Morgunblaðið - 10.12.1987, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
65
Síbrotamaður:
Dæmdur fyrir innbrot
í ÁTVR og Skeljung
HÆSTIRÉTTUR hefur kveðið
upp dóm yfir manni, sem var
fundinn sekur um innbrot í versl-
un ÁTVR á Akranesi árið 1984
og innbrot i söluskála Skeljungs
í Borgarnesi sama ár. Maðurinn
var dæmdur í 18 mánaða fang-
elsi, en hann hefur áður hlotið
tugi refsidóma. Má þar nefna 2
ára og 4 mánaða dóm í ágústmán-
uði síðastliðnum fyrir fíkniefna-
brot, en það var 25. refsidómur
hans.
Þann 22. desember í fyrra var
maðurinn dæmdur í sakadómi til 8
mánaða fangelsisvistar. Það var
fyrir að hafa, föstudagskvöldið 12.
október 1984, hrifsað allt að 7000
krónur úr peningakassa í sölutum-
inum Tvistinum við Lokastíg í
Reykjavík. Einnig fyrir að hafa,
ásamt öðrum, brotist inn í sölu-
skála Skeljungs hf. í Borgamesi,
aðfaranótt mánudagsins 4. mars
1985, og stolið allt að 220 þúsund
krónum í peningum og tékkum.
Skömmu áður en dómur þessi
féll, eða þann 18. desember 1986,
hlaut maðurinn annan dóm í saka-
dómi. Þá var hann dæmdur til 6
mánaða fangelsisvistar fyrir inn-
brot í útsölu Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins á Akranesi
aðfaranótt fimmtudagsins 25. októ-
ber 1984. Þaðan stal hann, ásamt
félögum sínum, allt að 15 kössum
af vodka og viskí og allt að 4000
vindlingum. Þá var hann einnig
dæmdur fyrir að hafa tvisvar sinn-
um mðst heimildarlaust inn á
heimili fólks.
Maðurinn áfrýjaði báðum dóm-
unum til Hæstaréttar og jafnframt
var þeim áfrýjað af hálfu ákæru-
valds til þyngingar. Málin voru
sameinuð í Hæstarétti. Rétturinn
komst að þeirri niðurstöðu að sýkna
bæri manninn af ákæru um grip-
deild í sölutuminum Tvistinum, þar
sem ekki taldist sannað að hann
hefði verið þar að verki. Hins vegar
var hann sekur fundinn um innbrot
í söluskála Skeljungs í Borgamesi,
í útsölu ÁTVR á Akranesi og fyrir
húsbrotin tvö.
í niðurstöðu Hæstaréttar er bent
á, að ákærði hafi, þann 31. ágúst
í ár, verið dæmdur í sakadómi í
ávana- og fíkniefnamálum í 2 ára
og 4 mánaða fangelsi fyrir brot á
fíkniefnalöggjöfinni, en ákærði átti
þátt í smygli á um 500 grömmum
af amfetamíni hingað til lands.
Hæstiréttur taldi refsingu hæfilega
ákveðna 18 mánaða fangelsisvist.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðmundur Jónsson og
Hrafn Bragason og Gaukur Jör-
undsson, settur hæstaréttardómari.
Hallvarður Einvarðsson, ríkissak-
sóknari, flutti málið fyrir hönd
ákæruvaldsins, en veijandi manns-
ins var Hilmar Ingimundarson.
Einar Kárason:
Söngur víllí-
andarínnar
og flcírí sögur.
Bækur Einars Kárasonar um fjölskyldu
Karólínu spákonu, Þar sem djöflaeyjan rís
og Gulleyjan, hafa notið míkilla vinsælda,
nú síðast f uppfæfslu Leikfélags Reykjavfkur.
Einar sendir nú í fyrsta sinn frá sér smásögur
sem eru ekki síður skemmtilegar aflestrar en
skáldsögur hans.Sögurnar eru sagðar í þeim
hálfkæringstón sem lesendur Einars þekkja,
í senn háðskum, fyndnum og hlýjum, og
bornar uppi af litríkum mannlýsingum sem
eru aðalsmerki hans sem rithöfundar. Bókin
er 172 bls. að stærð.
Álfrún Gunnlaugsdóttir:
Hríngsól
Þessi nýja skáldsaga Álfrúnar Gunnlaugs-
dóttur er mikil að vöxtum og ekki síður
forvitnileg en fyrri bækur hennar, Af manna
völdum og Þel sem bókaunnendum eru að
góðu kunnar. Hér er á áhrifamikinn hátt
rakin örlagasaga islenskrar konu. Sagan
hefst i litlu þorpi við sjó á öndverðum fjórða
áratugnum þegar söguhetjan leggur upp í
sina ævireisu. Leiðin liggur til Reykjavíkur
og síðar til meginlands Evrópu, en ferðinni
lýkur þar sem hún hófst - fimm áratugum
siðar.
Verð 2.190,
Verð: 1.980,-
Söngur
villiatidánnnar ■
og llí’írí sógur
Sjón:
Stálnótt
Fyrsta skáldsaga þessa höfundar, óvenju-
leg og sterk eins og við mátti búast. Hún er
í anda vísindaskáldsagna, framtíðarsýn þar
sem notaðir eru þættir úr ævintýrabókum
og hryllingssögum í bland við bíómyndir
samtimans. Fjórmenníngarnir Fjnnurinn,
Annan, Jonninn og Dísan birtast hér i nýju
Ijósi og eiga í ýmsum næturævintýrum. En
nóttin er ekki mjúkur hjúpur sem umvefur
börnin - hún er stálnótt.
Súrrealistinn Sjón er maður nýjunganna,
frumlegur, myndvís og harðsvíraður, og
þessi saga er áreiðanlega engu lík.
Gyrðir Elíasson:
Verð: 1.980,-
Gangandí
íkomí
Gangandi íkomí er 119 bls. Þetta er
fyrsta skáldsaga Gyrðis Elíassonar en hann
hefur áður sent frá sér fimm Ijóðabækur og
unnið sér sess sem eitt hugmyndaríkasta
Ijóðskáld yngri kynslóðarinnar.
Verð: 1.980,-
Mál og menning isa
LISTAR
í fjölbreyttii úrvali
Gólflistar- loftiistar
skillistar
Höfðatúni 2, Reykjavík. Sími 22184
Kl_
MONTRES
KARL LAGERFELD
RARIS
EINKAUMBOÐ
dón og Cskap
LAUGAVEGI 70 -S:24930