Morgunblaðið - 12.02.1988, Síða 40

Morgunblaðið - 12.02.1988, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 Margrét Kristjáns dóttir - Minning Fædd 3. júlí 1898 Dáin 8. febrúar 1988 Kveðja: Guðmundur Jósefsson t Mér er það bæði ljúft og skylt að minnast föðursystur minnar, Margrétar Kristjánsdóttur, sem lést á Sólvangi í Hafnarfírði, aðfaranótt 8. febrúar. Þar var hún búin að dvelja síðast- liðin 4 ár og hafði notið frábærrar umönnunar starfsfólksins. Eru því færðar bestu þakkir. Gréta, eins og hún var kölluð af frændfólki og vinum, var fædd að Reyðará í Lóni, Austur-Skaftafells- sýslu, 3. júlí 1898. Hún hefði því orðið 90 ára nú í júlí. Gréta var dóttir þeirra mætu hjóna, Guðnýjar Eyjólfsdóttur og Kristjáns Eiríkssonar. Guðný lést árið 1939 en Kristján í hárri elli 1965. Guðný og Kristján eignuðust 7 böm. Gréta var þeirra elst, næst komu Eyjólfur, Eiríkur, Sigurbjörg, Guðný, Bjöm og ýngst Guðlaug. Lifa nú þqú systkini systur sína, Sigurbjörg, Bjöm og Guðlaug. Fjöl- skyldan bjó á Núpi á Berufjarðar- strönd, en þaðan fluttist hún 1927 suður að Norðurkoti á Vatnsleysur strönd. Þar bjó hún um nokkurra ára skeið en fluttist svo inn í Voga. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur. Gréta giftist aldrei né varð bama auðið. Foreldrum sínum fylgdi Gréta ætíð og hélt með þeim heim- ili. Oft var gestkvæmt á heimilinu. Eg get fullyrt að böm systkina Grétu minnast hennar með þakk- læti. Hún var þeim traustur vinur þó stjómsöm væri. Eftir lát móður sinnar bjó Gréta áfram með föður sínum, afa mínum. Var hann lengi dyravörður við Austurbæjarskólann í Reykjavík eða á árunum 1939—60. Gréta vann heima, einkum við pijónaskap. Oft var erilsamt og mikil vinna hjá Grétu og þá gjaman fram eftir nóttu, ef svo bar undir, því klára varð það sem búið var að lofa. Gréta lagði líka fyrir sig sauma. Hafði hún meðal annars lært karlmanna- fatasaum. Svo langt sem ég man bjuggu afí og Gréta í lítilli íbúð. Það aftr- aði ekki gestagangi, þó þröngt væri. Var oft glatt á hjalla hjá þeim feðginum, þegar fjölskyldumar hittust. Segja má að samgangur var alltaf mikill á milli systkinanna og Ijölskyldna þeirra. Var það meira hér áður fyrr, á meðan menn gáfu sér tíma til að setjast niður og tala um daginn og veginn. Það var unun að heyra Grétu segja frá æsku- stöðvunum. Gréta átti við smá fötlun að stríða, hún hafði fengið lömunar- veiki sem bam, en þrátt fyrir hana lét hún það ekki aftra sér frá dag- legu amstri. Kom það sér þá vel, hve sálarsterk hún var. Þrátt fyrir að nóg væri að gera gaf Gréta sér tíma til að fara til útlanda, meðal annars fór hún til Norðurlandanna með strandferða- skipinu Heklu. Árið 1960 skiljast leiðir afa og Grétu, hann flyst til yngstu dóttur sinnar, er hjá þeim hjónum og böm- um þeirra í góðu yfírlæti uns yfir lauk. Þá er það sem Gréta flyst til frændfólks og vina. Var hún alltaf jafn ánægð hvert sem hún fór og þá helst ef hún gat rétt hjálparhönd. Síðari ár var Gréta að mestu háð systmm sínum, þeim Sigurbjörgu og Guðlaugu, og gat hún ávallt leit- að til þeirra. Enn einu sinni opna Guðlaug og Eiríkur heimili sitt og taka Grétu til sín og er hún hjá þeim í nokkur ár áður en hún fer að Sólvangi. Segir þetta sína sögu um heimilisfólkið á Borgarholts- braut 34, það er ætíð tilbúið að rétta hjálparhönd. Að leiðarlokum vil ég og fjöl- skylda mín þakka Grétu fyrir það sem hún reyndist okkur ætíð. Guðný K. Eiríksdóttir I dag er til moldar borinn tengda- faðir minn, Jón Ingimar Jónsson múrari frá Hafnarhólmi við Dranganes í Kaldrananeshreppi. Jón Ingimar fæddist að Hafnar- Fæddur 4. ágúst 1919 Dáinn 2. febrúar 1988 Kveðja frá barnabörnum: „Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Héðan skal halda, heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði, guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. hólmi 12. janúar árið 1917. Foreldr- ar hans voru Jón Konráðsson bóndi og smiður og Guðbjörg Gestsdóttir húsfreyja, og var Jón næstelstur tólf bama þeirra hjóna. Eru níu þeirra enn á lífi. Jón lagði leið sína ungur til höf- uðborgarinnar, eins og tíðkaðist Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgj’í friðarskaut." (Vald. Briem.) Elsku