Morgunblaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B
69. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsíns
Málefni Afganistan ber á góma í Washington:
Skrifað verði und-
ir friðarsáttmála
áður en herliðið fer
Washington, Reuter.
EDÚARD Shevardnadze, utanrikisráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær
að stjórnin i Moskvu vildi að samkomulag yrði undirritað i friðarvið-
ræðunum um Afganistan i Genf áður en brottflutningur sovésks her-
liðs frá landinu hæfist. Sagði ráðherrann þetta er hann ræddi við
blaðamenn i upphafi seinni fundar hans með George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í Washington. Stangast þessi ummæli á við
það, sem haft var eftir talsmanni sovéska utanrikisráðuneytisins i
Moskvu, að sovéskt herlið yrði flutt brott þótt slitnaði upp úr samninga-
viðræðunum sem standa yfir í Genf.
„Það væri betra að gengið yrði frá
samningum í Genf,“ sagði Shev-
ardnadze við blaðamenn þegar verið
var að taka myndir af þeim Shultz
áður en fundur þeirra hófst í gær.
Var þetta svar ráðherrans við spum-
ingu um ummæli talsmanns sovéska
utanríkisráðuneytisins, Vadíms
Pfrífílíjevs, í síðustu viku þess efnis
að sovéskt herlið yrði kallað á brott
þótt ekki hefði tekist að semja í
Genf. Sagðist Shevardnadze raunar
ekki hafa vitað að talsmaðurinn hefði
sagt þetta. „Við sjáum hvað setur,“
bætti hann við.
Viðræður Shevardnadzes og
Shultz, sem hófust á mánudag og
lýkur í dag, hafa snúist um undirbún-
ing fjórða fundar Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gor-
batsjovs leiðtoga Sovétríkjanna.
Þrátt fyrir að afstaða Bandaríkja-
manna í málefnum Afganistan hafi
farið harðnandi að undanfömu og
Reuter
Sovésk
tíska
Efnt var til tískusýningar í
Moskvu nýlega til þess að
vekja athygli á að hafin er
útgáfa á nýju tískublaði, Sjúr-
nal Mod, i Sovétríkjunum.
Þessi samkvæmiskjóll var
framlag hönnuðarins Víjatsj-
eslavs Zaítsovs til sýningar-
innar sem að sögn viðstaddra
var afar glæsileg.
mikið beri á milli í afstöðu ríkjanna
til Nicaragua gaf Shevardnadze í
skyn á mánudag að Sovétmenn væm
reiðubúnir að ákveða dagsetningu
fyrir næsta leiðtogafund sem halda
á í Moskvu, að öllum líkindum í
maí. Shevardnadze mun í dag snæða
hádegisverð með Ronald Reagan.
Persaflóastríðið:
Reuter
Mitterrand kemur til frönsku sjónvarpsstöðvarinnar Antenne 2,
þar sem hann tilkynnti um framboð sitt.
Mitterrand
sækist eftúr
endurkjöri
París, Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, Frakk-
landsforseti, tilkynnti í gær-
kvöldi að hann mundi sækjast
eftir endurkjöri i forsetakosn-
ingunum 24. apríl og 8. maí
næstkomandi.
Mitterrand er 71 árs og jafnað-
armaður. Skoðanakannanir að
undanfömu hafa sýnt að hann
nýtur mun meira fylgis en helztu
keppinautar hans, hægrimennim-
ir Jacques Chirac, forsætisráð-
herra, og Raymond Barre, fyrrum
forsætisráðherra. Hann var kos-
inn forseti Frakklands árið 1981.
í hitteðfyrra minnkuðu völd hans
er hægrimenn unnu þingkosning-
ar og veltu ríkisstjóm jafnaðar-
manna úr sessi.
íraski herinn sakaður
um notkun efnavopna
Nikosíu, Reuter.
ÍRANIR segja að írakar hafi varpað efnasprengjum á þijá bæi norð-
arlega í íran í gær. íranir segja jafnframt að margir hafi látið lífið
og særst í efnaárásum íraka. íranskir byssubátar skutu á skip á
Persaflóa í gærmorgun, þar á meðal norskt flutningaskip, Hav-
glimt, sem er í eigu útgerðarfélagsins Havtor í Singapore og gríska
tankskipið Stavros. Talið er að tveir menn hafi látið lífið og 10 særst
í árásunum á Persafióa.
Árás var gerð á bæi í grennd við
írönsku landamærin nálægt bænum
Marivan í gær, að sögn fréttastof-
unnar IRNA. Fréttir frá Teheran
herma að 5.000 íraskir kúrdar hafi
látist að undanfömu af völdum
efnavopna sem írakar hafi beitt.
Að sögn íranskra heimildarmanna
bjuggu flestir hinna látnu í landa-
mærabænum Halabja og nálægum
bæjum í norðausturhluta íraks.
