Morgunblaðið - 23.03.1988, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1988
45
og notalega íbúð og fluttist þá á
ný til Reykjavíkur. Síðustu þijá
mánuðina stundaði hann sjó og
önnuðust þá foreldrar okkar ýmsar
útréttingar fyrir hann, og mikið var
hann þakklátur fyrir það. Hann
hringdi jafnvel erlendis frá, heim
til okkar, bara til þess að segja
þeim hvað honum þætti vænt um
þau, og hversu þakklátur hann
væri fyrir það sem þau önnuðust
fyrir hann.
Svona var Gunnar, einlægur og
blíður með stórt hjarta. Hann hafði
mikið samband við Þórey systur
sína og þótti þeim innilega vænt
hvoru um annað.
Elsku Hreiðar, Þórey og Gógó,
guð gefi ykkur og öllum sem eiga
um sárt að binda styrk til að sigr-
ast á söknuði og sorg.
Sigga Bylgja og Guðbjörg
Vakna þú sem sefur
og rís upp frá dauðum
og þá mun Kristur lýsa þér.
(Efesusbréfíð.)
Brostinn er hlekkur í fjölskyldu
minni, skarð erfyrir skildi. Á öldum
ljósvakans þann 14. mars barst mér
sú harmafregn að Gunnar Þorkell
systursonur minn hafi látist af slys-
förum. Alltaf stendur maður jafn
berskjaldaður fyrir dauðanum, þeg-
ar maðurinn með ljáinn er á ferð
óvæginn og miskunnarlaus og gerir
ei boð á undan sér eins og í þetta
sinn. Á einu andartaki var klippt á
lífsþráð míns hjartkæra systursonar
sem okkur þótti svo innilega vænt
um. Það er ekki spurt um stað né
stund og tímaglasið útrunnið sem
engan óraði fyrir.
Daginn áður hafði hann hringt
til mín þaðan sem hann var staddur
í Rotterdam í Hollandi. Hann var
glaður og reifur, langaði að heyra
raddjr okkar og talaði við okkur
öll. Ákveðið var að hann heimsækti
okkur næst þegar hann kæmi í land.
Við kvöddumst létt í lund með þakk-
læti í hjarta eftir ánægjulegt sam-
tal. Þama kom það berlega í ljós
að mennimir ákvarða en Drottinn
ræður.
„Vaktu minn Jesú, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf
sé hún ætíð í þinni hlíf.“
(H.P.)
Gunnar Þorkell fæddist í
Reykjavík þann 25. október 1964.
Hann var elsta bam foreldra sinna,
Sigurlaugar R. Guðmundsdóttur
(Gógó) og Jóns Hreiðars Hansson-
ar, og fyrsti drengurinn sem bama-
bam foreldra okkar, Þóreyjar Þor-
kelsdóttur og Guðmundar Kr. Hall-
dórssonar, húsgagnasmíðameist-
ara, Þórsgötu 10. Hann var sann-
kallaður sólargeisli, ljóshærður,
knár og fallegur drengur, skír og
skemmtilegur og hvers manns hug-
ljúfi. Tveimur árum síðar fæddist
bróðir hans sem skírður var Þórður
Guðni, en hann lést í frumbemsku.
Árið 1969 í febrúar fluttist fjöl-
skyldan til ÁstraJíu og bjó þar í
þijú og hálft ár. Á þeim tíma fædd-
ist þriðja bamið og var það telpa
sem skírð var Þórey eftir móður
okkar sem lést árið 1968. Pjölskyld-
an undi hag sínum vel á fjarlægum
slóðum og allt virtist bjart framund-
an, en á einu augabragði varð um-
ferðarslys og Gunnar Þorkell lenti
fyrir bifreið. Hann slasaðist alvar-
lega og setti þetta slys sitt mark á
litla drenginn og tók langan tíma
Blóma- og
skreytingaþjónusta
hvert sem tilefniö er.
