Morgunblaðið - 12.02.1988, Side 1
80 SIÐUR B/C
Evrópubandalagið:
Landbúnaðar-
stefnan vefst fyr-
ir leiðtosfunum
Brussel, Reuter. ~
LEIÐTOGAR Evrópubandalagsins (EB) hófu í gær sérstakan „neyð-
arleiðtog-afund" í aðalstöðvum bandalagsins í Briissel, höfuðborg
Belgiu. Aðalumræðuefnið er hvernig forða megi bandalaginu frá
gjaldþroti, en það sem aðildarríkin greinir helst á um er landbúnaðar-
stefna EB og mun sú deila vera komin í hinn versta hnút. Bretar
og Hollendingar stóðu saman gegn Frökkum og Vestur-Þjóðveijum
þegar loks var tekið til við að ræða landbúnaðarmál, en þá höfðu
skoðanaskipti um fjárhagsvanda bandalagsins staðið linnulaust í
átta tíma.
Að sögn stjómarerindreka var
það Jacques Chirac, forsætisráð-
herra Frakka, sem helst var í for-
svari þeirra, sem vilja hafa niður-
greiðslur til bænda sem hæstar, en
Margaret Thatcher, starfssystir
hans á Bretlandi, stóð föst fyrir og
krafðist þess að niðurgreiðslur yrðu
lækkaðar verulega hið fyrsta.
Styrinn stendur um það hversu
mikið hinar 10 milljónir bænda
bandalagsins mega framleiða og
njóta fulls afurðaverðs fyrir, sem
EB tryggir þeim. Þessari stefnu
hefur einmitt verið kennt um hina
gífurlegu offramleiðslu bandalags-
ins, sem haft hefur í för með sér
að upp hafa safnast kjöt- og smjör-
Qallgarðar, að ógleymdum
rauðvínshöfum. Nú nema niður-
greiðslumar 2/s allra útgjalda Evr:
ópubandalagsins.
Thatcher vill ekki að bændur fái
fullt verð fyrir offramleiðslu um-
fram 155 milljón tonn, en Chirac
þvertekur fyrir að setja markið
lægra en við 160 milljón tonn.
Leiðtogafundurinn, sem gert er
ráð fyrir að standi í tvo daga, var
haldinn eftir að samskonar fundur
í Kaupmannahöfn fyrir tveimur
mánuðum rann út í sandinn.
Sjá nánar á síðu 24.
Lögregluþjónn í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, leiðir tvo óeirða-
seggi á brott.
Sveitarstjórnakosningar í Bangladesh:
Knight-Ridder Graphics Network
Tugir manna faJla ogþús-
imdir særast í ofbelcOsöldu
Dhaka, Reuter.
SKÁLMÖLD ríkti i Bangladesh
á miðvikudag, en þá fóru fram
sveitarstjórnakosningar þar i
landi. Stjórnarandstöðuflokk-
amir sögu að ekki hefðu færri
en 100 manns legið i valnum eft-
Þvertaka fyrir stiórn
ir óeirðimar, en stjórnin sagði
að 68 manns hefðu látist. Að sögn
lögreglunnar börðust andstæðar
fylkingar með byssum, hnífum
og bareflum í látlausum götubar-
dögum víðs vegar um landið og
er talið að alls hafi um 8.000
manns særst. Fjöldi manns liggur
enn i sjúkrahúsum.
kosningar í mars, segi Mohammad
Hossein Ershad, forseti landsins,
ekki af sér.
17 ára saga lýðveldisins Bangla-
desh hefur einkennst af pólitísku
ofbeldi og hafa tveir forsetar þess
verið ráðnir af dögum. Bangladesh
er eitt fátækasta ríki í heimi.
án forystu Najibullahs
ti«nf, Reuter. ”* ——
Reuter
Samningamenn Kabúl-stjómarinnar á blaðamannafundi í Genf í
gær. Abdul Rahim Hatif er fyrir miðju.
HÁTTSETTUR embættismaður í
samninganefnd leppstjóraarinnar
í Kabúl, sem nú tekur þátt i friðar-
viðræðum í Genf, sagði í gær að
ekki væri til umræðu að friðmælst
yrði við íslamska skæruliða í Afg-
anistan með þeim hætti að Naji-
bullah, leiðtogi kommúnistastjórn-
arinnar, færi frá völdum. Á sama
tíma kom fram i Islamabad að
Sovétmenn telja Pakistana fara
sér of hægt í viðræðiun þeirra um
„lausn Afganistanvandans", eins
og Sovétmenn kalla hann. Sagði
Júlíj Vorontsov, aðstoðamtanrik-
isráðherra Sovétríkjanna, að Sov-
étmenn væm stórhuga í viðræðun-
um og ætluðust til þess að aðrir
gerðu það líka.
