Morgunblaðið - 10.12.1987, Side 80

Morgunblaðið - 10.12.1987, Side 80
PykkwlwfM Þar vex sem vel er sáð! fMtangMiilritafrUÞ fksííö aaaa ♦ SUZUKi FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Framboð á rjúpu oft verið meira — , FRAMBOÐ á rjúpu hefur oft verið meira en fyrir þessi jól. Að sogn Hrafns Bachmann kaupmanns er skýringin á þvi aðallega sú að rjúpan heldur sig hærra nú en oft áður vegna veðurblíðu og snjóleysis. Einnig vilja ijúpnaveiðimenn fá hærra verð fyrir ijúpur og bíða þvi með að selja þær í verslanir. Hrafn Bachmann sagði að kaupmenn hafí reynt að spoma við slíkri hækkun með því að vilja ekki kaupa ijúpur á hvaða verði sem er. Því berst lítið í verslanir eins og er. Eftirspurn eftir ijúpu ^g^er mikil og gífurlegt magn hefur verið pantað. En á meðan þetta ástand ríkir er ekki hægt að anna eftirspuminni. Þetta gæti breyst skyndilega og sagðist hann alveg eins búast við að fá nokkur þúsund ijúpur í verslunina á einum degi. „Ég hef oft fengið ijúpu frá Vestfjörðum, en nú bregður svo við að lítið hefur veiðst þar. Snjó- leysið hefur gert það að verkum ^*að ijúpan heldur sig hærra og gerir það veiðimönnunum erfíðara um vik.“ Aðspurður um hvað hann héldi að yrði jólamaturinn í ár sagði Hrafn að mikið hefði selst af önd. „Ég á von á að önd verði jólamat- urinn á þessu ári. Það er greinilegt að fólk vill tilbreytingu í jólamatn- um eins og öðru,“ sagði hann. Bátaleiga á — Tjörninni? Morgunblaðið/BAR Það eru tíu ár þangað til Áml Grétarsson fær að taka bílpróf, en það sakar ekki að setja sig í stellingar við stýrið i Benz eins og hann vann i Lukkutríói. / „Vildi vera orðinn 17“ - segir 7 ára strákur, sem vann Mercedes Benz í Lukkutríói SJÖ ára Reykvíkingur, Árni Grétarsson, datt heldur betur í lukkupottinn þegar hann keypti miða í Lukkutríói fyrir gler sem hann safnaði á verk- stæði föður síns. Hann vann annan aðalvinninginn, Merce- des Benz-bifreið að verðmæti .1,2 milljónir króna, en það gekk ekki átakalaust að kaupa vinn- ingsmiðann. Ámi fór með glerin sem hann hafði safnað í söluturninn Örk í Nóatúni, en vantaði 20 krónur upp á að geta keypt miða í Lukk- utríói, og neitaði að þiggja lán frá samstarfsmanni föður síns og af- greiðslumanninum. „Hann var búinn að vera í fýlu í klukkutíma á verkstæðinu þegar mamma hanskom og sótti hann,“ sagði Grétar Ámason, faðir Áma, „og ég sagði við hann að skilnaði að með vælinu í sér hefði hann tapað Benzinum." Ámi þáði síðan lán hjá móður sinni, Elísabetu Jónsdóttur, og keypti Lukkutríó- smiða á sama stað á leiðinni heim, og vann svo Benzinn á hann. „Það var eitthvað sem bjó undir, það voru svo mikil læti í kringum að kaupa þennan eina miða,“ sagði Grétar. Það var svo ekki til að spilla gleðinni að vinninginn bar upp á brúðkaupsafmæli Grét- ars og Elísabetar. Hvemig líður svo Benz-eigand- anum? „Eg vildi bara að ég væri orðinn 17 ára,“ sagði Ámi. Stöð 2 í viðræðum við Frakka og Þjóðveijæ Myndir um víkingana og franska sjómenn STÖÐ 2 hefur átt í viðræðum við franska og þýska aðila um gerð leikinnar heimildamyndar um franska sjómenn á íslandsmiðum annarsvegar, og 12-13 sjónvarps- þátta um víkingatímann hins vegar. Viðræður þessar hafa farið fram frá því í sumar, og hafa fulltrúar frá Stöð 2 talað við fulltrúa frá franska ríkissjónvarpinu og einu stærsta kvikmyndagerðarfyrirtæki Frakka í París, auk fulltrúa frá þýsku kvikmyndagerðarfélagi. Stöð 2 myndi sjá um alla tæknivinnu við myndimar, en þýsku þættimir yrðu teknir upp hér á landi. Franska myndin yrði hins vegar tekin upp bæði í Frakklandi og á íslandi. Þessum viðræðum verður haldið áfram á næstunni. Ef af samvinn- unni verður tekur 2-3 ár áður en franska heimildaverður tilbúin til sýningar. Utflutningsverðmæti loðnu- kvótans um fjórir milljarðar Afurðaverð hefur hækkað en verð upp úr sjó lækkað UMSÓKN um rekstur á hjóla- bátaleigu með 10 til 12 bátum á Tjörninni í Reykjavík hefur borist borgarráð. Var henni vísað til umsagnar