Morgunblaðið - 12.02.1988, Page 23

Morgunblaðið - 12.02.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 23 Aðild leiðtoga Panama að kókaín-smygli til Bandaríkjanna: Noríega hefur leikið tveim skjöldum til að auðgast HEAD SPORT5 WEAR ■■■■ HEADer ódýrara á íslandi - segir fyrrum aðstoðarmaður hans Jose Blandon Washington, Reuter. JOSE Blandon fyrrum aðstoðar- maður Manuels Noriega hers- höfðingja, þjóðarleiðtoga í Pan- ama, lýsti honum sem „mang- ara“, sem hefði notfært sér skoðanaágreining milli ná- grannalandanna til að auðgast. Sagði Blandon að Noriega hafi leikið tveim skjöldum í þeim til- gangi að hafa fé af sem flestum. Blandon hefur verið yfírheyrður. í tvo daga af nefnd skipaðri banda- rískum öldungadeildarþingmönn- um, sem flalla á um aðild Noriega að kókaín-smygli til Banda- ríkjanna, en hann var ákærður fyrir aðild að víðtæku smygli í Florída í síðustu viku. Blandon segir Noriega hafa: Þénað milljónir Bandaríkjádala með því að aðstoða eiturlyfja- smyglara frá Kolumbíu við að smygla kókaíni óg marijúana til Bandaríkjanna. Att náin samskipti við eiturlyfja- deild bandarísku lögreglunnar (DEA) sem hafi talið hann vinna ötullega að því að koma í veg fyr- ir eiturlyflasmygl til Banda- ríkjanna. Séð uppreisnarmönnum, sem beij- ast gegn stjóminni í E1 Salvador sem Bandaríkjamenn styðja, fyrir vopnum, gegn ríflegri þóknun. Leyft kontra-skæruliðum að þjálfa hermenn í Panama eftir að Oliver North þáverandi ráðgjafi í Hvíta húsinu hafi farið þess á leit ~við Noriega. Beðið Fidel Castro leiðtoga Kúbu að beiðni George Bush, um að ráð- ast ekki á bandarískar hersveitir við innrásina í Grenada. Farið þess á leit við Castrð að þyrlum, peningum og tækjum sem tekin voru af eiturlyfjasmyglurum . yrði skilað. Aðstoðað Kúbani við að afla há- Reuter Floyd Carlton flugmaður fer með eiðstafinn við vitnaleiðslur vegna rannsóknar á aðild Noriega leiðtoga Panama að eiturlyfjasmygli til Bandaríkjanna í gær. Vegna öryggis hefur Carlton hettu á höfði. tæknibúnaðar frá Bandaríkjunum og selt fyrir þá rækju og tóbak, þrátt fyrir 27 ára viðskiptabann. Átt nána samvínnu við leyniþjón- ustumenn í Bandaríkjunum, meðal annars hafi hann hitt fyrrum yfir- - mann bandarísku leyniþjónustunn- - ar, William 'Casey, í Washington < og fengið leynilegar upplýsingar. Noriega hefiir skýrt frá því opin- berlega að ásakanirnar séu upp- spuni og ætlaðar til þess að bola honum frá völdum svo Bandarílcj- mepn geti framfylgt þeirri áætlun sinni að ná yfirráðum yfir Panama- skurðinum fyrir árið 2000. George Bush hefur neitað að hann hafi átt umrædd samskipti við Noriega. Bandaríska leyniþjónustan (CIA) neitar að hafa veitt honum upplýs- ingar, enda varði það við lög. Hundafárið á Grænlandi: Bandarískí flug- herinn aðstoðar Nuuk. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbiaðsins. BANDARÍSKI flugherínn ætlar að veita aðstoð vegna hinna stór- felldu vandræða, sem nú steðja að í nyrstu byggðum Vestur- Grænlands, þar sem hundafár (,,distemper“) hefur lagt nærri helm- ing sleðahunda að velli. Mun flugherinn fljúga með vistir, olíu ,og snjósleða til vetraraðseturs veiðimannanna. Veiðimennimir í- Thule komast ekki til veiða án sleðahunda, og eru samningaviðræður í gangi um, að flugherinn flytji til þeirra nýja hunda, sem keyþtir yrðu sunnar L landinu. Landstjómarmennirnir Kaj Egede og Emil Abelsen eiga í samningaviðræðum um þetta efni • við yfirmann bandarísku herstöðv- arinnar, William Pine. Grænlenska landstjómin hefur hleypt af stokkunum fjjirsöfnun til styrktar veiðimönnunum, og í ráði er að fljúga með. matvæli til þeirra. Veiðimennimir og fjölskyldur þeirra hafa takmarkaðar matar- birgðir og eru illa sett, þegar ekki er hægt að fara til veiða. Yfirdýralæknisembættið hefur fyrirskipað bólusetningu gegn hundafárinu, og er ætlunin að bólusetja alla sleðahundá á Grænl- andi, um 30.000 talsins. Kostnað- urinn verður um 1,8 milljónir dan- skra króna (um 10 millj. ísl. kr.), og eru hafnar viðræður milli land- stjómarinnar og danskra stjórn- valda um skiptingu hans. Heil- brigðisþjónusta á Grænlandi heyrir undir danska ríkið. ' í Danmörku er nú unnið að því á hinum pólitíska vettvangi að efla dýralæknisþjónustuna á Grænl- andi. Hans Pavia Rosing, eini grænlenski þingmaðurinn sem . á sæti á danska þjóðþinginu, hefur lagt málið fyrir heilbrigðisráðher- rann með ósk um, að komið verði á fót föstu embætti dýralæknis í sleðahundahéruðunum. Aðeins tveir dýralæknar em nú í Grænl- andi, yfirdýralæknirinn í Nuuk og dýralæknir, sem aðsetur hefur á Suður-Grænlandi og sinnir einkum sauðfjárbúskapnum. . Talið er, að hundafárið hafi bor- ist til Grænlands frá Kanada, þar sem sjúkdómurinn hetjaði í nóv-' embermánuði síðastliðnum. Yfír- dýralæknirinn í Nuuk, Sören Holck, hefur beitt sér fyrir auknu samstarfi við kanadíska dýralækna í því skyni að þessir aðilar geti gert hvorir öðrum viðvart, þégar farsóttir skjóta upp kollinum. Opiðfrákl. 10-4 laugardag. LAUGARDAGSKVOID I SÚLNASM (ft'cÁki' cázuÁuA/ Söngieikurinn byggist á tónlist MagnúsarEiríkssonar. Sagan um íslenska dægurstjörnu, frægðarleit og drauma. Og um raunveruleikann sem tekur við af draumum. Aðalhlutverk: Palmi Gunnarsson, Johanna Linnet, Eyjólfur Kristjánsson og Ellen Kristjánsdóttir. Leikstjóri: Valgeir Skagfjörð. Næturgalakvöld í Súlnasal er leikhúsferð, danssýning, skemmtikvöld, matarveisla og ball; allt einum ógleymanlegum pakka. Miðaverð aðeins kr. 3200. Munið helgarpakkana, og nýjung a Hotel Sogu: helgargistingu fyrir höfuðborgarbúa. PÖNTUNARSIMI 1»

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.