Morgunblaðið - 12.02.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988
Aðgerðarleysi stjómvalda
má líkja við eignaupptöku
- segir Ólafur M. Ólafsson stjórnarfor-
maður f iskvinnslunnar hf. á Seyðisfirði
Sambandið:
Ráðinn
fulltrúi
forstjóra
ERLING Aspelund hefur verið
ráðinn fuiltrúi forstjóra Sam-
bandsins. Hann tekur til starfa
15. febrúar nk.
Hlutverk Erlings í fyrstunni
verður m.a. að skipuleggja starfs-
menntun í tengslum við hin nýju
tölvukerfí Sambandsins. Jafn-
framt mun hann vinna að skipu-
lagningu á þjálfun og fræðslu
starfsfólks með auknu námskeiða-
haldi í tengslum við áamvinnu-
skólann Bifröst. Loks mun Erling
vinna að nýjum stöðlum í starfs-
mannamálum, hafa umsjón með
gerð starfslýsinga og framkvæmd
frammistöðumats.
Erling, sem er fæddur 28. fe-
brúar 1937, hefur sl. þijátíu ár
Erling Aspelund
starfað hjá Loftleiðum og síðar
Flugleiðum og hefur auk þess
verið mjög virkur í félagsmálum
ýmiss konar. Hann er kvæntur
Kolbrúnu Þórhallsdóttur og eiga
þau fjögur böm.
(Fréttatilkynning)
„ÁSTANDIÐ er svo bölvað í
frystingunni, að líkja má að-
gerðarleysi stjórnvalda við
eignaupptöku. Við töpuðum
800.000 krónum í janúar. Marg-
ir hafa vafalaust tapað meiru.
Siðan vindur þetta allt upp á
sig og dæmið verður vonlaust.
Nú þyrftu menn að hafa þrek
til að hætta rekstrinum og lofa
fólki að sjá hvaðan það fær
gjaldeyrinn. Sjá af hverju það
lifir,“ sagði Ólafur M. Ólafsson,
stjórnarformaður Fiskvinnsl-
unnar hf. á Seyðisfirði, í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Allir, sem í þessu eru, vita að
menn eru að þrauka í þeirri bjart-
sýnu von að þetta lagist einhvem
tíma. Rekstrargrundvöllurinn
hvarf í júlí eða ágúst á síðasta ári
og staðan fer hríðversnandi. Þessi
atvinnuvegur varð fyrir feikilegum
áföllum á ámnum 1983 og 1984.
Þá vom málin leyst með skuld-
breytingum. Nú er staðan enn
verri en þá, en ekkert virðist eiga
að gerast. Ég skil því ekki að
menn skuli láta bjóða sér að halda
rekstrinum áfram við svona von-
lausar aðstæður. Ég kann ekki að
leysa þessi mál, en til þess ættum
við að eiga nóg af fræðingum, sem
reyndar hafa gert krónuna að
engu á átta ámm.
Rekstrarafkoman er hryllileg
hjá frystihúsunum. Það hlýtur að
fara að koma að lokun þeirra allra.
Við vomm 800.000 krónum undir
strikinu í janúar. Við slíkar að-
stæður halda menn ekki lengi
áfram og fleiri eiga bágt en við.
Það verður að stoppa þetta, menn
verða að hafa þrek í sér til að
hætta rekstrinum, ef ekki er búið
að að sjúga það allt úr þeim. Verði
ekkert gert, er bezt að við hættum
og látum menn sjá á hveiju þeir
lifa. Það mætti þá alveg eins af-
henda ríkinu þessi fyrirtæki til
eignar og rekstrar. Þá emm við
komin á kaf í kommúnismann og
það er kannski ekkert verra en
þessi hálfkommúnismi, sem við
búum við. I það minnsta er ekki
hægt að segja annað, en að með
núverandi stöðu er ríkið að gera
eignir frystingarinnar upptækar.
Það hlýtur að vera kominn tími
til að huga að pennastrikinu hans
Ólafs Thors. Strika yfir skuldimar.
Þá má ekki gleyma markaðnum
í Bandaríkjunum. Ef við ætlum
að glata honum vegna heimatilbú-
ins vanda og verðbólgu, sem
stjómmálamennimir ráða ekki við,
er fiskiðnaður okkar kominn tæpt
á brún hengiflugsins," sagði Ólaf-
ur M. Ólafsson.
I/EÐURHORFUR í DAG, 12.2.88
YFIRLIT í gær: Yfir Norður-Grænlandi er 1.012 mb hæð en hæg-
fara 980 mb lægð skammt suður af Jan Mayen. Skammt suöur
af Vestmannaeyjum er 983 mb lægð á leið aust-suð-austur. Vax-
andi lægð langt suð-vestur í hafi ó hreyfingu norð-austur. Kalt
verður áfram.