umhverfis- málaráðs. í bréfí til borgarráðs segir að hjólabátar sem drifnir séu áfram með fótafli séu mikið notaðir í Hollandi af ferðafólki sem kýs að skoða borgina á þann hátt. Einnig séu þeir mikið notaðir á sóiar- ströndum. Bent er á að bátaleigan sem yrði opin frá 15. mai til 15. ágúst muni væntanlega veita ungum sem öldnum ánægju og lífga að 'auki upp á Tjörnina. LEYFILEGUR loðnuafli okkar á þessari vertíð verður nálægt 900.000 tónnum, verði tillögur fiskifræðinga um 550.000 tonna viðbót samþykktar. Áætlað út- flutningsverðmæti þess miðað við bræðslu gæti verið um 3,7 millj- arðar króna, náist að veiða það allt, og yfir 4 milljarðar takist að selja nokkuð af frystri loðnu og loðnuhrognum. Ýmsir óvissu- þættir gera útreikninga erfiða, svo sem óstöðugt gengi dollars og afurðaverð, sem hugsanlega gæti lækkað vegna þessarar við- bótar á leyfilegri veiði. Verð á loðnu upp úr sjó hefur lækkað að undanförnu í kjölfar aukinnar veiði og er nú í kringum 2.100 krónur fyrir tonnið, en var fyrr á vertíðinni nálægt 2.400 krónum. Verð aflans upp úr sjó gæti því verið nálægt tveimur milljörðum króna. Afurðaverð hefur að undanfömu hækkað verulega frá því í sumar, þegar samið var um fyrirframsölu á talsverðu af mjöli og lýsi. Þá feng- ust um 8.695 krónur fyrir lýsistonn- ið, en nú er verðið komið í um 12.765. Verð á mjöli var í sumar um 17.000 krónur fyrir lestina, en er nú komið í tæpar 19.000 krónur. Hæpið er að reikna með meiri nýt- ingu í lýsi en 10%, sem gefur þá 90.000 tonn. Hugsanlega má reikna með meðalverði yfír vertíðina á 11.100 krónur. Þá fæst um einn milljarður cif fyrir lýsið. Miðað við 16% nýtingu í mjöli og áætlað meðal- verð á tonnið um 18.900 krónur, fást um 144.000 tonn af mjöli á rúma 2,7 milljarða króna. í þessum útreikningum er ekki gert ráð fyrir frystingu loðnu og loðnuhrogna. Samningar um sölu á þeim afurðum liggja ekki fyrir svo óvíst er um magn og verð. Þó má reikna með að sala þeirra geti hækkað upphæð- ina um einhver hundruð milljóna og heildin verði þá yfir fjóra milljarða króna. Veiðin hefur farið mjög hægt af stað og hefur til dæmis um helmingi minna verið landað á Siglufírði nú en á sama tíma á síðustu vertíð. Um 650.000 lestir eru óveiddar af kvótanum og ekki er gefíð að hann náist allur. Hins vegar er hægt að bræða þennan afla á um 50 dögum miðað við að allar verksmiðjumar séu í fullum gangi. Sú breyting er að verða á veiðun- um, að æ fleiri skip eru á einhvem hátt tengd ákveðnum verksmiðjum og landa nánast eingöngu í þær. 10-16 skip eru ótengd verksmiðjun- um, en framan af vertíð voru það fyrst og fremst hin skipin, sem veið- amar stunduðu, meðal annars til að ná loðnu upp í gerða sölusamninga. Þetta hefur meðal annars haft þau áhrif að hlutur ríkisverksmiðjanna hefur verið hlutfallslega minni en undanfarin ár. Síldarverksmiðjur ríkisins mega ekki, lögum sam- kvæmt, eiga skip og geta því ekki farið þá leið að kaupa skip til að tryggja sér hráefni. Brum byrjað að þrútna á runmim VEÐURFAR hefur verið mjög gott hérlendis í ár og ef hiti í desember verður í meðallagi verður árið það hlýjasta síðan 1972, að sögn Páls Bergþórs- sonar veðurfræðings. Theodór Halldórsson, garðyrkjuverk- stjóri hjá Reykjavíkurborg, segir að brum, aðallega á inn- fluttum runnategundum, sé byrjað að þrútna. „Ef hlýindin standa eitthvað lengur og frost kemur á eftir Morgunblaflið/Þorkell Þrútinn brumhnappur á gljávíði. Myndin er tekin á Miklatúni í gær. þeirn," sagði Theodór, „er það að sjálfsögðu mjög slæmt fyrir þess- ar tegundir, því hlýindin plata þær svo mikið. Brumið fer af stað og ef það frýs er það ónýtt. Það er heitara núna en var f júlímánuði 1979 en þetta er ekki hættulegt ennþá fyrir tré og mnna. Ég man ekki eftir því að gróður hafi áður tekið svona mikið við sér í desem- ber. Það kemur oft kuldakast um mánaðamót nóvember og desem- ber en það var bara rigning núna,“ sagði Theodór.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.