Morgunblaðið - 10.12.1987, Qupperneq 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
50
i
fír
NNÞA getum VIÐ...
...afgreitt eldhúsinnréttingar og fataskápa fyrir jól.
Athugið að vörugjald hækkar væntanlega um áramót.
Frábær greiðslukjör. Pantið strax.
* 671100
STÓRHÖFÐA
EURO
KREDIT
VILDARKJÖR
® 50022
LÆKJARGÖTU 22
HAFNARFIRÐI
Betlidrengurinn
Jugga finnur
Móður Teresu
BÓKAÚTGÁFAN Landakot hef-
ur gefið út bókina „Betlidrengur-
inn Jugga finnur Móður Teresu“
eftir Kirsten Bang. Hún er
skreytt teikningum eftir Kömmu
Svennsson og Torfi Ólafsson hef-
ur þýtt hana á íslensku. Anna
G. Torfadóttir sá um útlit bókar-
innar.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir m.a.: „Þetta er saga af bækl-
uðum dreng í sveitaþorpi í Indlandi
sem foreldramir neyðast til að selja
vegna fátæktar sinnar. Drengnum
er ætlað að verða betlari því að
meiri líkur eru til að fólk gefi bækl-
uðum bömum en heilbrigðum.
Drengurinn gengur kaupum og söl-
um og lendir síðast á götunni í
Kalkútta þar sem hann á ekki ann-
að fyrir sér en veslast upp úr
næringarskorti, en þá kemur Móðir
Teresa og systumar hennar til sög-
unnar.
Höfundurinn fléttar saman við
spennandi söguþráð fræðslu um
Indland, kjör umkomulausra bama
þar í landi og starfsemi Móður Ter-
esu og Kærleiksboðberanna í þágu
sveltandi og umkomulausra bama
jafnt sem fullorðinna."
Sá hagnaður, sem verða kann
af sölu bókarinnar, rennur til
styrktar starfsemi Móður Teresu í
þágu bágstaddra bama í Indlandi
og víðar.
A S G C I R JAKOBSSON
fl.lf.VlK
KMfmut
.f. lf f f.f.VA
ií’IXiittS SMmt
MHWii.ssmui
s k i) r. c, s i á
HAFNARFJARÐARJARLINN
Einars saga Þorgilssonar
Ásgeir Jakobsson
Bókin er ævisaga Einars Þor-
gilssonar im leið og hún er
100 ára útgerðarsaga hans og
fyrirtækis hans. Einar hóf út-
gerð sína 1886 og var því út-
gerðin aldargömul á síðasta
ári og er elzta starfandi út-
gerðarfyrirtæki landsins. Þá er
og verzlun Einars Þorgilssonar
einnig elzta starfandi verzlun
landsins, stofnuð 1901. Einar
Þorgilsson var einn af
,,feðrum Hafnarfjarðar," bæði
sem atvinnurekandi og bæjar-
fulltrúi og alþingismaður. Þá
er þessi bók jafnframt almenn
sjávarútvegssaga í 100 ár og
um það saltfisklíf, sem þjóðin
lifði á sama tíma.
FANGINN OG DÖMARINN
Þáttur af Sigurdi skurði
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
BÆR IBYRJUN ALDAR
HAFNARFJÖRÐUR
Magnús Jónsson
Bær í byrjun aldar — Hafnar-
fjörður, sem Magnús Jónsson
minjavörður tók saman, er
yfirlit yfir íbúa og hús í Hafn-
arfirði árið 1902. Getið er hvar
húsin voru staðsett í bænum,
hvort þau standa enn o.s.frv.
Síðan er getið íbúanna. Og þar
er gífurlega mikill fróðleikur
samankominn. Ljósmyndir
eru af fjölda fólks í bókinni.
Allur aðaltexti bókarinnar er
handskrifaður af Magnúsi, en
aftast í bókinni er nafnaskrá
yfir þá sem í bókinni eru
nefndir, alls 1355 nöfn.
MEÐ MORGU FOLKI
Auðunn Bragi Sveinsson
Auðunn 'Bragi Sveinsson, fyrr-
verandi kennari og skólastjóri,
hefur ritað margt sem birst
hefur í blöðum og tímaritum í
gegnum árin í ljóðum og
lausu máli, og einnig hefur
hann ritstýrt nokkrum bók-
um. Bók sú sem hér birtist
fjallar fyrst og fremst um fólk
við ólík skilyrði og í mismun-
andi umhverfi, — frá afdal til
Austurstrætis, ef svo má að
orði komast. Með mörgu fólki
er heitið, sem höfundur hefur
valið þessu greinasafni sínu.
Mun það vera réttnefni.
OSPIN OG YLUSTRAIÐ
Haraldur Magnússon
Haraldur Magnússon fæddist
á Árskógsströnd við Eyjaíjörð
1931. Hann ólst upp í Eyja-
firði og Skagafirði fram að
tvítugsaldri. Nú býr hann í
Hafnarfirði. Þetta smásagna-
safn er fyrsta bók Haraldar, en
þessar sögur og fleiri til hefur
hann skrifað í frístundum sín-
um undanfarin ár. Sögurnar
eru að ýmsujeyti óvenjulegar
og flestar fela þær í sér boð-
skap. Þetta eru myndrænar og
hugmyndaauðugar sögur, sem
höfða til allra aldurshópa.
SKUGGSJA - BOKABUÐ OLIVERS STEINS SF
t