Morgunblaðið - 23.03.1988, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1988
KR-ingar unnu
með yfirburðum
YFIRBURÐIR KR í ödrum flokki karla í úrslitakeppni íslands-
mótsins sem fram fór um síðustu helgi voru ótrúlega miklir.
Liðunum í úrslitakeppni 1. deildar var skipt í tvo riðla og sigr-
uðu KR-ingar alla andstæðinga sína í riðlinum með miklum
mun. Vfkinga lögðu þeir með 29 mörkum gegn 16, HK 21:13,
ÍBK 32:16 og Fram 27:13. Stjarnan vann hinn riðilinn en keppn
in í honum var mjög skemmtileg því flestir leikirnir þar unn-
ust á einu til tveimur mörkum. Almennt var talið að riðilinn
sem Stjarnan lék í hefði verið erfiðari en sá sem KR lók í og
því bjuggust menn við hörkuúrslitaleik milli þessara félaga.
I leiknum um bronsverðlaunin vann HK lið Gróttu óvænt,
19:15. Kópavogskapparnir léku þennan leik með hjartanu og
var unun að horfa á hve gleðin og baráttan f leik þeirra skil-
aði góðum árangri.
Urslitaleikurinn um sjálfan ís-
landsmeistaratitilinn byijaði
með hörkubaráttu, jafnt var á öll-
um tölum og hvergi gefið eftir.
Stjaman virtist
Vilmar hafa frumkvæðið í
Pétursson byijun. f liðinu eru
skrifar stórir og sterkir
strákar og voru
þeir mjög hreyfanlegir í vöminni
í upphafí leiksins.
Um miðbik fyrri hálfleiks slaknaði
á leikmönnum Stjömunnar og var
engu líkara en þeir hefðu yfir-
keyrt sig í upphafi leiksins. KR-
ingar gengu á lagið og sigldu
framúr andstæðingunum. Þor-
steinn Guðjónsson var sérlega
frískur í liði KR seinni hluta hálf-
leiksins. Hann fiskaði boltann
trekk í trekk óð upp og skoraði.
Þessi kraftur hans átti ekki
minnstan þátt í að KR var yfir
11:8 í leikhléi.
í síðari hálfleik rúlluðu KR-ingar
Garðbæingunum upp og unnu enn
einn stórsigurinn í úrslitakeppn-
inni því lokatölur leiksins urðu
27:16. Lið KR lék mjög vel í þess-
um leik. í vöminni komu þeir vel
á móti stórskyttum Stjömunnar
sem fengu ekkert færi á að lyfta
sér upp. Páll Ólafsson átti mjög
góðan leik í vöm KR og batt hana
saman eins og tonnatak. Annars
átti allt KR-liðið góðan leik og er
sannarlega vel að íslandsmeistar-
atitlinum komið. Leikmenn
Stjömunnar náðu sér ekki á strik
í þessum leik ef frá er talinn upp-
hafskafli hans, kerfín gengu ekki
upp og vamarleikurinn varð
þunglamalegur.
Mörk KR: Þorsteinn Guðjónsson 7, Sig-
urður Sveinsson 7, Guðmundur Pálmason
6, Páll Ólafsson 4 og Konráð Olavson 3.
Mörk Stjörrnmnar: Sigurður Bjamason
6, Hilmar Hjaltason 4, Birgir Sigfússon
3, Heimir Erlingsson 2, Magnús Ellerts-
son 1 og Bjami Benediktsson 1.
Morgunblaðið/Bjarni Eiriksson
Lelfur Dagfinnsson, fyrirllAi
2. flokks KR, hampar íslands-
moistarabikamum.
Leifur Dagfinnsson:
Núna tekur
alvaran við
„ÞETTA var nú léttara en ég
bjóst við. Fyrir úrslitakeppn-
ina bjóst ég viö að Gróttan
yrði okkar höf uðandstæðing-
ur því við höf um tapað tvisvar
fyrir þeim í vetur. í þeim leikj-
um hefur okkur að vísu vant-
að mannskap. Þegar við erum
með fullt lið höfum við ekki
tapað leik," sagði Leifur Dagf-
innsson fyrirliði KR.
Leifur er ekki óvanur að taka
á móti íslandsmeistarabikur-
um því hans árgangur hefur verið
sérlega góður í gegnum tíðina.
„Fyrst urðum við Islandsmeistar-
ar í 5. flokki. Á yngra árinu í
fjórða urðum við í öðru sæti en
unnum síðan á seinna árinu. í
þriðja flokki kom los á mannskap-
inn, sumir voru erlendis, og í þeim
flokki vannst enginn titill. Núna
erum við allir saman aftur og
vinnum. Núna tekur alvaran við
og við þurfum að fara að sanna
okkur í meistaraflokki, hætta að
vera efnilegir og verða góðir,“
sagði hann að lokum.
BLAK / ÚRSLITAKEPPNIN
2. flokkur karla:
KR-ingar
íslands-
meistarar
íslandsmeistarar KR í 2. flokki
karla. Frá vinstri efri röð: Kristj-
án Öm Ingibergsson formaður
handknattleiksdeildar, Láms
Lámsson liðsstjóri, Guðmundur
Pálmason, Konráð Olavson, Páll
Ólafsson, Jóhann Lapas, Ingi
Guðmundsson og Ólafur Jóns-
son þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Guðjón
Kristinsson, Sigurður Sveins-
son, Leifur Dagfinnsson fyrir-
liði, Sigurður Hrafnsson og Þor-
steinn Guðjónsson.
