Morgunblaðið - 12.02.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988
Áburðarverðið
hækkar um 22,5%
Rekstrarkostnaður Aburðarverk-
smiðjunnar hækkaði um 4% á heilu ári
ÁBURÐARVERÐIÐ hækkar í
vor að meðaltali um 22,5% frá
því verði sem gilti síðastliðið vor.
Meirihluti hækkunarinnar, eða
18,5%, er vegna Iækkunar á nið-
urgreiðslu ríkisins á áburðar-
verði en aðeins 4% eru vegna
hækkunar á rekstrarkostnaði
Áburðarverksmiðjunnar i Gufu-
nesi.
Stjórn Áburðarverksmiðjunnar
Húsfyllir var i Bióborginni á fundi Dagsbrúnar i gær.
Fjölmennur fundur Dagsbrúnar:
Verkfallsheimild samþykkt
með yfírgnæfandi meirihluta
lagði til að áburðurinn hækkaði um
22,5% og ^taðfesti Jón Helgason
landbúnaðarráðherra hækkunina í
gær eftir að hafa kynnt málið í
ríkisstjórninni í gærmorgun.
Hákon Björnsson framkvæmda-
stjóri Áburðarverksmiðjunnar sagði
að eftir hækkunina myndi áburðar-
tonnið kosta að meðaltali 14.276
krónur. Hann sagði að áburðarnið-
urgreiðsla ríkisins lækkaði úr 120
milijónum í 20 milljónir kr. og hefði
það eitt í för með sér 18,5% hækk-
un áburðarins. Afgangurinn, eða
4%, væri vegna kostnaðarhækkana.
Sagði Hákon að þessi litla hækkun
kostnaðar á heilu ári væri aðallega
vegna hagstæðrar gengisþróunar
fyrir fyrirtækið og lækkun launa-
kostnaðar vegna fækkunar starfs-
fólks. En einnig hefði fjármagns-
kostnaður minnkað vegna þess að
tekist hefði að greiða skuldir fyrir-
tækisins verulega niður á undan-
fömum árum.
Reiðubúnir til átaka, segir Guðmundur J. Guðmundsson
ALMENNUR félagsfundur í
verkamannafélaginu Dagsbrún í
Reykjavík samþykkti heimild til
stjórnar og trúnaðarmannaráðs
að boða til verkfalls ef kjarasamn-
ingar takast ekki í komandi samn-
ingaviðræðum. Ekki var kveðið
nánar á um tímasetningu verk-
falls, en í máli Guðmundar J.
Guðmundssonar, formanns
Verkamannasambands íslands og
Dagsbrúnar, kom fram að verk-
Guðmundur Valdimarsson
Frá reykköfunar- og björgunaræfingu skipsmanna af Beskytteren
um borð í vs Óðni sl. mánudag.
Landhelgisgæslan:
Sameiginleg leitaræf-
ing með Beskytteren
og Yarnarliðinu
Landhelgisgæslan, danska
varðskipið Beskytteren og Varn-
arliðið á Keflavíkurflugvelli
standa að sameiginlegri leitar- og
björgunaræfingu i dag. Æfingin
átti að hefjast með þvi, að Beskytt-
eren setti út gúmbjörgunarbát um
miðnættið. Báturinn átti reka og
leit síðan skipulögð að honum með
birtingu. Fyrr i vikunni æfðu
Landhelgisgæslan og Beskýtteren
björgun úr brennandi skipi. Æf-
ingar þessar eru liðir i auknu sam-
starfi þessara aðila, einkum varð-
andi björgunar- og eftirlitsstörf á
hafinu milli Islands og Grænlands.