SPÁ: Áfram verður norð-vestlæg eða breytileg átt, víðast gola eða
kaldi. Él á Norð-Austurlandi og á stöku stað með suðurströndinni
en víðast þurrt annars staðar. Frost á bilinu 2—14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Norð-austanátt með snjókomu eða
slyddu austanlands, óljum norðanlands en þurru veðri suö-vestan-
lands. Frost 0—8 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Norðan- og norð-vestanátt með éljum
norðanlands en björtu veðri syðra. Áfram frost um allt land, víðast
á bilinu 4—10 stig.
ó
N: x Norðan, 4 vindstig: 10 Hitastig:
^ Vindörin sýnir vind- 0 gráður á Celsius
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * ■ V Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning — Þoka
/ / / — Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 Súld •
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * -4- Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hltl +6 4« veður skýjað akýjað
Borgen 3 akýjað
Helainki 1 snjókoma
Jan Mayen 1 slydda
Kaupmannah. 3 skýjað
Narssarssuaq +18 lóttskýjað
Nuuk +10 alskýjað
Osló 3 rigning
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 1 aký|að
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 6 lóttskýjað
Aþena vantar
Baicelona 13 skýjað
Berlln 8 skýjað
Chlcago +7 anjókoma
Feneyjar 8 lértskýjað
Frankfurt 8 hálfskýjað
Glasgow 8 úrfcoma
Hamborg 4 súld
Las Palmas 18 skýjað
London 6 skýjað
Los Angeles 14 heiðskfrt
Lúxemborg 0 snjóél
Madrid 8 mlstur
Malaga 16 léttskýjafi
Mallorca 16 skýjað
Montreal +14 akýjað
NewYork +3 hálfskýjað
Paria 7 alakýjað
Róm 13 háKskýjað
Vín 8 skýjað
Washlngton +2 Þokumóða
Wlnnipeg vantar
Valencia 16 léttskýjaö
Kvosarskipulagið:
Töfin veldur óþægind-
um og kostar mikið fé
— segir Fnðrik Pálsson forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
VEGNA tafa sem orðið hafa á
afgreiðslu skipulags í mið-
bænum, Kvosarskipulags, hafa
fyrirhugaðar byggingarf ram-
kvæmdir Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna við Aðalstræti 8
dregist um fjóra mánuði, að
sögn Friðriks Pálssonar for-
stjóra.
„Á meðan Kvosarskipulagið
fæst ekki staðfest, gerum við ekk-
ert,“ sagði Friðrik. „í haust áttum
við von á að geta hafíst handa
innan nokkurra daga þegar skipu-
lagið í heildina fór að þvælast um
í kerfinu. Það er búið að draga
okkur á svari allan þennan tíma
og hefur komið sér illa fyrir okk-
ur. Við ætluðum að vera búnir
með bygginguna. Töfín hefur
valdið miklum óþægindum og
kostað okkur mikið fé að auki.“
Lögreglan í Reykjavík:
Upplýsingar veitt-
ar um umferðarlög
LÖGREGLAN í Reylqavík ætl-
ar að veita þeim, sem vilja fræð-
ast um ný umferðarlög, upplýs-
ingar i síma virka daga frá kl.
14-16. Þessi símaþjónusta lög-
reglunnar hefst á mánudag, 15.
febrúar, og stendur til mánaða-
móta, en þá ganga nýju um-
ferðarlögin i gildi.
Lögreglumennimir við símann
svara spumingum sem varða
beinlínis þátt löggæslunnar í nýju
lögunum. Ef ekki reynist unnt að
gefa fullnægjandi svör um leið,
verður nánari upplýsinga aflað og
þeim komið til fólks síðar. Síminn
hjá þessari upplýsingaþjónustu
lögreglu er 68-36-35 og sem fyrr
segir er byrjað að svara í símann
á mánudaginn.
Þ ingmannanefnd
sett í refamálin
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveð-
ið, að tillögu Jóns Helgasonar
landbúnaðarráðherra, að skipa
þingmannanefnd með fulltrú-
um stjómarflokkanna til að
ræða vanda refabænda. Jón
Helgason segist hafa beðið for-
menn flokkanna að tilnefna
sem fyrst menn í nefndina
þannig að hún gæti fljótlega
hafið störf.
Jón sagði að búið væri að vinna
töluverða undirbúningsvinnu og
vonaðist hann til að nefndin gæti
komist að sameiginlegri niður-
stöðu sem fyrst. Aðspurður um
hvað helst kæmi til greina að
gera sagði landbúnaðarráðherra
að annars vegar þyrfti að lækka
rekstrarkostnað, til dæmis fóður,
og hins vegar'að stuðla að verð-
meiri framleiðslu.
INNLENT