Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
VEÐUR
Það þarf meira en netin ein til að veiða fisk- ur, belgir, teinar og fleira og allt þarf að vera
inn. Þeim fylgir margvíslegur búnaður, bauj- í lagi.
Baujur, belgir og bátar
Heimild: Veöurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
ÍDAGkl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 25.3. 88
YFIRLIT f g»r: Skammt norðvestur af Skotlandi er 972 mb lægð
sem þokast austur og liggur frá henni lægðardrag til vesturs. Yfir
Norður-Grænlandi er 1.020 mb hæð.
SPÁ: Noröaustanátt, allhvöss vestan- og norðvestaniands, en
hægari annars staðar. Bjartviðri um sunnanvert landið en él í öðr-
um landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustanátt, stinn-
ingskaldi um vestanvert landið en mun hægari austan til á landinu.
Norðan- og austanlands verða ól, en bjartviðri sunnan- og suðvest-
anlands. Frost 1—3 stig sunnanlands en heldur kaldar í öðrum
landshlutum.
TÁKN:
Q
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
-J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. v Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
f r f — Þokumóða
HáHskýjað * / * 9 Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * # 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma
hhl veður
Akureyri 1 alskýjað
Reykjavlk 6 léttskýjað
Björgvln 5 skýjað
Helsinki 1 þokumóða
Jan Mayen +5 skafrenningur
Kaupmannah. 3 súld
Narssarssuaq 0 snjókoma
Nuuk +9 skýjað
Óaló 3 skýjað
Stokkhólmur 1 þokumóða
Þórshöfn 6 alskýjað
Algarve 21 léttskýjað
Amstardam 8 rigning og súld
Aþena vantar
Barcelona 17 hálfskýjað
Berlín 9 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 7 rfgning
Glasgow 7 skúr
Hamborg 9 skýjað
Las Palmas 20 léttskýjað
London 13 skýjað
Los Angeles vantar
Lúxemborg 7 rignlng
Madrfd 18 skýjað
Malaga 20 léttskýjað
Mallorca vantar
Montraal 4 þokumóða
New York vantar
Parfs 11 rlgning
Róm 17 háKskýjað
Vln 10 skýjað
Washlngton vantar
Winnipeg vantar
Valencla vantar
Meiri afli á
línu en í net
AÐ nnrlanakilinni loðnunótinni hefur trollið skilað mestum afla á
land það, sem af er þessu ári. Togaramir öfluðu 54.188 tonna og
bátar tóku 3.123 tonn á sama tíma. Samtals er þetta þvi 57.311 tonn.
Botnfiskaflinn alls varð 91.568 tonn og sá trollið þvi um 62% hans.
í netin komu 15.848 tonn eða um 17% og á línuna 16.456 eða 18%.
Loðnunótin er langafkasatamesta veiðarfærið, en í hana voru tekin
451.017 tonn fyrstu tvo mánuði i
Fiskifélag íslands hefur gefið út
yfírlit yfír afla landsmanna, þar sem
honum er skipt niður á milli veiðar-
færa og er það nýlunda í skýrslu-
gerð Fiskifélagsins. Aflinn er talinn
í tonnum og miðast við óslægðan
þorsk. Fyrrgreint tímabil voru
34.708 tonn af þorski tekin í troll-
ið, megnið af togurum, 12.108 á
línu, 9.158 í net, 720 í dragnót og
57 á handfæri. Ýsan var fyrst og
fremst tekin í trollið og á línu, ufsi
að mestu í netin, karfí í trollið og
steinbítur á línu. Heildarafli í troll
var 57.311 tonn, á línu 16.456,
15.848 í net, 1.892 í dragnót og 61
á handfæri.
í febrúar tóku togaramir 18.682
tonn af þorski í trollið, 2.169 af
ýsu, 2.877 af ufsa, 6.847 af ufsa,
419 af steinbít, 745 af grálúðu, 75
af skarkola og 580 af öðrum teg-
undum, mest blálöngu. Á línuna
fengust 5.407 tonn af þorski, 796
af ýsu, 776 af steinbit og nánast
ekkert af öðmm tegundum. í netin
komu 6.810 tonn af þorski, 213 af
ýsu, 4.701 af ufsa og 147 af karfa.
