Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 37
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 55 kr. eintakiö. Horfur 1 samningamálum Astæðan fyrir því, að fulltrúar yinnuveiten- dasambands íslands og V erkamannasambandsins hafa setið á fundum undan- fama daga til þess að ræða hugsanlegan skammtíma- samning til þriggja mánaða eða svo, er einfaldlega sú óvissa, sem ríkir á öllum sviðum þjóðlífsins um þess- ar mundir. Menn vita ekki hvar þeir standa og hafa ekki fast land undir fótum. Þess vegna eru forystu- menn Verkamannasam- bandsins tregir til að gera samning út árið að sinni. Þessi óvissa hefur einnig áhrif á afstöðu vinnuveit- enda. Þeir vita ekki hver starfsskilyrði atvinnuveg- anna verða á þessu ári. Um nokkurra vikna skeið hafa menn kastað á milli sín hugmyndum um að gengis- breyting væri nauðsynleg en það er augljóst að það eru mjög skiptar skoðanir um hvort skynsamlegt sé að breyta gengi krónunnar. Andstaðan við það er mjög hörð. Alþingi og ríkisstjóm standa einnig frammi fyrir því, að erfítt er að segja til um framvindu efnahags- mála innanlands og á alþjóða vettvangi á næstu misserum. Þess vegna eiga þessir aðilar einnig erfitt með að marka skýra stefnu í efnahagsmálum umfram það, sem þegar hefur verið gert, sem að vísu er býsna mikið. Það er alltaf auðveldara að ná samningum á vinnu- markaði í góðæri, en þegar hallar undan fæti eins og nú. Það má færa sterk rök að því að lítið sé til skipt- anna. Ef bæta á kjör einhverra hópa launþega að ráði verður það gert með tvennum hætti. í fyrsta lagi með framleiðniaukningu í atvinnulífínu eins og Vest- fírðingar stefna að. Gmnd- völlur þeirra kjarasamninga sem gerðir voru þar er sá, að nýtt bónuskerfí skapi framleiðniaukningu, sem standi undir þeim kjarabót- um sem samið hefur verið um. í öðru lagi er auðvitað hægt að bæta kjör lág- launafólks með því að taka frá þeim sem meira hafa og færa til hinna sem minna mega sín. Slíkar aðgerðir kosta hins vegar miklar deilur og sennilega hörð þjóðfélagsleg átök. En auð- vitað hljóta sanngjarnir menn að íhuga kjör lág- launafólks, sem hafnar- verkamaður lýsti með þessum orðum í samtali við Morgunblaðið í fyrradag: „. . . að alhæstu laun hafnarverkamanna væru 238 krónur á tímann eftir 15 ára starf, eða um 41.000 krónur í grunnkaup á mán- uði. Vinnan væri hins vegar mjög erfið, og oft hættuleg, menn væru jafnvel að vinna í allt að 10 metra hæð í 6-8 vindstigum á veturna.“ Verðlagsmál eru mikið til umræðu um þessar mundir. I þeim umræðum kemur það fram aftur og aftur að verð- lag er oft helmingi hærra á Islandi en í nálægum lönd- um en laun lægri. Menn spyrja hvemig á þessu standi. Skýringin er auðvit- að sú að þessi þjóð hefur á nokkrum áratugum byggt upp það sem aðrar þjóðir hafa gert á nokkrum öldum. Þetta kostar og við erum alltaf að borga þá reikn- inga. Þótt nú hafi slitnað upp úr viðræðum vinnuveitenda og Verkamannasambands- ins væri illa farið ef samtöl féllu niður milli þessara að- ila. Þessi þjóð hefur engin efni á því að stefna út í harðar vinnudeilur á þess- um vetri. Við töpum öll á því. Jafnvel þótt einhveijir aðilar teldu sig fá pólitískan ávinning út úr slíkum átök- um stæði það ekki nema skamma hríð. Þess vegna eigum við að láta skynsemi og sanngimi ráða. LISTAHÁTÍÐ NÆSTA SUMAR Morgunblaðið/Sverrir Nokkrir aðstandenda Listahátíðar. Frá vinstri: Sonja B. Jónsdóttir blaðafuUtrúi, Rut L. Magnússon fram- kvæmdastjóri, Jón Þórarinsson formaður framkvæmdastjórnar og Gunnar Egilson, sem sæti á í fram- kvæmdastjórninni. ChagaU-sýning og tó ar Ashkenazy og Gi DRÖG að efnisskrá Listahátíðar, sem haldin verður 4. til 19. júní í sumar, voru kynnt á blaðamannafundi sem framkvæmdastjóm hátí- ðarinnar hélt I gær. Meðal atriða á hátíðinni má nefna