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBAJ,
Álfhcimum 74. sími 84200
að hann jafnaði sig. Þau fluttust
síðan heim til íslands í október
1972.
„Þú Guð sem stýrir stjama her
og stjómar veröldinni,
í straumi lífsins stýrð þú mér
með sterkri hendi þinni.“
(Vald. Briem.)
Ári síðar slitu foreldrar hans
samvistum. Þórey litla var hjá móð-
ur sinni en Gunnar Þorkell hjá föð-
ur sínum, einnig var hann mikið á
heimili Margrétar föðurömmu
sinnar og manns hennar, Jóns Guð-
mundssonar, en hann lést á sl. ári.
Hann gekk í skóla og fermdist frá
Margréti ömmu sinni og Jóni sem
reyndust honum vel alla tíð. Eftir
að faðir hans kvæntist aftur var
heimili hans hjá honum og konu
hans, Kristbjörgu Jónsdóttur að
Sléttahrauni 28, Hafnarfírði. Krist-
björg á tvær dætur frá fyrra hjóna-
bandi og ríkti gott samkomulag á
milli ungmennanna. Mikið og náið
samband var á milli Gógó, systur
minnar, og Gunnars Þorkels, og
einnig á milli systkinanna Þóreyjar
og Gunnars Þorkels og litlu systra
hans, Guðrúnar og Sigrúnar, sem-
allar syrgja nú sinn ástríka bróður.
Gunnar Þorkell var glæsilegur
ungur maður, bjartur yfírlitum, hár
vexti og samsvaraði sér vel. Hann
var dagfarsprúður og með eindæm-
um bamgóður. Sonur minn, Magn-
ús, syrgir frænda sinn mikið því
náið samband var á milli þeirra þó
árin væru tíu. Það sýnir að Gunnar
Þorkell hafði lag á bömum, hann
var ætíð aufúsugestur á heimili
okkar í gegnum árin.
I lok síðasta árs festi hann kaup
á lítilli íbúð sem hann Iagfærði sjálf-
ur á smekklegan máta enda hand-
laginn vel. Þar var hann búinn að
koma sér fyrir og var allt snyrtilegt
og fágað um að lítast. Þetta var
hans eigið heimili og er gleðilegt
til þess að vita að draumur hans
varð að veruleika um að eignast
sína eigin íbúð.
Gunnar Þorkell lagði stund á
húsasmíði og vann við smíðar, en
langaði síðan að breyta til og fara
á sjóinn enda engum háður, en þar
voru örlög hans ráðin í erlendri
höfíi.
Gunnar Þorkell bar nöfn móður-
foreldra minna og var yfirleitt
nefndur báðum nöfnunum að
minnsta kosti af sínu móðurfólki.
Það er sárt til þess að vita að tutt-
ugu og þriggja ára gamall maður
í blóma lífsins sem á lífið framund-
an skuli ljúka hinu jarðneska lífi
svona skyndilega: Hann er harm-
dauði öllum sem þekktu þennan
ljúfa dreng. Guð styrki ástvini hans
í þeirra miklu sorg.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fýrir allt og allt
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýiðar hnoss þú hljóta skalt.“
(Vald. Briem.)
Blessuð sé minning míns hjart-
kæra systursonar.
Sigrún Guðmundsdóttir
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSTRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR,
Torfalœk,
sem lést sunnudaginn 13. mars sl., verður jarðsungin frá Blöndu-
óskirkju föstudaginn 25. mars kl. 14.00.
Torfi Jónsson.
Jóhannes Torfason, JónTorfason,
Elín Sigurlaug Sigurðardóttir, Sigriður Kristinsdóttir
og barnabörn.
t
Sonur okkar og bróðir,
GUNNAR ÞORKELL JÓNSSON,
Sléttahrauni 28,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaöakirkju í dag, miövikudaginn
23. mars, kl. 15.00.
Sigurlaug R. Guðmundsdóttir og fjölskylda.