Það eru Fokker flugvél Landhelg-
isgæslunnar, TF SYN, og þyrlan, TF
SIF, sem taka þátt í æfingunni af
Islands hálfú. Frá danska sjóhemum
koma varðskipið Beskytteren og
Grumman Gulfstream flugvél og
Vamarliðið sendir þyrlu og Orion P-3
flugvé]. Æfingunni er stjómað frá
stjómstöð Landhelgisgæslunnar. Við
skipulagningu leitarinnar verður not-
uð tölva, sem forrituð er til að raða
leitartækjum niður á svæðið og
skipuleggja yfirferð þeirra og leitar-
staðsetja leitarsvæðið miðað við
strauma, vinda, og sfðustu kunnu
staðsetningu bátsins. Þá segir tölvan
til um það, hve mörg og hvers konar
tæki þarf til að leita á svaeðinu, sem
til greina kemur.
Landhelgisgæslan og Beskytteren
héldu aðra sameiginlega æfingu
síðastliðinn mánudag. Þar æfðu Dan-
imir að taka skip í tog og drógu
varðskipið Óðin. Um leið æfði áhöfn
danska skipsins björgun úr brenn-
andi skipi, sendir voru reykkafarar
og slökkvitæki um borð í Óðin og
æfð björgun manns úr reykfullu vél-
arrúmi.
Aðalhvatamaður að þessum æf-
ingum er skipherrann á Beskytteren,
Axel Fiedler, en hann hefur unnið
ötullega að því að koma þeim á, allt
frá því'hann var yfirmaður í dönsku
Flotastöðinni í Grennedal á Grænl-
andi fyrir tveimur ámm.
Þessar sameiginlegu æfingar þjóð-
anna þriggja era liðir í umfangs-
meira samstarfi en verið hefur um
leitar- og björgunarstörf. Áætlað er,
að fleiri æfingar verði á næstunni
og er tilgangur þeirra að samhæfa
aðgerðir, auk þess sem þær veita
fallsboðun myndi ráðast af við-
brögðum og undirtektum vinnu-
veitenda við þeim kröfum, sem
VMSÍ hefur nú sett fram. Hús-
fyllir var í Bíóborginni þar sem
fundurinn var haldinn, og var
verkfallsheimild samþykkt af öll-
uni þorra fundamanna, en tveir
voru á móti.
í upphafi fundarins gerði Þröstur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Dags-
brúnar, grein fyrir gangi kjarabar-
áttunnar á undanfömum misseram
og kjmnti nýjar tillögur að> kjara-
samningi, sem samþykktar voru á
formannafundi VMSÍ á miðvikudag.
í máli Þrastar kom meðal annars
fram að ákveðið hefði verið að fara
nýjar leiðir nú, þar sem reynslan í
síðustu samningum hefði sýnt að
yfirlýst stefna um hærri laun handa
hinum lægst launuðu hefði ekki náð
fram að ganga, heldur þvert á móti.
Því væri í hinum nýju tillögum lögð
áhersla á ýmis atriði til hliðar við
beinar kauphækkanir, svo sem
starfsaldurshækkanir, greiðslu til
launajöfnunar, lífaldursákvæði,
kaupmáttartryggingu og svo kjara-
bætur sem önnur félög hafa fengið
en VMSÍ ekki, svo sem desember-
uppbót og orlofsframlag.
Eftir að tillaga um verkfalls-
heimild hafði verið borin undir at-
kvæði og samþykkt sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson að verkföll væra
neyðarúrræði og að verkfallsheimild
yrði að beita með varúð. „En ef
henni er beitt þá verður að gera það
með hörku. Ef vinnuveitendur fara
að ræða við okkur í alvöru verður
Morgunblaðið/Þorkell
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSÍ og Dagsbrúnar,
í ræðustól.
henni að sjálfögðu ekki beitt, en ef
afstaða þeirra verður eins og hún
hefur verið að undanförnu verðum
við að búa okkur undir hörð átök,“
sagði Guðmundur. Hann sagði að
sú samstaða, sem Dagsbrúnarmenn
hefðu sýnt með því að fjölmenna á
þennan fund, væri afar þýðingar-
mikið veganesti í komandi kjara-
samningum. „í þessu félagi býr það
reginafl, sem getur skipt sköpum í
þessari baráttu og við höfum sýnt
það í dag að við eram reiðubúnir til
átaka," sagði Guðmundur ennfrem-
ur.
