Morgunblaðið - 23.03.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1988
35
Bjarni Ara
heldur
tónleika
BJARNI Arason og hljómsveit
hans, „Búningarnir", halda í dag,
miðvikudag, sína fyrstu opinberu
tónleika.
Á tónleikunum verður frumflutt
það efni sem þeir félagar verða með
á ferð sinni um landið næsta sum-
ar. Uppistaðan í dagskránni verður
gömul og ný stuðlög. Þar verður
m.a. frumflutt lag eftir Bubba
Morthens.
Tónleikarnir verða í Menntaskól-
anum við Sund og hefjast kl. 20.30.
Allir eru velkomnir og ekkert ald-
urstakmark verður.
(Fréttatilkynning)
Á meðal atriða á Menningarvöku Suðurnesja eru tónleikar Tónlistarskólans í Ytri-Njarðvíkurkirkju á
föstudagskvöld og barnastarf á sunnudagsmorgun í kirkjunni.
Menningarvaka Suðurnesja:
Halldóri Laxness til-
einkað fvrsta kvöldið
Keflavík. t/
Bjarni Arason.
Keflavík.
MENNINGARVAKA Suðurnesja
verður sett í kvöld og stendur
hún til 4. april. Birgir ísleifur
Gunnarsson menntamálaráð-
herra setur vökuna sem hefst í
Félagsbíói, en kvöldið í kvöld
verður sérstaklega helgað Nób-
elsverðlaunaskáldinu Halldóri
Laxness. Félagar úr Leikfélagi
Keflavíkur flytja atriði úr ís-
landsklukkunni og Helgi Skúla-
son leikari les úr Paradísar-
heimt. Verður skáldinu afhent
stytta sem er eftir Erling Jónsson
listamann. Meðal gesta við opn-
unarhátíðina verður forseti Is-
Lögreglan lýsir eftir vitnum:
Stolinni, óskráðri bif-
reið ekið á ljósastanr
EINHVER tók nýja Mazda-bifreið traustataki snemma á sunnudags-
morgun, én tókst ekki betur til en svo að hann ók á ljósastaur við
Miklubraut og stórskemmdi bifreiðina. Ökumaðurinn forðaði sér af
vettvangi, en lögreglan i Reykjavík vill gjarnan tala við hann, eða
einhvern þann sem gefið getur upplýsingar um málið.
Það var um kl. 5.20 á sunnudags- skráningamúmer á hana, að
morgun, sem lögreglunni var til- minnsta kosti að aftan. Það hefur
kynnt að óskráðri bifreið hefði ver- hann síðan fjarlægt eftir árekstur-
ið ekið á Ijósastaur á afreininni af
Reykjanesbraut upp á Mikíubraut
og væri hún nú mannlaus. Bifreið-
in, sem er af gerðinni Mazda 626,
svört að lit, stórskemmdist við
áreksturinn. Ekki hafði henni verið
ekið langan veg, því mælir í henni
sýndi aðeins 27 kflómetra. Líkleg-
ast þykir, að bifreiðinni hafi verið
stolið frá Sigtúni, þar sem nýjar
bifreiðar standa gjaman og bíða
ryðvamar og skráningar.
Ljóst er, að sá sem tók bifreiðina
hefur bætt á hana bensíni og að
öllum líkindum hefur hann sett
mn. Þar sem staða bifreiðarinnar
bendir til þess að ökumaðurinn hafi
ætlað sér að aka upp Ártúnsbrekk-
una þykir ekki ólíklegt að hann
hafi stöðvað aðra bifreið og fengið
far með henni. í þann mund sem
maðurinn, sem tilkynnti atburðinn,
kom á vettvang, sá hann tvær stúlk-
ur aka á brott frá skemmdu bifreið-
inni. Þær eru beðnar um að gefa
sig fram við slysarannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík, sem og
aðrir þeir, sem einhveijar upplýs-
ingar geta veitt um málið.
Bifreið af gerðinni Mazda 626, eins og sú óskráða sem var stolið
snemma á sunnudagsmorgun og ekið á ljósastaur við Miklubraut.
lands frú Vigdís Finnbogadóttir.
Menningarvökunni verður síðan
formlega slitið í Stóru-Vogaskóla
með kynningu á Jóni Dan rithöf-
undi sem verður heiðraður.
Vökunni verður síðan fram hald-.
ið á föstudagskvöldið kl. 20.30 með
tónleikum Tónlistarskólans í Ytri-
Njarðvíkurkirkju og verður aðgang-
ur ókeypis. Þá verður sýning hjá
Litla leikfélaginu í Garðinum á Allra
meina bót og hefst sýningin kl.
23.30. Á laugardag verða popptón-
leikar í Glaumbergi kl. 20.30 og
Litla leikfélagið sýnir Allra meina
bót í Garðinum kl. 21.00. Á sunnu-
dag verður bamastarf í Ytri- og
Innri-Njarðvíkurkirkjum kl. 11.00
og í Keflavíkurkirkju verður ferm-
ingarguðþjónusta kl. 10.30. Leik-
félag Keflavíkur sem nú hefur verið
endurvakið verður síðan með fmm-
sýningu á leikritinu Skemmtiferð á
vígstöðvarnar eftir Arrabal á mánu-
dagskvöldið kl. 21.00 í Glaumbergi
og gefst sýningargestum kostur á
að borða áður.
