Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988 67 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS "MFR SKILST HRNN HRFI VERIÐ R0 VINNR STÖRKOSTLEGRN LISTR'CNRN SIGOR ElNS OG ÞRÐ HEITlR" Að beita músíkölskum fantabrögðum Eftir að popp-, rokk- og bítlatón- list hélt innreið sína á vængjum hinnar undursamlegu og þróuðu rafeindatækni nútímans hafa þær furður gerzt að tæknin hefir smám saman spunnið uppá sig og alls- endis óvæntur ófognuður af tröll- auknu rafmagnsgargi hefír siglt í kjölfarið og hvolfst yfír allsendis grandalausan almenning, þannig að flestar dhnsskemmtanir, bæði fyrir eldri og yngri, eru orðnar „diskóteks“-samkomur með yfír- þyrmandi hávaða, og fólk, sem vill eitthvað annað, stendur ráð- þrota og getur enga rönd við reist, né farið eitthvað annað þar sem ekki er ærandi hávaði. Fyrr á dögum þegar fólk vildi fara á „huggulegar" danssamkom- ur með þægilegu tónhæðarstigi gat það farið óhult og öruggt fyrir þessum ófögnuði á almenna dans- leiki, hitt kunningja og talað við þá og skemmt sér við þægilega dansmúsík og átt ánægjulegar samræður við dansdömuna sína um leið, því músfkinni var að öllum jafnaði stillt í hóf svo þetta var hægt. Yfír slíkum skemmtunum var glæsibragur, sem ánægja fylgdi allajafna. Eftir hina á margan hátt dásam- legu tæknibyltingu bregður aftur svo við, að allflestar danshljóm- sveitir' eru famar að útbúa sig hátalara-„batteríum“ og míkró- fónadrasli svo líkist helzt stór- skotaliðsútbúnaði og þær nánast „bombardera" mannskapinn með svo geigvænlegum „músík“-dmn- um, að venjulegt þrumuveður er hreinn bamaleikur í þeim saman- burði. Er glymjandinn almennt slíkur, að ekki heyrist mannsins mál — og jafnvel ekki þótt reynt sé að hrópa eða jafnvel nánast öskra í náungann — við.sama borð. Og öll gamla rómantíkin er fok- in út í veður og vind. Og ef einhver talar um betri tíma áður fyrr, þá hlustar enginn nú orðið á slíkt. Þeir, sem vanist hafa þessum gauragangi, virðast jafnvel telja hina til þess hluta kynstofnsins, sem sé orðinn afdankaður og sem hafi úrkynjast. Það kynlega er að jafnvel dansleikir eða samkundur, sem ætla mætti að væm með virðu- leikablæ vegna sérstakra að- stæðna, hafa líka tekið svipmót af þessum ósköpum og hafa breyzt oft og tíðum í að vera nánast skrípasamkomur sem auðkennast af allskonar fettum og brettum og fáránlegu látbragði, sem á að heita dans — en er það engan veginn. Virðulegir borgarar og dömur sprikla og pata (tjútta) og fetta sig og bretta svo allur fyrri glaesi- bragur er horfínn út í buskann. Og manni skilst að þetta flokkist víst undir „fjör“ eða „stuð“ skv. nútíma hugsunarhætti — það em ærslin og hávaðinn sem gilda — annað er bara gamaldags og ekki móðins í hinni nýju tækni, samlag- ast ekki „hippa“-menningunni. Þetta gengur hinsvegar svo fram af mér að ég get ekki lengur orða bundist. Mér gremst að mað- ur skuli þurfa að sæta þessari meðferð og ekki fá rönd við reist. Maður kaupir sig t.d. inn á fok- dýrar árshátíðir í virðulegum félögum svona einu sinni á árinu og vonast eftir menningarsvip og kúltúr á samkundunni. Og mikill ^hluti af háu verði fer víst í að greiða hinum mögnuðu músík- kempum, sem fást aímennt ekki á neinum slikkprís. En hvað fær maður? Jú, þeir eyðileggja skemmtunina fyrir manni með háv- aða. Þeir spiia greinilega ekki fyrir „neytendur“, þeir virðast bara spila fyrir sjálfa sig þessir makalausu músíkgarpar, og gera útaf við alla skemmtun með þess- um yfirþyrmandi og ruddalega hávaða. Allur „kúltúr“ er horfínn út í hafsauga. Og endirinn á oft góðri