Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988
Teká þessu eins
og óþurrkasumri
- segir Vífill Búason á Ferstiklu sem
reiknar með að þurfa að slátra upp
úr sjókvíum sínum vegna kuldans
„ÉG bíð átekta, veðrið er það
slæmt eins og er og ekki borgar
sig að eiga við fiskinn. Ég geri
ráð fyrir að þurfa að slátra öll-
um fiskinum og hef þegar feng-
ið ágætt tilboð í hann,“ sagði
Vífill Búason bóndi á Ferstiklu
á Hvalfjarðarströnd, en hann er
með sjókvíaeldi sem aukabú-
grein með kúabúi sínu.
Vífill sagðist vera með regn-
bogasilung og laxa í kvíunum,
Selfoss:
Sverrir gestur
á þorrablóti
Sverrir Hermannsson alþingis-
maður verður gestur á þorrablóti
Sjálfstæðismanna á Suðurlandi, en
það verður haldið í Inghóli á Sel-
fossi laugardaginn 13. febrúar nk.
Blótið hefst klukkan 20 og verður
dansað fram eftir nóttu.
líklega rúmlega 10 tonn. Hann
sagðist vera búinn að selja silung-
inn til Evrópu fyrir ágætt verð.
Laxinn væri í smærra lagi, eða
1—2 kg að þyngd, og þó hann
hefði fengi ágætt tilboð í hann frá
Frakklandi væri hann mun ódýrari
vara en lax sem hægt væri að ala
yfír 3 kíló. Taldi hann að laxinn
væri að miklu leyti lifandi en
líflftill. Ekki borgaði sig að hreyfa
við honum því minnsta hreyfing
gæti orðið til þess að hann dræpist
alveg. Því myndi hann biða betra
veðurs og reiknaði með að slátra
þá upp úr kvíunum.
Vífíll hefur minnkað kúabúið á
undanfömum árum og tekið upp
fískeldi sem aukabúgrein til að
vega upp tekjutapið. „Ég sé fram
á að verða kauplaus í fiskeldinu
þessi tvö árin sem ég hef verið
með það. En ef ég hefði getað
slátrað við eðlilegar aðstæður hefði
ég haft góð laun. Ég er þó ekkert
banginn við að halda þessu áfram.
Maður verður áð taka á þessu eins
og óþurrkasumri, maður hættir
ekki búskap út af þvi,“ sagði Vífíll.
Morgunblaðið Arnór
Sveit Alan Sontag varð í öðru sœti á bridshátíð í fyrra, talið frá
vinstri Alan, Billy Eisenberg, Granovetter-hjónin og Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða, sem afhenti verðlaun mótsins.
Bridshátíð 1988 hefst í kvöld:
Færri útlending-
ar en oft áður
Heildarverðlaun nema 10 þúsund dölum
Bridshátíð hefst i kvöld kl.
20. á Hótel Loftleiðum. Um 250
spilarar taka þátt i mótinu, þar
af 6 erlend pör, sem er nokkuð
minni þátttaka en undanfarin
ár. Hins vegar eru þetta allt
þekktir spilarar i bridsheimin-
um sem koma á Brídshátíð ár
eftir ár eins og Zia Mahmood
og Alan Sontag. Þá má og
nefna sænska landsliðið, P.O.
Sundelin, Anders Morath,
Tommy Gullberg og Hans Göt-
he en þeir hafa allir spilað á
Brídshátíð áður.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson, setur mótið kl.
20 en strax á eftir hefst tvímenn-
ingskeppnin með þátttöku 48
para. Aætlað er að henni ljúki um
kl. 18 á morgun, en á sunnudag
kl. 13 hefst Opna Flugleiðamótið,
sem er sveitakeppni. Þar eru 48
sveitir skráðar til leiks,. sem er
hámarksþátttaka vegna þess að
húsnæðið tekur ekki fleiri. í þess-
ari keppni gefst hinum almenna
bridsspilara kostur á að etja kappi
við góða bridsspilara, erlenda sem
innlenda þ.e.a.s. ef heppnin er
með þeim í leiknum því spilað er
eftir Monrad-kerfí.
Verðlaun í mótinu eru mjög
vegleg - samtals 10 þúsund dalir.
