Morgunblaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1988
55
Morgunblaðið/BAR
Eiríkur Fjalar og Sigmundur Stormfjörð áttu ljómandi góða spretti er þeir fluttu „Eurovisionbrag"
Eiriks. En þáttastjómandanum Hermanni varð um og ó er hinir óvæntu gestir birtust.
SJÓNVARPIÐ
LIFANDI STAÐUR
Sálin hans Jóns míns
Í ÍL i w «■*.
hljóðrita "LIVE" plötu í kvöld.
Kvöld sem enginn má missa af.
Aih: Umhelgarerboðið Opiðöllkvöldfrákl. 18.
uppá 19rcuascrrcuascðil. Engin aðgangsc\TÍr virka
LcUurnæturmalscðill daga. Fösiudagas- og
ígangicftirmiðnætti. laugitrdagakvöld cr Irítl inn
f>TÍr malargcsti lil kl. 21.30
ÁTOPPNUM125 ÁR
/ tilefni af 25 ára afmœli Grillsins,
bjóðum við nœstu helgar marga
af vinsœlustu réttum okkar frá upphafi.
Sýnishorn:
Það væri synd að segja að alvaran hafi ráðið ríkjum meðal flytjenda á meðan keppninni stóð.
Söngvakeppni sjónvarpsins
1988 fór fram á mánudags-
kvöld og eru úrslit hennar sjálfsagt
orðin flestum kunn. Sverrir Storm-
sker sigraði aðra lagasmiði með
miklum yfirburðum, lét sér ekki
nægja minna en fullt hús stiga.
Fremur létt var yfir gestum í
sjónvarpssal. A meðan lögin voru
leikin báru menn saman bækur
sínar og heyrðist nafn Sverris oft
nefnt. Þegar sigurlagið „Þú og þeir“
var hljómaði sungu flytjendur hinna
laganna með, rétt eins og úrslitin
væru þegar kunn.
Er flutningi laganna var að ljúka
veittu nokkrir gesta athygli dular-
fullum kumpánum sem voru á róli
í kringum sviðið. Þeir ruddust svo
skyndilega inn í miðja útsendingu
og reyndust engin aðrir á ferðinni
en Eiríkur Fjalar með frænda sinn
Sigmund Stormfjörð í eftirdragi.
Saman sungu þeir lag Eiríks sem
Söngvakeppnin hafði blásið honum
í bijóst og vildi Eiríkur ólmur fá
að keppa í úrslitum. Þann greiða
neitaði Hermann þáttastjómandi
honum um.
Atkvæðagreiðslan tók síðan af
allan vafa. Lag Sverris fékk hæstu
stigatölu hjá öllum dómnefndum og
„vissi ég ekki“ lá á vörum margra,
enda búið að spá Sverri sigri í skoð-
anakönnunum. Því fleiri stig sem
lagið fékk, því lengra virtist Sverrir
sökkva ofan í sæti sitt.
Hann var þó glaðbeittur er hann
tók við sigurlaununum og margir
urðu til að óska honum til ham-
ingju. Meðal þeirra var Eyjólfur
Kristjánsson, sem sagðist á stöð-
ugri uppleið. í fyrra hefði hann lent
í þriðja sæti, nú í öðru sæti og
hver vissi hvað gerðist næst. En
holskefla fjölmiðlasnápa hellti sér
yfir Sverri og kom í veg fyrir frek-
ari samræður þeirra félaga. Fékk
sigurvegarinn Sverrir smjörþefinn
af því sem koma skal í Dublin og
því kannski eins gott að vera við
öllu búinn.
Forréttir:
Bláskel „Vinagrette“.
Spaghetti „ Carbonara
Kjörsveppasúpa.
Aðalréttir:
Tournedoes Bernaise.
Þrjár sterkkryddaðar grísasneiðar „Luger“.
Pönnusteikt smálúðuflök „Belle Meuniere“.
Lambakótilettur „Bergere“.
Eftirréttir:
Sherryrjómarönd.
Ferskjur „ Melba “.
Og að sjálfsögðu er sérréttaseðill
Grillsins ífullu gildi.
SÍMl: 25033