Jón (Iroiðar Hansson og fjölskylda.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóöur og ömmu,
HELGU EINARSDÓTTUR,
Barónsstíg 30,
Reykjavik.
Guð blessi ykkur öll.
Elsa E. Drageiðe, Halldór Ö. Svansson,
Sigrún Guðmundsdóttir,
Stefán Aðalbjörnsson,
Ingimundur Guðmundsson, Kristrún Danfelsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Lokað
vegna jarðarfarar GUNNARS ÞORKELS JÓNSSONAR
eftir hádegi miðvikudaginn 23. mars.
Marinó Pétursson hf.,
Skútuvogi12A.
Lregsteinar
MARGAR GERÐIR
Marmm/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
SVAR
MITT
eftir Billy (*raham
Er Kristur að koma?
Eg á nokkra vini sem segja að Jesús Kristur komi aftur
og meira að segja alveg á næstunni. Hafa þeir á réttu
að standa?
Það er rétt sem þeir segja að Jesús Kristur kemur aftur
til þess að setja á stofn eilíft ríki sitt í heiminum. Jesús kenndi
þetta sjálfur og þegar hann steig upp til himna eftir uppris-
una kunngjörði engill lærisveinunum: „Þessi Jesús sem var
upp numinn frá yður til himins mun koma á sama hátt og
þér sáuð hann fara til himins.“ (Post. 1,11.)
Á hinn bóginn hefur Jesús varað lærisveina sína við því að
segja til um hvenær hann muni koma því að endurkoma hans
mun verða óvænt og skyndileg. Hann sagði: „Um þann dag
og þá stund veit enginn, ekki einu sinni englar himnanna né
sonurinn heldur aðeins faðirinn einn. — Fyrir því skuluð og
þér vera viðbúnir því að mannssonurinn kemur á þeirri stundu
sem þér ætlið eigi.“ (Matt. 24,36,44.) Enginn getur sagt upp
á hár að Jesús komi í nánustu framtíð — þó að svo kynni að fara.
Jafnframt segir Biblían frá ýmsum táknum sem benda til
endurkomu Jesú, margs konar viðburðum sem hljóta að eiga
sér stað áður en hann kemur. Jesús talaði ekki um þetta til
þess að við gætum sagt nákvæmlega hvenær hans væri von,
heldur til að uppörva okkur með því að leiða okkur fyrir sjónir
að Guð væri að verki og að hann væri að láta áform sín ræt-
ast. Jafnframt eru þau vísbending um komu hans.
Jesús sagði t.d. við lærisveina sína: „Þessi fagnaðarboðskap-
ur um ríkið mun predikaður verða um alla heimsbyggðina til
vitnisburðar öllum þjóðum og þá mun endirinn koma.“ (Matt.
24,14.) Vissulega er þetta að verða að veruleika á okkar tímum
og sýnir að endurkoma Krists nálgast óðum.
Það er áhugavert að velta fyrir sér hvenær Kristur muni
koma og nauðsynlegt að hyggja að því hvað Biblían segir um
spádóma. En meira máli skiptir að gera sér ljóst að Kristur
getur komið á hverri stundu. Ertu viðbúinn komu hans? Þú
getur orðið það með því að ganga Jesú Kristi á hönd tafarlaust.
Þökkum innilega samúð og okkar, tengdafööur og afa, t vinarhug við andlát og útför föður
ÁRNA S. GUÐMUNDSSONAR
frá Hofsósi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu Hafnarfirði.
Brynja Árnadóttir, Sverrir Júlfusson,
Reynir Árnason, Jakobfna Þorgeirsdóttir,
Guðmundur Árnason, Regfna Guðlaugsson
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda vinsemd og samúö við andlát og útför
ÞÓRÐAR LOFTSSONAR
frá Bakka.
Aðstandendur.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vináttu við andlát og jarðar-
för systur okkar,
FÍDESAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Hamrahlíð 17.
Elísabet Þóröardóttir, Viktor Þórðarson,
Karl Þórðarson.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.