Útvarpið í Teheran sagði að írak-
skar þotur hefðu varpað efna-
sprengjum á þorp í grennd við
Marivan tvisvar í síðustu viku,
margir létu lífið í þessum árásum.
Á mánudag fór utanríkisráðherra
írans, Ali Akbar Velayati, þess á
leit við samband 46 þjóða múslima
að þau fordæmdu það sem hann
kallaði „aukna notkun efnavopna
íraka“. Sarna dag bauð innanríkis-
ráðherra írans, Hojatoleslam Ali
Akhbar Mothashemi, forstöðu-
manni flóttamannahjálpar Samein-
uðu þjóðanna að heimsækja og
ræða við kúnia sem særst hefðu í
efnaárásum íraka. Erlendir frétta-
menn fengu að tala við kúrda á
sjúkrahúsi í íran á mánudag sem
að sögn lækna báru merki sinneps-
gass-eitrunar. Sameinuðu þjóðimar
hafa ásakað íraka um að nota efna-
vopn í stríðinu gegn írönum, en
írakar hafa neitað öllum slíkum
ásökunum.
Skömmu eftir að íranar ásökuðu
íraka um að beita efnavopnum í
styijöldinni skutu byssubátar þeirra
á grískt tankskip á Persaflóa.
Gríska skipið, Stavros, var í ljósum
logum eftir árásina í gær. Ekkert
mannfall varð í árásinni en
bandarísk og bresk skip komu
mönnunum um borð til bjargar.
Síðar tókst að hefta eldinn og fóm
skipveijar yfir í gríska skipið aftur.
Tíu klukkustundum áður höfðu
íranir skotið á norska skipið Hav-
glimt og þijú önnur skip á Persa-
flóa, létust tveir menn í þeirri árás.
Norsk útgerðarsamtök hafa varað
skipafélög við að senda skip í gegn-
um Hormuz-sund inn á Persaflóa
næstu daga, en 46 menn létu lífið
í árás við Kharg-eyju á laugardag.
Bandaríkjamenn for-
dæma tilboð Noriega
Washingfton, Reuter.
TALSMAÐUR Hvíta hússins for-
dæmdi ítrekað í gær tilboð Manu-
els Antonios Noriega herforingja
um að hann afsalaði sér völdum.
Hvatti talsmaðurinn Panamabúa
til að hafa orð Noriega að engu,
aðeins með því mætti tryggja
borgaraleg réttindi í landinu.
Noriega herforingi hafði fmm-
kvæði að því á mánudag að bjóðast
til að láta af störfum sem yfírmaður
hersins í Panama fyrir kosningamar,
sem eiga að fara fram á næsta ári.
í staðinn vildi hann að hafnar yrðu
samningaviðræður milli stjómar
Manuels Solis Palma og stjómarand-
Reuter
Manuel Antonio Noriega.
stæðinga. Tilboði hans var hafnað
bæði af Bandaríkjastjórn og stjómar-
andstæðingum, hvorir tveggju vilja
að Noriega fari úr landi.
„Yfirlýsingin frá í gær, þar sem
farið var fram á samstarf ólöglegra
stjómvalda í Panama og stjómarand-
stæðinga, var augljóslega ekkert
annað en brella til að reyna að fá
stjóm Palma lýsta lögmæta," var
haft eftir talsmanni Bandaríkjafor-
seta Marlin Fitzwater í gær. „Af-
staða okkar er sú sama og áður, við
emm reiðubúnir til viðræðna um leið
og Noriega tilkynnir að hann fari
úr landi," sagði forystumaður stjóm-
arandstæðinga, Pierre Leighdenier.
Krabbameinslækningar:
Dauðsföllum
gæti fækkað
um helming
Daytona í Florída, Reuter.
Krabbameinsmeðferð, sem
nú er verið að rannsaka, gæti
fækkað dauðsföllum vegna
lungnakrabbameins um helm-
ing, að því ér bandariskur
lyfjafræðingur sagði i gær.
Meðferðin byggist á þvi að fá
ónæmiskerfi Iikamans til að
eyða æxlum.
Ariel Hollinshead, við lækna-
miðstöð George Washington-
háskóla í Bandaríkjunum, sagði í
gær að 63 af hundraði þeirra
sjúklinga með lungnakrabbamein,
sem fengu þessa meðferð væm
enn í tölu lifenda fimm ámm eft-
ir uppskurð, en til samanburðar
lifðu einungis 33 af hundraði
þeirra sem aðeins væru skomir
upp.
Meðferðin byggist á því að í
sjúklinginn em sprautuð hreinsuð
mótefni, sem virðast gera ónæm-
iskerfið virkt og fá það til að ráð-
ast á krabbameinsfrumur og æxli.
Frank Rauscher, varaforseti
rannsóknadeildar bandaríska
krabbameinsfélagsins, sagði að
langur tími gæti liðið þar til hægt
yrði að beita þessari meðferð í
vemlegum mæli.