að Vladimir Ashkenazy, franski djassfiðluleikarinn Stephane Grapelli og mez- zósópransöngkonan Sarah Walker halda tónleika. Haldin verður sýning á verkum rússneska málarans Marc Chagalls í nýjum húsa- kynnum Listasafns íslands, verðlaunamyndir úr kvikmyndakeppni Listahátiðar verða sýndar og Þjóðleikhúsið mun frumsýna Marmara eftir Guðmund Kamban. Viðamesta atriði hátíðarinnar verður koma 200 pólskra tónlistarmanna, Fílharmóníuhljómsveitarinnar frá Poz- nan, Fílharmóníukórsins frá Varsjá og einleikara, sem halda munu hér tvenna tónleika. Einnig er stefnt að þvi að halda veglega popp- tónleika, með erlendum og innlendum flytjendum, á aðalleikvangin- um í Laugardal, að kvöldi 17. júní. Vinna við þá er enn í undirbúningi og óljóst hveijir koma fram. Setningardag hátfðarinnar, 4. júní, opnar í Listasafninu fyrmefnd sýning á verkum Chagalls. Verkin eru fengin að iáni úr eigu dóttur málarans. Þá verður einnig opnuð sýning á norrænni „konkretlist“. Sama dag flytja pólsku listamenn- imir sálumessu eftir Krzysztof Penderecki, undir stjóm tónskálds- ins. „Þessir tónleikar verða einn af höfuðviðburðum hátíðarinnar,“ sagði Jón Þórarinsson tónskáld, formaður framkvæmdastjómar Listahátíðar. „Ég heyrði þetta verk Pendereckis í flutningi hljómsveit- arinnar í Danmörku fyrir tveimur árum og varð fyrir mjög sterkum áhrifum frá því, líklega sterkari en af nokkru öðm nútímaverki og hef ég þó heyrt mörg þeirra," sagði Jón. Daginn eftir halda Pólveijamir svo aðra tónleika og þá undir stjóm Wojciechs Michniewskis. „Við vor- um heppin að fá þennan hóp til landsins og það hefði raunar tæp- lega tekist hefðu Pólveijamir ekki verið mjög áhugasamir um að koma hingað og reiðubúnir til að hnika til öðram áformum til að þetta mætti takast," sagði Jón Þórarins- son. Sýningar Sýningar á Listahátíð era, auk þeirra sem þegar er getið, sýning FÍM á grafík eftir David Hockney, sýning á vegum Kjarvalsstaða sem nefnist Maðurinn í íslenskri myndlist 1965-1985, sýning Arki- tektafélags íslands í Ásmundarsal, sýning Nýlistarsafnsins á verkum minimalistanna Donalds Judds og Richards Longs, bóka- og facsim- ile-sýning Stofnunar Áma Magnús- sonar, Sýning Textílfélagsins í Norræna húsinu, sýning á vegum íslensks heimilisiðnaðar og sýning á verkum sænsku listakonunnar Lenu Kronkvist. Tónlist Af tónlistarviðburðum má nefna að Sinfóníuhljómsveit íslands held- ur tvenna tónleika. Öðram stjómar verðandi aðalstjómandi hljómsveit- arinnar, Finninn Petri Sakari, og þar syngur einsöng fínnski barítón- inn Jorma Hynninen. Einnig mun Hið íslenska Biblíufélag: Gefur biblíur til Sovétríkjanna Safnar fyrir kostnaði á sunnudaginn BIBLÍUFÉLÖG og kirkjur á Norðurlöndum hafa ákveðið að gefa 235 þúsund biblíur til Sov- étrikjanna S tilefni af þvi að rússnesk kristni á 1000 ára af- mæli á þessu ári. Sovésk stjórn- völd hafa samþykkt að rétttrún- aðarkirkjan veiti gjöfinni viðtöku og dreifi henni til trúfé- laga í landinu. Hið islenska Bibliufélag gengst nú fyrir söfn- un vegna hlutar íslendinga í þessari gjöf og verða samskot við guðsþjónustur næsta sunnu- dag, sem er Bibiiudagurinn, helguð þessu verkefni. Kostnaður íslendinga vegna þessarar gjafar er 1% af heildinni. Það jafngildir 2350 biblíum, eða einni milljón króna. Þeir sem ekki komast til guðsþjónustu á sunnudag en vilja leggja söfnuninni lið, geta komið framlögum til skila með því að leggja inn á gíróreikning númer 15000-2. Biblíur era sjaldséð svartamark- Biskup íslands, herra Pétur Sig- urgeirsson, með eintak af rúss- nesku biblíuútgáfunni. aðs- og smyglvara í Sovétríkjunum en talið er að 60-70 milljónir Sovét- manna játist kristni. Rétttrúnaðar- kirkjan stendur föstum rótum í rússnesku þjóðlífí og stjómvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.