árshátfð með góðum ræðum og ánægjulegu skemmtiefni verð- ur skapraun og að fólk flýr burt heim til sín af svona skemmtunum og sér eftir bæði tímanum og pen- ingunum, sem þetta kostaði og heitir að fara aldrei aftur á svona „platball“ með toppstilltum hátöl- urum og dynjandi tröllaöskrum, sem á að heita söngur. Þetta geng- ur svo langt að jaðrar við fanta- skap. Virðist sem hæfileg nafngift á svona „fagmenn" sé ekki músík- kantar heldur „músík-fantar“ því svona nauðung getur vart flokkast undir neitt annað en að fólk sé haft undir með fantabrögðum. Með þessu eru líka oft falleg lög gerð að óskapnaði og svona gauragang- ur er gjörsamlega óþarfur. Maður skilur einfaldlega ekki tilganginn. Ég vil hér mælast til þess að þeir danshljómsveitarmenn, sem selja þjónustu sína á almennum skemmtunum, gleymi því ekki að hlutverk þeirra er að vera til ánægju og skemmtunar, og að þeir hætti þeim hrapallega óvana sem viðgengist hefír að ofseðja viðskiptamenn sina og valda þeim slíkri ógleði sem þeir oft gera nú. Tilætlunin og það sem vonast er eftir frá þeim er skemmtun og ánægja og það ætti að vera full ástæða til að menn hyggðu að at- riði eins og vinsældum sínum og sýndu þá tillitssemi og menningar- viðleitni, sem við á. Til áréttingar vil ég taka fram að þessi skoðun er ekki mitt einka- mál því ég veit um fjölda fólks sem hefír þessa sömu hvimleiðu sögu að segja og hefir eins og ég reynt að koma til leiðar breytingum með fortölum við hljómsveitarmenn, en gjörsamlega án nokkurs árangurs — og stundum fengið afundin svör eða kannski verið bent á að háv- aðamælirinn standi undir sprengi- marki. Er ekki mál að betrumbæta menninguna og minnka gaura- ganginn og gargið? Vonandi er að meðlimir danshljómsveita sýni að þeir séu ekki orðnir „heymarlaus- ir“ gagnvart óskum neytenda með eðlilegt hljómskyn — og sem oft þurfa marga daga til að jafna sig eftir misþyrmingamar af völdum hins yfírgengilega rafmagnsgnýs þessarar „hippa-menningar“. Sveinn Ólafsson BLÓMAFRJÓKORN OG FRÆVUR Polbax er nýtt undra- heilsuefni unnið úr blóma- frjókornum og frævum ásamt Baxtin Andoxunar- efninu. Þetta er algjör bylting í blómafrjókorna- gerð og er að þakka 16 ára rannsóknum sænska „Pollenkóngsins" Gösta Carlssons. í Polbaxi er að finna SOD efnakljúfa sem eru afar nauðsynlegirvarnakerfi líkamans. Polbax-heilsu- efnið er mest selda Pollenefnið á Norðurlöndum. Polbax er góð leið til betri heilsu. Verð á (75) töfl- um er aðeins kr. 390,- Fæst í apotekinu, heilsubúðinni eða markaðinum. Bio-Selen-umboðið, sími 76610. P0|BAX POLLEN & BAXTIN Hvað segja notendur Tollmeistarans? „Aðgengilegt og auðvelt í notkun.“ Sigrún Jörundsdóttir, Bílanausti. Tollmeistarinn, \ Ármúlal7a, sími 685223. DAGVIST BARIVA. BREIÐHOLT Fálkaborg — Fálkabakka 9 Fálkaborg óskar að ráða eftirtalið starfsfólk: Fóstru í heila og hálfa stöðu. Aðstoðarfólk fyr- ir og eftir hádegi. Afleysingafólk. Starfsmann til stuðnings börnum með sérþarfír. Upplýsingar gefa Lilja og Ingibjörg í sírna 78230. HEIMAR — KLEPPSHOLT Sunnuborg — Sólheimum 19 Sunnuborg vantar nú þegar fóstru í hálfa stöðu eftir hádegi. Til greina kemur starfs- maður með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Upplýsingar gefur Arný Birna í síma 3 63 85 VESTURBÆR Hagakot — Fornhaga 8 Skóladagheimilið Hagakot óskar að ráða fóstru nú þegar í heila stöðu. Upplýsingar gefur Stei(iunn í síma 2 92 70 Allar upplýsingar eru á viðkomandi heimil- um og einnig hjá umsjónarfóstrum í skrifstofu Dagvist barna. Sími 91-27277.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.