Morgunblaðið/Bjarn' Eiríksson
ÍSLANDSMEISTARAR í l-iANDKNATTLEIK 1988
Hverjir verða meistarar?
EINS og við höfum skýrt frá eru þrjú lið efst og jöfn i úrslita-
keppni karla í blaki og hjá konunum urðu tvö lið jöf n í efsta
sæti. Til að fá fram úrslit þarf því að leika aukaleiki og hefst
baráttan í kvöld með leik IS og Þróttar í Hagaskólanum klukkan
20.
Það er ekki auðvelt að spá um
hvaða lið nær íslandsmeistara-
titlinum -öll liðin em álíka að getu
þegar þau ná að sýna góða leiki
■■^■■1 þannig að úrslitin
Skúli Unnar ráðast á því hversu
Sveinsson upplagðir leikmenn
skrifar eru hvetju sinni.
Það er trú mín að
deildarmeistarar ÍS standi uppi sem
sigurvegarar í lokin. Þeir hafa leik-
ið vel í vetur og síðasti leikur þeirra
gegn Þrótti sýndi að þeir em á
uppleið eftir frekar slaka leiki í
úrslitakeppninni. Ef Sigfínnur
Viggósson og Þorvarður Sigfússon,
þeirra sterkustu kantsmassarar,
leika af eðlilegri getu ættu þeir
ekki að vera í miklum vandræðum
með að krækja sér í íslandsmeist-
aratitilinn. Aðrir leikmenn ÍS hafa
verið jafnir í vetur og því skiptir
mestu að þessir tveir nái sér vel á
strik í leikjunum við Þrótt og HK.
Þróttarar hafa ekki leikið eins vel
í vetur og undanfarin ár. Það sem
hefur fyrst og fremst vantað hjá
þeim er framspilið en það hefur
verið aðall liðsins undanfarin ár.
Þegar framspilið er slakt er lítið
um sóknir og án sóknar getur Iið
ekki unnið leik. Ef þeim tekst að
laga framspilið þá stendur ömgg-
lega ekki á Leifi Harðarsyni fyrir-
liða þeirra að spila vel upp og sókn-
ir Þróttara geta verið hvassar þegar
sá er gállinn á þeim. Hávöm Þrótt-
ara er sú sterkasta í íslensku blaki
þegar þeim tekst vel upp en það
hefur að vísu verið lítið um það í
vetur.
Lið HK er ungt og mjög efnilegt.
Ekki hef ég trú á að þeim takist
að sigra í þessum leikjum og byggi
ég þá skoðun mína fyrst og fremst
á reynsluleysi. Lið IS og Þróttar
em leikreynd og á þeirri reynslu
munu þau komast langt gegn HK.
Strákamir úr Kópavogi hafa þó
sýnt að þeir em til alls líklegir og
ef ungu strákunum tekst vel skyldi
enginn afskrifa þá.
Broiðabllk vinnur
í kvennablakinu eigast Víkingur og
Breiðablik við á morgun í Digra-
nesi. Bæði þessi lið hafa leikið vel
í vetur og ef allt hefði verið eðlilegt
hefði leikurinn orðið skemmtilegur.
En nú er ekki allt eins og skyldi
því Særún Jóhannsdóttir, fyrirliði
Víkings, var lögð inn á sjúkrahús
í síðustu viku og leikur ekki meira
með liðinu í vetur.
Særún er sterkur leikmaður og það
munar geysilega miklu fyrir
Víkinga að missa hana og sérstak-
lega þegar haft er í huga að Víking-
ar hafa ekki haft varamann í allan
vetur.
Það er því spá mín að Breiðablik
vinni frekar auðveldan sigur á
Víkingum í þessum úrslitaleik.
í bikarkeppni kvenna eiga Víkingur
og Þróttur að leika og þar gæti
orðið um skemmtilegan leik að
ræða. Víkingar verða án Særúnar
og Jóhanna Kristjánsdóttir leikur
ekki heldur með þar sem hún verð-
ur komin á skíði í Austurríki.
í lið Þróttar vantar einnig Björg
uppspilara en hún slasaðist skömmu
áður en úrslitakeppnin hófst. Þrótt-
arar léku illa fyrst eftir að Björg
meiddist en Snjólaug Bjamadóttir
hefur nú náð ágætum tökum á
uppspilinu þannig að það gæti orðið
skemmtilegur leikur á laugardag-
inn.
Hefst í kvöld
Keppnin hefst í kvöld klukkan 20
í Hagaskóla með leik ÍS og Þrótt-
ar. A morgun leika síðan HK og ÍS
í Digranesi klukkan _ 20 og gætu
úrslitin ráðist þar. Á undan leik
þeirra, eða klukkan 18.45, leika
UBK og Víkingur til úrslita í
kvennaflokki og verður verðlauna-
afhending strax að þeim leik lokn-
um.
Á laugardaginn verða síðan bikar-
úrslitaleikimir f Digranesi. ÍS og
Þróttur he§a leik klukkan 15.30
og strax að þeim leik loknum leika
yíkingur og Þróttur.
Á mánudaginn verður síðasti leikur
úrslitakeppninnar en þá leika Þrótt-
ur og HK í Hagaskóla og hefst leik-
urinn klukkan 20.