Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
NÝBYGGING HJÓNAGARÐA
Líkan af nýju stúdentagörðunum.
eftir Tryggva
Axelsson
Nýlega er hafin bygging nýrra
Hjónagarða á lóð Háskóla íslands
við Suðurgötu. Brýn þörf er á að
auka verulega framboð á íbúðar-
húsnæði fyrir nemendur er stunda
nám við Háskóla íslands og stuðla
að frekari uppbyggingu Stúdenta-
garða.
Samkvæmt fyrirliggjandi könn-
unum býr stór hluti háskólastúd-
enta í leiguhúsnæði. í Háskóla
íslands stunda nú um 4.200 nem-
endur nám og búa aðeins tæp 4%
þeirra á Stúdentagörðum. Til sam-
anburðar má nefna að fyrir rúmum
fjörutíu árum var hlutfall þetta
.20%. Vegna hins brýna húsnæðis-
vanda og miklu eftirspumar eftir
húsnæði á Stúdentagörðum var
ákveðið á árinu 1985 að ráðast í
byggingu nýrra Hjónagarða sem
vonir standa til að verði tilbúnir að
fullu á árinu 1990. Alls munu verða
93 íbúðir í byggingunni, auk lestr-
arsals og aðstöðu til bamagæslu
o.fl. Áætluð verklok á 1. áfanga
byggingarinnar eru í september á
þessu ári en í þeim áfanga munu
vera 15 íbúðir, auk sameignar.
Stofnun byggingasjóðs
stúdenta
í ársbyrjun 1986 var ákveðið að
stofna Byggingasjóð stúdenta og
fela stjóm sjóðsins að afla þess fjár-
magns er þarf til byggingar á
leiguhúsnæði fyrir stúdenta. Jafn-
framt er tilgangur Byggingasjóðs
að endurlána þá fjármuni sjóðsins
til garðbygginga, en Stúdentagarð-
ar endurgreiða Byggingasjóði
stúdenta þau lán, er ráðstafar þeim
á ný til frekari framkvæmda. Von-
ast er til að sú tilhögun geti í
framtíðinni skapað traustari bak-
hjarl að byggingu Stúdentagarða
heldur en hingað til hefur þekkst.
í upphafi var Byggingasjóði ekki
markaðir neinir fastir tekjustofnar
en nýlega hefur verið ákveðið að
framvegis muni stúdentar leggja
sjóðnum til fjármuni af innritunar-
gjöldum stúdenta við Háskólann.
Þá hefur háskólaráð einnig sam-
þykkt að styrkja Byggingasjóð
stúdenta af takmörkuðu sjálfsaflafé
sínu, með framlögum til sjóðsins.
Alls gætu því árleg framlög til
sjóðsins numið um 6 milljónum
króna.
Söf nunarátak bygginga-
sjóðs stúdenta
Þegar frá upphafi hefur verið
fullljóst að afla yrði sjóðnum fjár-
muna á annan hátt en einvörðungu
meðal stúdenta og innan Háskóla
íslands, því að framlög þessara
aðila nægja ekki til að kosta hlut
stúdenta í þeirri uppbyggingu sem
fyrirhuguð er.
Stjórn Byggingasjóðs stúdenta
hefur því ákveðið að stofna til sér-
staks söfnunarátaks til byggingar
„Þegar frá upphafi hef-
ur verið fullljóst að afla
yrði sjóðnum fjármuna
á annan hátt en ein-
vörðungu meðal stúd-
enta og innan Háskóla
Islands, því að framlög
þessara aðila nægja
ekki til að kosta hlut
stúdenta í þeirri upp-
byggingu sem fyrir-
huguð er.“
nýrra Hjónagarða. í því skyni hefur
verið leitað til fjölda aðila víðs veg-
ar um landið með beiðni um framlög
til sjóðsins. Það er von þeirra er
að fjársöfnun þessari standa að
þannig megi með sameiginlegu
átaki tryggja að allar íbúðir bygg-
ingarinnar verði teknar í notkun á
þeim tíma er áætlað hefur verið.
Fjárframlög til Byggingasjóðs stúd-
enta munu jafnframt tryggja lægri
fjármagnskostnað vegna nýbygg-
ingarinnar sem kemur væntanleg-
um leigjendum garðanna til góða í
formi lægri húsaleigu.
Rétt er þó að hafa í huga að
megin ávinningurinn með því að
tryggja fjárhagslegan grundvöll
nýrra Hjónagarða er sá að „bætt
aðstaða nemenda til náms er þáttur
í þeirri viðleitni að efla menntun
og þekkingarleit í þágu íslensku
þjóðarinnar" svo vitnað sé til orða
háskólarektors hr. Sigmundar Guð-
bjamasonar í tilefni af fjársöfnun
þessari. Það er einlæg von stjómar
Byggingasjóðs stúdenta og allra
þeirra er standa að söfnunarátak-
inu, að þeir aðilar sem leitað hefur
verið til bregðist vel við beiðni sjóðs-
ins um fjárstuðning til nýbyggingar
Hjónagarða við Háskóla Islands.
Allar nánari upplýsingar em góð-
fúslega veittar hjá Byggingasjóði
stúdenta er hefur aðsetur hjá Fé-
lagsstofnun stúdenta við Hring-
braut, Reykjavík.
Höfundur er formaður ístjórn
Byggingasjóðs stúdenta.
Er liYÍttimin i vasannm á
grænu ulpunm l
Nú geta öll heimili
eignast reiknivél með strimli
iyrir heimilisbókhaldið.
Verð aðeins kr. 2.650,-
Penninn hefur látið útbúa sérstakar möppur með millispjöldum til að
auðvelda heimilisbókhaldið. Með því að nota þessar möþpur er
heimilisbókhaldið alltaf í röð og reglu, og hœíilega sundurliðað.
Skattaframtalið verður líka auðveldara,
Þetta nýja heimilisbókhald er útbúið í samráói við löggilta endúr-
skoðendur. Það tekur mið af staðgreiðslukeríinu
en er umíram allt einíalt og auðvelt. Það kemur ein mappa í
stað margra úlpuvasa.
Hallarmúla 2, sími 83211
Austurstræti 10, sími 27211
Kringlunni, sími 689211