í tvímenningskeppninni eru verð-
launin 6200 dalir og 3800 dalir í
Opna mótinu. í tvímenningnum
eru fyrstu verðlaun 1800 dalir,
önnur verðlaun 1200 dalir, þriðju
verðlaun 800 dalir þá 600, 500,
400, 300 dalir og fyrir 8.-10.
sætið eru verðlaunin 200 dalir. I
sveitakeppninni eru þrenn verð-
laun, 2000, 1200 og 600 dalir.
Góð aðstaða verður fyrir áhorf-
endur og verða leikir í Flugleiða-
mótinu sýndir á sýningartöflu og
sjónvarpsskermum í ráðstefnusal.
Agnar Jörgensson verður keppn-
isstjóri en hopnum til aðsatoðar
Jakob Kristinsson. Reiknimeistari
er Vigfús Pálsson en mótsstjóri
Sigmundur Stefánsson.
Morxunblaðið/RAX
Starfsmenn Strandar hf. i Hvalfirði vinna við slæm skilyrði að und-
irbúa háfun á laxi úr sjókvi i fyrradag.
Loðnuskip-
in að skipta
umnætur
NÆR allur loðnuflotinn er um
þessar mundir að skipta yfir á
grunnnót, þar sem loðnan er
komin upp á 60 faðma dýpi í
Berufjarðaráli og á Papa-
grunni. Skipin hafa því mörg
hver faríð inn með slatta um
leið og þau hafa skipt um nót.
Auk þeirra skipa, sem áður er
getið, voru eftirtajin með afla á
miðvikudag: Gísli Ámi RE 640 og'
Húnaröst AR 600 til Homafjarð-
ar, Júpíter RE 1.100 til Reykjavík-
ur, Dagfari ÞH 250 til Grindavík-
ur, Eskfirðingur SU 530 til Eski-
^arðar, Þórður Jónasson EA 670,
löndunarstaður óákveðinn, Hilmir
II SU 580 og ísleifur VE 730 til
Vestmannaeyja.
Síðdegis á fímmtudag voru eft-
irtalin skip búin að tilkynna afla:
Keflvkingur KE 510 til Hafnar-
fjarðar, Jón Kjartansson SU 550
til Eskifjarðar, Hrafn GK 650 til
Grindavíkur, Börkur NK 300 til
Neskaupstaðar, Gísli Ámi RE 530
til Homaijarðar, Kap II VE 200,
Bergur VE 530 og Sighvatur
Bjamason VE 440 til Vestmanna-
eyja.
Sjókvíar:
Frostið í Hvalfirði
fór í 1,6 stigí gær
Lax byrjaður að drepast hjá Snælax í Grundarfirði
FROSTIÐ í sjónum í sjókvíum
Strandar hf. I Hvalfirði fór niður
í 1,6 stig í gær, að sögn Finns
Garðarssonar stöðvarstjóra, og
eru laxaseiði farín að drepast í
stórum stíl til viðbótar matfiskin-
um. í gær tókst starfsmönnum
fyrírtækisins að ná á land þeim
laxi sem eftir var i þeirrí sjókví
sem reynt var að slátra upp úr
í fyrradag. Laxalónsmenn hafa
ákveðið að slátra ekki upp úr
kvíum sínum í Hvammsvík en
Vífill Búason á Ferstiklu reiknar
með að þurfa að slátra sínum
laxi þegar veður skánar. Sjórínn
við kvíar Snælax hf. í Grundar-
firði snöggkólnaði í vikunni og
hefur lax í einni kvi drepist.
Hjá Strönd hf. eru komin 3—4
tonn af laxi á land og er meirihluti
hans óblóðgaður. Fiskurinn er sölu-
vara þrátt fyrir það, en verðminni.
Var unnið að pökkun hans á Akra-
nesi í gær en búið er að selja laxinn
til Frakklands.
Finnur sagði að slátrað yrði upp
úr hinum kvíunum þegar veðrið
batnaði. Hann sagði að enginn físk-
ur þyldi það frost sem nú er í Hval-
Ottó Wathne
ENN er lítið framboð að ferskum
fiski í Bretlandi og verð því gott.
Brælur í Norðursjó hamla veið-
um heimabáta og hér hefur afli
verið tregur og því lítið sent ut-
an.