Síðan verður haldið áfram með
ýmsar uppákomur, íþróttir taka
sinn skerf. Þar má nefna fimleika
og fram fara unglingalandsleikir
kvenna í körfuknattleik við Lúxem-
borgara og Wales. Þá verður Út-
varp Suðumesja starfrækt og hefj-
ast útsendingar 31. mars, sent verð-
ur út á FM 91,0 og verður sent út í
5 daga.
Hugmyndina að menniningar-
vökunni eiga þeir Hjálmar Ámason
skólameistari og Magnús Gíslason
formaður Verslunarmannafélags
Suðumesja og hefur undirbúningur
fyrir vökuna staðið yfir um nokkra
hríð. Hjálmar sagði að áhugahópur
hefði staðið að svipaðri vöku fyrir
8 ámm og hefðu þeir Magnús verið
í þeim hópi. Þó hugmyndin væri
þeirra að vökunni þá væri hún fyrst
Fyrirlestur
um líffræði
hrognkelsa
DR. JOHN Davenport sjávarlíf-
fræðingur frá Sjávarrannsókna-
stöð Háskólans í Wales i Menai
Bridge heldur fyrirlestur um
líffræði hrognkelsa.
Fyrirlesturinn verður fimmtu-'
daginn 24. mars kl. 15.15 í stofu
G-6 í Líffræðistofnun Háskólans,
Grensásvegi 12. Fyrirlesturinn
verður á ensku og era allir velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir, segir í frétt
frá Líffræðistofnun Háskólans.
og fremst verk hinna ýmsu hópa
sem þar hefðu lagt hönd á plóginn.
-BB
Þjóðminjasafnið:
Opnar
sýningn á
teikningum
skólabama
SÝNING á teikningum skóla-
bama verður opnuð i Bogasal
Þjóðminjasafns Islands á laugar-
dag, 26. mars, kl. 14. Undanfarið
hefur staðið yfir teiknisam-
keppni í grunnskólum í tilefni
125 ára afmælis safnsins og bár-
ust alls á annað þúsund myndir.
I frétt frá Þjóðminjasafninu seg-
ir, að því miður sé aðeins unnt að
sýna lítinn hluta myndanna, en all-
ar myndirnar verða varðveittar í
safninu. Verðlaun verða veitt fyrir
níu bestu myndimar og verður til-
kynnt um verðlaunahafana við opn-
un sýningarinnar. Nemendum
grannskóla og aðstandendum
þeirra er boðið að vera við opnun
sýningarinnar, eftir því sem húsrúm
leyfír, eða skoða hana við annað
tækifæri. Þá era þeir, sem tóku
þátt í keppninni, sérstaklega vel-
komnir.
Sýningin stendur fram í maí og
er opin á venjulegum opnunartíma
safnsins, þ.e. laugardaga, sunnu-
daga, þriðjudaga og fimmtudaga
kl: 13.30-16.00. Aðgangur er
ókeypis.
Sigurlag Sverris Stormskers, sungið af Stefáni Hilmarssyni verður
eitt af níu þáttökulögunum á safnplötunni frá Steinum hf.
Steinar hf.:
Ný safnplata með
9 lögum úr Söngva-
keppni sjónvarpsins
STEINAR hf. munu gefa út safnplötu með 9 af þeim 10 lögum, sem
kepptu til úrslita í Söngvakeppni sjónvarpsins 1988. Á plötunni verða
einnig fimm önnur lög með íslenskum flytjendum, en platan ber
heitið „ÞÚ og þeir og allir hinir nema einn“.
Úrslitalögin níu sem era á plöt-
unni era: „Þú og þeir“ eftir Sverri
Stormsker sungið af Stefáni Hilm-
arssyni, „Ástarævintýri (Á vetrar-
braut)" eftir Eyjólf Kristjánsson og
Inga Gunnar Jóhannsson í flutningi
höfunda, „Mánaskin" eftir Guð-
mund Ámason sungið af Eyjólfi
Kristjánssyni og Sigrúnu Waage,
„Látum sönginn hljóma" eftir Geir-
mund Valtýsson í flutningi Stefáns
Hilmarssonar, „í tangó“ eftir Gunn-
ar Þórðarson sungið af Björgvin
Halldórssyni, „Sólarsamba" etir
Magnús Kjartansson í flutningi
Bræðrabandalagsins, „í fyrrasum-
ar“ eftir Grétar Örvarsson í flutn-
ingi höfundar og Gígju Sigurðar-
dóttur, „Dag eftir dag“ eftir Val-
geir Skagfjörð sungið af Guðrúnu
Gunnarsdóttur og „Eitt vor“ eftir
Kristinn Svavarsson sungið af
Pálma Gunnarssyni.
Auk þess era á plötunni lögin
„Jósteinn skósmiður" eftir Kristján
V. Haraldsson og Sveinbjörn Gísla-
son í flutningi Greifanna, „Morgun-
gjöf‘ eftir Gunnar Þórðarson og
Olaf Hauk Símonarson sungið af
Jóhönnu Linnet, „Gleym mér mey“
eftir Sverri Stormsker í flutningi
höfundar, „Hvers virði“ eftir Friðrik
Karlsson, Eirík Hauksson og Gunn-
laug Briem í flutningi Model og „í
fylgd með fullorðnum“ eftir Bjartm-
ar Guðlaugsson í flutningi höfund-
ar.
Útgáfudagur plötunnar er sam-
kvæmt reglum keppninnar 31.
mars, en leyfllegt er að hefja dreif-
ingu %8. mars og mun því hljómplat-
an og kasettan verða fáánleg í
hljómplötuverslunum 30. mars. I
aprílbyijun kemur svo út geisladisk-
ur með lögunum.
(Úr fréttatilkynningu.)