amma, við biðjum góðan guð að styrkja þig og styðja á þess- um erfíðu stundum og um alla framtíð. gjaman á þeim tíma. Þar ástundaði hann múraraiðn við Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan sveins- prófí árið 1955. Við iðn sína starf- aði hann allt til haustsins 1981 uns hann varð að láta af störfum vegna heilsubrests. Jón Ingimar kynntist tengda- móður minni, Helgu Charlotte Klitch frá Hannover í Þýskalandi, árið 1949 og giftu þau sig sama ár. Þeim varð fímm bama auðið. Elstur er Reynir Hólm, þar á eftir komu Sigrún Hólm, Haukur Frans, Jón Ingimar og yngstur er Stefán. Fjögur þeirra em gift og bamaböm- in em þegar orðin átta talsins. Viðkynning okkar Jóns varð sumarið 1970 er ég kynntist elsta syni hans. Þrátt fyrir að Jón væri dulur á tilfinningar sínar tókst strax með okkur einlæg vinátta. Ári síðar kom í heiminn nafni hans og elsti sonarsonur. Frá upphafi höfðu þeir mikið dálæti hvor á öðmm sem sýndi sig í miklum samskiptum þeirra og sterkri vináttu allt fram á hinstu stund. Það hefur alltaf verið gott að sækja Jón og Helgu heim og tíðum verið glatt á hjalla þegar öll fjöl- skyldan hefur verið þar saman kom- in, ekki síst þegar böm og bama- böm ásamt þeim dvöldu nokkrar vikur hvert sumar í sumarbústað þeirra við Hafnarhólm, á æsku- stöðvum Jóns sem áttu sterk ítök í honum. Á 71. afmælisdegi sínum, 12. janúar síðastliðinn, veiktist svo Jón aftur og andaðist að kvöldi 5. febrú- ar í Borgarspítalanum í Reykjavík. Með þessum orðum mínum vil ég þakka Jóni Ingimar Jónssyni samveruna í þessum heimi og um leið votta hans nánustu mína inni- legustu samúð. Anna Stefánsdóttir t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Söriaskjóli 82, Reykjavik, lést á gjörgæslu Landspítalans 10. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurjón Hallbjörnsson, Halldóra Sigurjónsdóttir, Baldur Karlsson, Erna Sigurjónsdóttir, Guðmundur Konráð Arnmundsson, Berglind Baldursdóttir, Sigríður Baldursdóttir, María Guðmundsdóttir, Jessica Bringham. t Útför fósturföður míns og tengdaföður, EYÞÓRS HALLSSONAR, fyrrverandi skipstjóra, , Siglufirði, verður gerð frá Siglufjarðárkirkju 13. febrúar kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hins látna er bent á minningarsjóö um drukknaða sjómenn á Siglufirði. Minningarspjöld liggja frammi í Sparisjóði Siglufjarðar. Karólina Hallgrímsdóttir, Haraldur Árnason. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GtJÐMUNDUR JÓSEFSSON fyrrv. húsvörður Hallveigarstöðum, Hátúni 4, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. febrúar kl. 15.00. Þeir sem vildu minnast hins látna eru beðnir að láta Sjálfsbjörgu, fólag fatlaðra, eða Hjartavernd njóta þess. Kristín Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Óskar Þ. Sigurðsson, Þóra Björgvinsdóttir, Jón Haraldsson og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS KATRÍN EINARSDÓTTIR, er lést sunnudaginn 7. febrúar verður jarðsungin frá ísafjarðarkap- ellu laugardaginn 13. febrúar kl. 14.00. Jón Kr. Jónsson, Sigríður Aðalsteins, Anna Jónsdóttir, Lúðvík Kjartansson, Elfsabet Jónsdóttir, Sveinn H. Valdimarsson, Unnur Brynjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona min, RAGNHEIÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR NORÐDAHL, lést í Borgarspítalanum 11. febrúar. Jarðarför auglýst síðar. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Grímur S. Norðdahl, Úlfarsfelli. t Faöir okkar, ÁRSÆLL JÓHANNSSON bóndi, Ljótarstöðum, Austur-Landeyjum, sem andaðist í Landspítalanum 8. febrúar, verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju laugardaginn 13. febrúar kl. 14.00. Börn hins látna. t Minningarathöfn um eiginmann minn og föður okkar, GRÉTAR HALLDÓRSSON, Hábæ, Vestmannaeyjum, sem fórst í Bandaríkjunum þann 19. september 1987, verður haldin laugardaginn 13. febrúar í Landakirkju, Vestmannaeyjum, kl. 14.00. F.h. varidamanna; Guðný Bóel Guðbjartsdóttir, Guðbjartur Grétar og Sigrún Harpa Grétarsbörn. Guðmundur Örn, Haraldur, Magnús Þór, Kristín, R. Þór- unn og María Júlia. Jón I. Jónsson múrari -Minning Fæddur 12. janúar 1917 Dáinn 5. febrúar 1988

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.