Morgunblaðið - 23.03.1988, Qupperneq 53
/
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1988
53
Jens Winther
og stemmningin varð til þess að
ég helgaði mig jassinum.
Ég bjó þá í Esbjerg óg þar
þekkti ég engan sem mig langaði
að spila með, en í Brandbjerg
kynntist ég ótal snöllum hljóð-
færaleikurum. Það varð til þess
að ég ákvað að flytjast til Kaup-
mannahafnar. Þar var meira að
gera þó það hafí farið rólega af
stað. Ég spiláði með hljómsveit
Erling Kroner, Almost Big Band
Emie Wilkins, salsasveitinni Salsa
Na’más, ég lék inn á mína fyrstu
plötu með Kim Kristensen og fleir-
um og með ótal tríóum, kvartettum
og stærri sveitum. Það má því
segja að þá hafi ég farið að lifa á
tónlistinni.
Ég spilaði allskyns tónlist á
þessum tíma, uppúr 1980, fönk,
jass, rokk, soul og salsa. Ég stefndi
að því að ná tökum á öllum tegund'
um tónlistar og það finnst mér
hafa gengið eftir.
Segðu mér eitthvað af stöðu
jasstónlistar i Skandinavíu í dag.
Ég þekki vitanlega danska jass-
heiminn best og þar er góður andi
og mikil gróska. Alltaf fjölgar
nemendum í Rytmisk Konservator-
ium og það er mikið af ungu fólki
sem leikur jass í Danmörku í dag.
Þá hljóðfæraleikara sem okkur
vantar í Danmörku fáum við síðan
frá Svíþjóð.
Eftir því sem ég þekki til í
Skandinavíu þá er hvað mest að
gerast í Kaupmannahöfn og í dag
má segja að jassinn standi traust-
ari fótum í Danmörku en í öðrum
Skandinavíulöndum. I því hefur
sitt að segja að það hafa svo marg-
ir bandarískir tónlistarmenn verið
búsettir í Danmörku; menn eins
og Stan Getz, Dexter Gordon, Ric-
hard Boone, Kenny Drew, Horace
Parlan o.fl.
Má ekki segja að megin-
munurinn á dönskum jassleikur-
um og t.d. norskum eins og Jan
Garbarek, sé að þeir norsku séu
að leika þróaðri jass, en þeir
dönsku séu fastir í gámla tíman-
um?
Ekki tek ég undir það. Að mínu
mati eru danskir jasstónlistarmenn
að leika alþjóðlegri jass en aðrir
Skandinavar, það er meira gegn-
umstreymi í dönskum jass, það er
meiri gróska.
Finnst þér þá ekki sem jass á
Norðurlöndum sé eftirmynd af
þeim jass sem leikin í Banda-
rikjunum fyrir tíu til fimmtán
árum; að Norðurlandabúar séu
alltaf að herma eftir því sem
var að gerast í Bandaríkjunum
og eigi ekki sinn sérstaka stíl?
Nei, ég tel að það sé til jasshefð
á Norðurlöndunum þó það sé nokk-
uð um að menn séu að taka upp
gamla strauma að vestan. Það
verða þó alltaf fleiri og fleiri sem
leika norrænan jass.
Þú lékst inn á plötuna Hinseg-
in blús með íslenskum jasslei-
kurum. Hvernig var sú sam-
vinna?
Það var góður andi yfir allri
plötugerðinni.
Það gerist eitthvað þegar maður
fer af sínum heimaslóðum til að
gera plötu í öðru landi og það skil-
ar sér. Ég heyri að ég leik oðruv-
ísi á plötunni en endranær en það
kemur frá hjartanu og ég er án-
ægður með það.
Hafðir þú gert þér einhveijar
væntingar um það hvernig út-
koman yrði áður en farið var
af stað?
Ég get ekki sagt að ég hafi
búist við neinu sérstöku, en eg er
ánægður með_ niðurstöðuna.
Texti: Arni Matthíasson
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Börnin fara í ýmsa skemmtilega leiki í leikskóíanum.
20 ár frá stofnun fyrsta
leikskólans á Selfossi
Dagvistarstof nanir verða kynntar 8. — 17. apríl
Selfossi.
FYRSTA apríl verða liðin 20 ár
frá því fyrst var stofnaður leik-
skóli á Selfossi. í tilefni af því
efnir starfsfólk dagvistarstofn-
ana á Selfossi til dagskrár 8. til
17. apríl þar sem starfsemin
verður kynnt og haldnar sýning-
ar á verkum barnanna og sögu-
legu yfirliti.
Það var Kvenfélag Selfoss sem
fyrst sá um rekstur Leikskóla Sel-
foss með aðstoð sveitarfélagsins frá
1. apríl 1968 fram til ársins 1978
er sveitarfélagið tók við. A þessum
tíma átti kvenfélagið 15% í leikskól-
anum.
Nú eru starfræktir á Selfossi
þrír leikskólar með rúm fyrir 135
böm á aldrinum 2ja til 6 ára. Mik-
il aðsókn er að leikskólunum og
eins árs bið eftir plássi.
Dagheimili fyrir 15 böm er starf-
rækt og skóladagheimili fyrir 12. í
byggingu er ný dagvistárstofnun,
tveir áfangar af þremur, með skóla-
dagheimilisdeild fyrir 20 börn og
dagheimilisdeild fyrir 20. Nýja
skóladagheimilið mun ■ leysa af
hólmi það sem nú er starfrækt.
í tilefni af 20 ára afmælinu verð-
ur sett upp myndlistarsýning 2ja
til 9 ára bama af dagvistarstofnun-
unum sem standa mun yfir í sýning-
arsal safnahúsanna 8,—17. apríl.
Þar verður einnig sýnt sögulegt
yfirlit og myndir frá starfseminni
og víst er að þar bregður fyrir
myndum af fólki sem nú á börn á
leikskóla eða dagheimili. Þann 9.
apríl verða öll heimilin opin og til
sýnis klukkan 13—17. Þá er fyrir-
hugað að halda fund fyrir alla for-
eldra á Selfossi þar sem Hrafn-
hildur Ragnarsdóttir þróunarsál-
fræðingur heldur fyrirlestur um það
hvemig foreldrar geta stuðlað að
málþroska bama sinna.
- Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Það er í ýmsu að snúast í leikskólanum. Hér eru nokkrir krakkar að spila myndaspil.
...opmimvið betri
byggingingavöru
verslun
Vestur á Hringbraut 120 hafa völundar á tré og jám og aðrir góðir
byggingamenn unnið gott starf að undanfömu. Þeirhafa byltöllu um
og útkoman er stórglæsileg alhliða byggingavörúverslun. Þarfcest allt
sem parf til húsbygginga og endurbóta, allt frá smœstu skrúfum til
glœsilegra uno form innréttinga.
JLVölundur
betri byggingavörur
Hringhraut 120, sími 28600