Ottó Wathne NS seldi á fímmtu-
dag 102 tonn, nær allt þorsk í
Grimsby. Heildarverð var 8,8 millj-
ónir króna, meðalverð 86,83. Ottó
er eina íslenzka skipið, sem selur
afla sinn f Bretlandi í þessari viku
og aðeins voru þar seld um 640
tonn úr gámum.
firðinum og sagði að nú væru seið-
in í sjókvíunum farin að fljóta upp
í stórum stíl. Stjómendur Strandar
eru nú að athuga hvort hægt sé
að gera verðmæti úr þeim, til dæm-
is með niðursuðu.
Stjómendur Laxalóns hafa
ákveðið að hreyfa ekki við regn-
bogasilungnum og laxaseiðunum
sem em í sjókvíum fyrirtækisins í
Hvammsvík í Hvalfírði. Ólafur
Skúlason framkvæmdastjóri sagði
að ekki væri vinnandi vegur að
slátra upp úr kvíunum nema leiga
stórt skip og væri það of dýrt. Þá
væri viðbúið að þeir fískar sem enn
væru lifandi dræpust við minnsta
stress og því best að láta þá í friði
og vona að eitthvað af físki lifði
af. Þeir fískar gætu orðið vísir að
stofni sem betur þyldi kuldann.
Ólafur sagði þeir hefðu verið við-
búnir því að þurfa að slátra snögg-
lega upp úr kvíunum ef hitastigið
færi svona langt niður en ísinn sem
lagðist að kvíunum hefði komið í
veg fyrir það í þetta sinp. Laxalón
er með regnbogasilungsseiði í eldi
í stöð sinni á Fiskalóni í Ölfusi og
verða þau sett í sjókvíamar í
Hvammsvík í vor.
Sjórinn í kvíum Snælax hf. í
Grandarfírði hefur kólnað að und-
anfömu og hefur lax í einni kví
drepist. Guðmundur Smári Guð-
mundsson sagði að aðfaranótt mið-
vikudags hefði sjórinn snöggkólnað
úr 2 stiga hita í V2 stigs frost. Við
það drápust laxar í kví sem er upp
við land en í henni vora 200 fiskar
sem kreistir vora til klaks í haust.
Guðmundur Smári sagði að þeir
Snælaxmenn væra hálf uggandi
vegna kuldans en þeir vonuðu það
besta. í gær var hitastigið við sjó-
kvíamar við frostmark.
Hitastigið við kvíamar á Sundun-
um við Reykjavík var rétt yfir frost-
marki í gær og hefur verið það
undanfama daga. Einar Sigurjóns-
son stöðvarstjóri Haflax hf., sem
er með kvíar í Eiðisvík, sagði að
hitastigið hefði ekki áður farið
svona neðarlega þann tíma sem
fyrirtækið hefði verið með kvíar
þama. Hann sagðist ekki gefa lax-
inum, til að forðast óþarfa stress,
fískurinn ætti nóg með að halda í
sér lífinu.
Hjá Mánalaxi í Norðfirði er sjáv-
arhitinn 2—3 stig að sögn Gylfa
Gunnarssonar framkvæmdastjóra.
Hann sagði að fiskurinn hefði það
fínt og taldi að engin hætta væri á
ferðum nema ef hafísinn kæmi. Þá
væri allt ónýtt.
Að sögn Páls Gústafssonar fram-
kvæmdastjóra ÍSNO hf. er ekki
nein hætta á ferðum í sjókvíastöðv-
um fyrirtækisins. Sjávarhitinn væri
eðlilegur á báðum stöðum, 3 stig í
Lónum í Kelduhverfi og 6 stig við
V estmannaeyj ar.
Bókmennta-
kynning á
Kjarvals-
stöðum
í TILEFNI af sýningunni
Sjálfsmyndir, efna Kjarvals-
staðir til bókmenntakynning-
ar á sjálfs-
ævisögum íslenskra rithöf-
unda.
Þar verður lesið úr verkum
Þórbergs Þórðarsonar, Hall-
dórs Laxness og Sigurðar A.
Magnússonar, auk þess sem
rithöfundamir Ámi Bergmann
og Pétur Gunnarsson koma og
lesa úr verkum sínum.
Dagskráin hefst kl. 15.00 á
morgun, laugardaginn 13. fe-
brúar, á Kjarvalsstöðum.
(Fréttatilkynning)
seldi erlendis