Morgunblaðið - 10.12.1987, Page 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
félk í
fréttum
Morgunblaðið/TKÞ
Allt á fullu í maraþondansínum í samkomuhúsinu I Borgarnesi, enda ekki liðnir nema fjórir
tímar frá því að byrjað var.
Borgamesi
UNGLINGAR í BORGANESI
Dansa í fjár-
öflunarskyni
«/
Þær María Sæmundsdóttir og
Ólöf Sigvaldadóttir voru orðnar
örþreyttar eftir að hafa dansað
stanslaust i 16 klukkustundir.
Nemendur 7. 8. og 9. bekkjar
grunnskólans í Borgamesi
söfnuðu nýlega um 40 þúsund krón-
um í ferðasjóð nemendafélagsins
er þeir stigu maraþondans í sam-
komuhúsinu í Borgamesi og
söfnuðu áheitum.
Um 50 nemendur hófu dansinn
klukkan átta að kvöldi. Fljótlega
heltust margir úr keppninni því
þeir fóru fullgeyst af stað en aðeins
var leyfð fimm mínútna hvíld á
klukkustund. Stelpumar voru mun
þrautseigari en strákamir og þegar
dansað hafði verið í um sex tíma
var aðeins einn strákur af þeim
fimmtán sem þá voru uppistand-
andi.
Þegar dansinn hafði dunað í tólf
klukkustundir voru aðeins eftir
tvær stúlkur, Ólöf Sigvaldadóttir
og María Sæmundsdóttir og vom
þær hinar bröttustu. Þær dönsuðu
síðan fram að hádegi og vora þá
búnar að dansa stanslaust í 16 tíma,
þar af einar í fjórar klukkustundir.
Theodór
ÁÐUR FYRR Á ÁRUNUM
Skipshöfniná
Vögg fyrir 70 árum
Sjötíu ár era liðin síðan þessi
skemmtilega mynd var tekin
af áhöfninni á Vögg, sem reri frá
Þorlákshöfn 1917, en eigendfir ára-
skipsins vora Kristinn Vigfússon
skipstjóri og smiður frá Selfossi og
Jón yngri Jónsson á Hlíðarenda í
Ölfusi. Fyrir skömmu kom út bókin
Kristinn Vigfússon staðarsmið-
ur, skrifuð af Guðmundi Kristins-
syni á Selfossi. Þar er sagt frá
ýmsu af sjó og landi og er ugg-
laust forvitnilegt fyrir marga að
skoða myndina af þessari vasklegu
áhöfn.
Skipshöfnin á Vögg 1917, fyrstu formannsvertíð Kristins Vigfússon-
ar í Þorlákshöfn. Fremri röð: Gunnar og Erlendur Erlendssynir,
Hlíðarenda í Fljótshlíð, Sveinbjörn Eyjólfsson, Snorrastöðum í Laug-
ardal, Guðmundur Gunnarsson, Arnkötlustöðum, Hjörmundur
Guðmundsson, Hjálmstöðum, Jón Þorvarðarson, Meðalholtum og
Ingvar Jonasson í Lambhaga. Efri röð: Valdimar Guðlaugsson, Gerða-
koti, Gísli Gíslason, Þykkvabæ, Helgi Hallgrímsson, kennari,
Eyrarbakka, Guðni Guðmundsson, Móhúsum, Kristinn Vigfússon,
Litlu-Háeyri, formaður siðari hluta vertíðar eftir að Jón formaður
slasaðist í lendingu, Guðmundur Björnsson, Gelti, Guðjón Árnason,
Þverá og Jón yngri Jónsson á Hlíðarenda í Olfusi, formaður framan
af vertíð.
Whitney Houston segir að aðdá-
endur sínir geti vel beðið
lengur eftir þvi að hún festi ráð
sitt.
Brooke Shields skipti um and-
litsvatn þegar hún uoppgötvaði
að það var alkóhól í því.
FÓLK í FRÉTTUM
Rob Lowe segir að þau Melissa
Gilbert hafi bara verið vinir;
hún hafi gefið honum upp-
skriftina af hafrakexkökunum
sínum.
Morteh Harket er ekki eins
slæmur og af er látið.
Stórisannleikur
um unglingagoðin
Five Star-systkinahópurinn hoppar og dansar og borðar súkkul-
aði.
Slúðurdálkar blaðanna era frá
degi til dags uppfullir af stór-
fréttum úr einkalífi stjarnanna, en
minna fer fyrir frásögnum úr dag-
lega lífinu. Hér á eftir fylgja nokkur
ákafiega óáhugaverð smáatriði úr
lífí unglingastjarna sem allar eiga
það sameiginlegt að vera fastagest-
ir á síðum slúðurrita en vera í raun
fremur óspennandi og eiga lítið er-
indi á síður blaðarina .
Whitney Houston finnst skemmti-
legast að fara alein í bíó. Hún hefur
ákveðið að tími sé kominn til að
koma sér frá föðurhúsunum og til
að hafa einhvem félagsskap hefur
hún fengið sér tvær kisur sem hún
segir að geti talað. Hvað varðar
karlmenn, þá ætlar hún sér að bíða
örlítið , einu karlmennimir í lífi
hennar era pápi gamli og svo Jesú.
Hún hefur ennþá sína bamatrú og
finnst gaman að syngja í kirkjukór,
hatar veislur og vinnur myrkranna
á milli.
Brooke Shields er besti vinur
mömmu sinnar og hefur verið það
í mörg ár. Hún borðar hollmeti til
að halda vextinum í lagi, drekkur
ekki af því henni finnst áfengi vont
og reykingar koma einfaldlega ekki
til greina. Karlmenn era „bara vin-
ir“ því hún hefur tröllatrú á að
hreinlífi fyrir hjónaband sé forsenda
hamingjunnar.
Morten Harket er sagður vera
veisluglaður kampavínsvelgur en í
raun og vera vill hann ekkert frem-
ur en norska geitamjólk og ost.
Morten er gamall skáti og átti sér
þá ósk heitasta að búa til kofa upp
í sveit. Nú býr hann í ágætiskofa
sem hann smíðaði að vísu ekki sjálf-
ur og dreymir um þá tíð er hann
var ylfingur.
Five Star-systkininþrífast best
heima við. Þar búa foreldramir og
þar geta þau eytt deginum saman,
gert leikfímiæfingar í sérútbúna
æfingasalnum og úðað í sig súkku-
laði að afloknu púli. Ogef súkkulað-
iátið kemur um of við samyiskuna
syngja þau stuttan lagstúf, helst
eftir sig sjálf.
Rob Lowe gerir leikfimiæfingar,
rétt eins og fyrmefnd systkini,
ræktar gulrætur og hvítkál og seg-
ist vera „bara vinur“ vinkvenna
sinna.