„Það er einfaldlega ekki til um-
ræðu að dr. Najibullah eða Lýðræðis-
legi alþýðuflokkurinn fari frá völd-
um,“ sagði Abdul Rahim Hatif, sem
er forseti Þjóðarsáttamefndar Afg-
anistans, sem stofnuð var af komm-
únistastjóminni og á að freista þess
að koma á friði í landinu.
Fréttaskýrendur telja að þrátt fyr-
ir nokkum árangur í friðarumleitan
í Afganistan að undanfömu sé þess
vart að vænta að úr leysist á næst-
unni, þar sem skæruliðar sætti sig
ekki við að leppstjóm Najibullah sitji
áfram, jafnvel þótt fulltrúar skæm-
liða fengju inni í stjóm hans.
Júlíj Vorontsov sagði blaðamönn-
um í Islamabad, höfuðborg Pakist-
ans, að ef til vill hefðu Sovétmenn
farið of hratt yfir í samningaviðræð-
unum til þess að aðrir héldu þræði,
en eigi að síður væri það staðreynd-
in og nú ættu hinir leik. Hamraði
hann á því að undirritun friðarsamn-
inga í Genf í mars næstkomandi
væri eina leiðin til þess að tryggja
friðinn, en Pakistanar frábiðja sér
slíka samninga áður en mynduð er
stjóm, sem hinar stríðandi fylkingar
Afganistans sætta sig við.
Sjá Aí erlendum Vettvangi á
bls. 27.
Vopnaðir hópar réðust víða inn
á kjörstaði og stálu atkvæðaköss-
um, en annars staðar var ekki fyrir
því haft og eldur lagður að kjörstöð-
um. Alls varð að ijúfa atkvæða-
greiðslu á 2.500 kjörstöðum af
þessum ástæðum og ýmsum öðmm.
Innanríkisráðherra landsins,
Abdul Matin, sagði í gær að sam-
kvæmt opinberum skýrslum hefðu
68 manns fallið í óeirðunum. „Ég
er harmi lostinn yfir þessu blóð-
baði,“ sagði ráðherrann. „En þetta
ætti að kenna okkur öllum nauðsyn
þess að afneita ofbeldi sem lausn.“
Að sögn lögreglunnar var hún
máttlaus gagnvart ofbeldisseggjun-
um, sem vom margfalt fjölmennari
en tiltækt lögreglulið. „Þetta var
vonlaus barátta. Vígamennimir
hopuðu ekki einu sinni eftir að við
skutum viðvörunarskotum að
þeim,“ sagði lögregluþjónn nokkur.
Þessi ofbeldisalda hefur vakið
ótta um hvað geti gerst þegar þing-
kosningar fara fram, en þær em
áætlaðar hinn 3. mars næstkom-
andi. „Þetta sýnir glögglega að
stjómin getur ekki vemdað líf og
eignir borgaranna. Þið getið rétt
ímyndað ykkur hvað gæti gerst ef
af þingkosningunum verður,“ sagði
Tofael Ahmed, einn forsvarsmanna
stjómarandstöðunnar, en hún
hyggst sniðganga fyrirhugaðar
Bandaríkin:
Allsnarpur
jarðskjálfti í
Los Angeles
Los Angeles, Reuter.
SNARPUR jarðskjálfti gekk
yfir Los Angeles og nágrenni
í gærmorgun og olli hann
nokkrum usla. Háhýsi hristust
til, rúður brotnuðu og lauslegir
hlutir hrundu úr hillum. Að
sögn yfirvalda höfðu um 30
manns siasast, fiestir þó óvem-
lega, og eignatjón virtist iítið.
Bandaríska jarðfræðistofnunin
sagði að skjálftinn hefði verið 4,7
stig á Richters-kvarða og átti
hann sér stað klukkan 7.26 að
morgni — eða tæplega hálf fjögur
eftir hádegi að islenskum tíma. í
Los Angeles búa að minnsta kosti
8,3 milljónir manna.
Skjálftinn fannst greinilega
um langa vegalengd, meðal ann-
ars til Las Vegas, sem er um 400
km norðaustur af Los Angeles,
og suður til San Diego, í 250 km
Qarlægð.