Morgunblaðið - 10.12.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
61
-t-
Elías Ketilsson tekur við verð-
launum fyrir spurningaleik
Radiomiðunar hf.
Úrslit í spurn-
ingaleik Radio-
miðunar hf.
Á SJÁVARÚTVEGSSÝNING-
UNNI sem haldin var í september
sl. efndi Radiomiðun hf. til spurn-
ingaleiks um starfsemi fyrirtæk-
isins. Verðlaun voru Dancall
farsími, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá Radiomiðun hf.
Dregið hefur verið úr réttum svör-
um og kom vinningur í hlut Elíasar
Ketilssonar, sjómanns frá Bolung-
arvík.
FYRIR ALLAR
SNEIÐAR
Fullkomin brauðrist með stillingu
fyrir þykkt sneiðanna.
Einangraðar hliðar sem hitna
ekki. Stílhreint og fallegt tæki frá
Morphy Richards.
Fæst í næstu raftækjaverslun.
morphq richards
1
i
í
.1
~t
________________________________________________'NuP
KVEIKJUM Á KERTI OG BÚUM TIL. .
IKVOLD!
SMJÖR OG “SÚKKULAÐIÆÐIГ
sukkulaðitop™
Konfekt, súkkulaði og aftur
konfekt er það fínasta fína þessa
dagana. Nýjasta „æðið“ sem talið er
eiga rætur sínar að rekja til
Frakklands, og hefur þegar náð
mikilli útbreiðslu m.a. í Bandaríkjunum.
Hér er þó ekki um að ræða neitt
venjuiegt konfekt eða súkkulaði sem
við þekkjum svo vel úr hillum
kaupmannanna - nei, handgert skal
það vera og eingöngu úr ljúffengustu
og fínustu náttúruefnum. Uppistaða
þessa sælgætis er suður amerískt
súkkulaði, ferskur rjómi og hreint
smjör.Því er skiljanlegt að gómsætið
sé ekki gefið.
Nú skulum við athuga málið.
Við getum nefnilega útbúið okkar
sælgæti sjálf fyrir aðeins */io hluta þess
verðs sem áðurgreint konfekt kostar
og ekki skortir okkur hráefnið. Hér
koma nokkrar góðar uppskriftir.
Látum nú hendur standa fram úr ermum.
ROMMKONFEKT
110 g suðusúkkulaði
110 g smjör
300 g flórsykur
romm eftir smekk.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði
og blandið smjörinu út í. Hrærið
flórsykrinum og romminu saman við.
Mótið litlar kúlur og veltið þeim upp
úr súkkulaðikurli. Geymið í kæli.
KÓKOSKÚLUR
125 g smjör
175 g flórsykur
V/2 msk romm eða koníak
250 g suðusúkkulaði, brœtt yfir vatnsbaði.
Hrærið smjörið þar til það
verður létt og ljóst og bætið þá
flórsykrinum og víninu út í. Látið
súkkulaðið kólna ögn áður en þið
blandið því saman við smjörhræruna.
Setjið hræruna í sprautupoka og
sprautið í lítil pappamót eða á plötu
pappír. Kælið.
75 g smjör
1 dl sykur
1 msk vanillusykur
3 dl haframjöl
175 g suðusúkkulaði,
brætt yfir vatnsbaði
2 msk mjólk
1 dlkókosmjöl.
Hrærið saman smjöri, sykri,
vanillusykri, súkkulaði, haframjöli og
mjólk. Mótið kúlur eða sívala bita og
veltið upp úr kókosmjöli. Kælið.
<
O)