Aðrir úr hópi félagsmanna, sem
kvöddu sér hljóðs á fundinum, lýstu
allir yfir samstöðu með forystusveit
VMSÍ í komandi kjarasamningum.
Tónleikum
frestað
vegna
veikinda
EKKI getur orðið af tónleik-
um bassasöngvarans Paata
Burchuladze sem áttu að vera
í þessari viku vegna veikinda.
Söngvarinn er staddur á
landinu og hefur hann ákveðið
að fresta tónleikum í París í
næstu viku og halda tvenna
tónleika hér í staðinn. Hann
syngur hjá Tónlistarfélaginu í
Reykjavík í Háskólabíói kl.
19,15 miðvikudaginn 17.
febrúar og með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands laugardaginn 20.
febrúar kl. 14,30.
Hafnarf| ör ður:
Fjölgnn í
Finkirkjumii
Vegna fréttar í blaðinu um fjölda
í trúsöfnuðum hefur sr. Einar Ey-
jólfsson prestur í Fríkirkjusöfnuðin-
um í Hafnarfirði óskað að koma á
framfæri að í söfnuðinum hefur
meðlimum fjölgað úr 1676 í 1905
eða um 14% á árunum 1980 til
1987.
hraða. Tölvan aðstoðar einnig við að leitarmönnum góða þjálfun.
Athyglisverðustu auglýs-
ingarnar valdar í kvöld
ÍSLENSKI markaðsklúbbur-
inn, ÍMARK, efnir í kvöld,
föstudag, til auglýsingahátíðar
að Broadway og þar verður
þeim auglýsingum sem athygl-
isverðastar þóttu á síðasta ári
veittar viðurkenningar, Gjall-
arhornið svonefnda.
Flokkamir sem athyglisverð-
ustu auglýsingamar era valdar
úr eru alls átta. Sérstök dóm-
nefnd, skipuð fulltrúum ímark,
Sambands ísl. auglýsingastofa og
Háskólans, hefur tilnefnt fimm
athyglisverðustu auglýsingarnar í
hveijum flokki, og ein af þeim
mun hljóta Gjallarhomið sem at-
hyglisverðasta auglýsingin fyrir
þann tiltekna flokk.
Þannig verður veitt viðurkenn-
ing fyrir athyglisverðustu dag-
blaðaauglýsinguna, fyrir athyglis-
verðustu tímaritaauglýsinguna,
fyrir athyglisverðasta veggspjald-
ið, fyrir athyglisverðasta dreifi-
ritið, fyrir athyglisverðustu út-
varpsauglýsinguna, fyrir athyglis-
verðustu auglýsingaherferðina,
fyrir athyglisverðustu sjónvarps-
eða kvikmyndaauglýsinguna og
loks fyrir þá auglýsingu úr ein-
hveijum þessara framangreindra
flokka sem óvenjulegust þykir.
í flokknum um athyglisverð-
ustu dagblaðaauglýsinguna á
síðasta ári keppa þannig eftirtald-
ar auglýsingar: Ekki láta næsta
frí verða þitt síðasta, sem auglýs-
ingastofan Svona gerum við, gerði
fyrir Landlæknisembættið og heil-
brigðisráðuneytið, Listadún var
og er með AR tryggingu frá Sjóvá,
sem sama auglýsingastofa gerði
fyrir Sjóvá, Byltingarafmæli sem
Áuglýsingaþjónusta GBB gerði
fyrir Stöð 2, Til hamingju RÚV,
áfram RÚV sem GBB gerði einn-
ig fyrir Stöð 2 og loks Gott eftir
góða törn sem GBB gerði fyrir
Sól hf.