strax. Gott meðlæti er
hrásalat.
Verð á hráefni:
800grýsuflök .... kr. 196
1 bikarjógiirt .. kr. 24
kr. 220
Sylvía Briem
endurkjör-
inn formað-
ur Anglíu
AÐALFUNDUR ensk-íslenska
félagsins Angliu var haldinn 2.
desember. Sylvía Briem var
endurkjörinn formaður.
Undanfarin 10 ár hefur Anglía
einbeitt sér að enskukennslu og
lagt áherslu á talæfingar. Skrif-
stofa félagsins er á Amtmannsstíg
2.
Tískuverslunin Cara
flutt í Kringluna
TÍSKUVERSLUNIN Cara, sem Þýskalandi, að því er segir í
áður var til húsa að Barónstíg fréttatilkynningu. Einnig hefur
18, hefur flutt verslunina í verslunin boðið upp á fatnað í
Kringluna. yfirstærðum og nærfatnað.
Verslunin hefur á boðstólum Verslunin Cara er í eigu Steinars
kvenfatnað, aðallega frá V- S. Waage og Clöru G. Waage.
Clara Waage, annar eigandi tískuverslunarinnar Cöru, i nýju hús-
næði verslunarinnar í Kringlunni.
ckar eru óvenju
Komið í jólatres
jólatren o
falleg í ár
,n og veljið
aðstæður
SðmaSnur
Norðmannsþ'nur
NorðŒKnasteJótetí2), //
SLíent.fallegVognýtur
^u,»..„faWegtog^ur
ivaxandivinsaelda.
Kerti í jpúsundata^
Hvergi meira urva
689770
Gróðurbúsinu við Sigtun,