Nánast ekkert af öðmm tegundum.
Á þessum tfma tóku bátamir 959
tonn af þorski í troll, 338 af ýsu,
257 af ufsa, 246 af karfa, 74 af
steinbít og 145 af skarkola. Drag-
nótin skilaði af sér 399 tonnum af
þorski og 106 af skarkola. Af öðmm
nefndum tegundum var afli lítill,
nema af langlúm, nálægt 600 tonn
og 645 af síld. Smábátamir tóku
767 tonn af þorski á línu, 151 af
ýsu og 176 af steinbít, nánast ekk-
ert af öðmm tegundum. í netin
tóku þeir 276 tonn af þorski og lítið
sem ekkert af öðram tegundum og
á handfærin 48 tonn af þorski og
tvö af ufsa.
Les úr verkum
sínum í London
Úrval ljóða Matthíasar Johannes-
sen gefið út hjá forlagi í Englandi
Á alþjóðlegu bókasýningunni
í Frankfurt 7,-12. október sl.
var gengið frá sanmingi milli
Almenna bókafélagsins og For-
est Books í London um útgáfu
á úrvali Ijóða eftir Matthías
Johannessen. Verkið nefnist
„The Naked Machine — Selec-
ted poems by Matthías Johann-
essen“ og er í enskri þýðingu
Marshalls Brements fyrrum
sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi.
Bókin kemur út í London 28.
mars nk. og verður kynnt á al-
þjóðlegu bókasýningunni, London
Intemational Bookfair, dagana
28.—31. mars. í tengslum við sýn-
inguna gengst Forest Books fyrir
dagskrá í menningarmiðstöðinni
Barbican Center sunnudagskvöld-
ið 27. mars. Þar kynnir forlagið
nýjar útgáfubækur. Auk Matt-
híasar mun spænska skáldið Justo
Jorge Padrón lesa úr verkum
sínum. Þá verður kynning á úr-
vali búlgarskra ljóða.
Með skáldunum lesa Alan
Brownjohn, Louis Boume, Brenda
Walker og Wendy Wright. Selló-
leikarinn Sigurður Halldórsson
mun leika undir upplestri tveggja
ljóða Matthíasar og Sigríður Ella
Magnúsdóttir kemur fram og
syngur nokkur lög.
Forlagið Forest Books, sem
hefur aðsetur í London og Boston,
hefur sérhæft sig í útgáfu þýddra
bókmenntaverka og þó einkum
ljóða. Af nýlegum útgáfum for-
lagsins má nefna verk eftir Búlg-
arann Lyubonir Levchev, rúm-
Matthías Johannessen
önsku skáldin Marin Sorescu og
Mircea Dinescu og Spánveijann
Justo Jorge Padrón.
í bók Matthíasar birtast 27 ljóð,
ásamt ítarlegum formála um
skáldið, sem Marshall Brement
hefur ritað. Tvö ljóðanna birtast
jafnframt á íslensku. Bókin verður
samtals 72 bls. að stærð og unnin
að öllu leyti í Bretlandi. Bókin
mun hljóta ISBN númer og Li-
braiy of Congress flokkunarlykil.
Dreifíng í Bandaríkjunum og
Kanada mun verða á vegum The
Three Continents Press Inc. í
Washington, en dreifing hér á
landi á vegum Almenna bókafé-
lagsins.
Bók Matthíasar er væntanleg í
íslenskar bókabúðir á næstunni.
(Fréttatilkynninff fri Almenna
bókafélaginu)
Nefnd fjallar um blý-
laust bensín hér
ÞORSTEINN Pálsson, forsætis-
ráðherra, hefur skipað nefnd, i
samræmi við ályktun Alþingis 3.
mars sl., tíl að meta hvort taka
eigi í notkun blýlaust bensín hér
á landi og hvaða aðgerða sé þörf
til að svo geti orðið.
Formaður nefndarinnar er Sól-
veig Pétursdóttir, lögfí-æðingur, en
aðrir neftidarmenn em Jónas
Bjamason, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda,
Bjami Snæbjöm Jónsson, hagfræð-
ingur, Jón Bragi Bjamason, próf-
essor, og Margrét Frímannsdóttir,
alþingismaður, segir í fréttatilkynn-
ingu frá forsætisráðuneytinu.