Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
37
Lýðháskólinn í Sund i Þrændalögwn i Noregi.
Lýðháskóli í Noregi:
Samnorrænt námskeið
fyrir aldraða í ágúst
Lýðháskólinn í Sund í Þrænda-
lögum býður upp á samnorræna
sumardvöl dagana 1.—14. ágúst
í sumar. Ferðin verður skipulögð
á vegum starfs aldraðra i Hall-
grímskirkju i Reykjavík.
Brottför er áformuð 27. júlí en
heimkoma 16.—18. ágúst. Dagamir
fyrir og eftir námskeiðið verða nýtt-
ir til dvalar í Osló og/eða til skoðun-
arferða eftir því sem unnt er.
25 manns geta komist með í
þessa ferð. Þátttaka tilkynnist sem
allra fyrst og innritun ljúki fyrir
páska. Hana annast Dómhildur
Jónsdóttir í Hallgrímskirkju og veit-
ir hún allar nánari upplýsingar.
Þeir sem voru í Vrá sl. sumar
kannast við svona ferð, en þangað
fer í sumar 30 manna hópur úr
Kópavogi og er fullbókað nú þegar.
Noregsferðin verður um sumt með
öðrum hætti og önnur viðfangsefni
að fást við í Þrændalögum. Aldurs-
takmarkið er 60 ár og verða þátt-
takendur að vera við ferðafæra
heilsu.
(Fréttatilkynning)
Ráðstefna um fram-
tíðarsýn húmanista
FLOKKUR mannsins heldur ráð-
stefnu laugardaginn 26. mars kl.
13.30 á hótel Holiday Inn undir
yfirskriftinni Framtíðarsýn
húmanista.
í frétt frá Flokki mannsins segir
m.a.:
„Á ráðstefnunni verður fjallað
um hvemig þjóðfélagið í dag ein-
kennist af skorti á húmanisma og
hvemig hin ýmsu svið þjóðfélagsins
gætu litið út þegar húmanisminn
eða manngildisstefnan ræður
ríkjum. Á ráðstefnunni verða flutt
stutt ávörp um niðurstöður rann-
sóknarhópa, unnið verður í um-
ræðuhópum að nánari útfærslu
þessara hugmynda og auk þess mun
formaður flokksins, Pétur Guðjóns-
son, ávarpa ráðstefnugesti.
Aðgangur er ókeypis og er ráð-
stefnan opin flokksfélögum og öll-
um þeim er styðja manngildis-
hugmyndir húmanista."
(Fréttatilky n ning)
Athugasemdir frá samtökun-
um Tjörnin lifi vegna sýn-
ingar á skipulagi ráðhússreits
Morgunblaðinu barst i gær
eftirfarandi bréf frá samtökun-
um Tjörnin lifi til Davíðs Odds-
sonar, borgarstjóra:
í tilefni af sýningu þeirri á skipu-
lagi ráðhússreits sem nú fer fram
að Hallveigarstíg 1 viljum við taka
fram:
1. Þar sem ekki er fullnægt skil-
yrðum 17. greinar skipulagslaga
við auglýsingu og framkvæmd um-
ræddrar kynningar, teljum við að
hún hafí ekkert lagalegt gildi skv.
skipulagslögum nr. 19/1964.
Við viljum árétta að kynningin
getur heldur ekki talist lögmæt
kynning á þeim breyttu teikningum
að ráðhúsi sem borgaryfírvöld
sækja nú um byggingaleyfí fyrir.
2. Þrátt fyrir að kynningin hefur
ekkert lagalegt gildi, verður hér
fundið að því hvemig að henni er
staðið, og viljum við í því sambandi
benda á eftirfarandi:
a. Algert ósamræmi er milli
þeirra gagna sem sýnd eru. Þama
ægir saman myndefni af eldri gerð
hússins og þeirri byggingu sem nú
er sótt um byggingaleyfí fyrir, án
þess að þær séu auðkenndar. Engin
grein er gerð fyrir því að teikningar
hafa tekið breytingum og bygging-
amar stækkað til muna frá því
verðlaunatillagan var birt og frá
því deiliskipulag Kvosarinnar var
staðfest.
Útlit hússins er breytilegt frá
einni mynd til annarrar, méira að
segja sýna líkönin tvö ekki eins
byggingu. Aðkoma að bílageyslum
er ýmist um eina eða tvær gjár, og
nær því mislangt út eftir Tjamar-
götu.
Stærð hússins er einnig breytileg,
jafnvel innan fjölda af myndum sem
hanga saman, án þess að nokkur
skýring sé gefín. Áberandi er að
eldri gerð hússins er sýnd á öllum
myndum þar sem líkan af ráðhúsinu
hefur verið fellt inn í ljósmynd af
nágrenninu. Þess er þó hvergi get-
ið, að byggingin sem nú er sótt um
byggingarleyfi fyrir er 5000 m3
stærri en þessar myndir gefa til
kynna.
b. Mælikvarða vantar á flölda
mynda og á annað líkanið, og er
því erfítt að gera sér grein fyrir
stærðum.
c. Einu tölumar sem birtar eru
um stærð eða byggingarmagn eru
á fagteikningum arkitekta sem
lagðar voru fram sem fyrirspum á
bygginganefndarfundi 25. febrúar
1988. Þessar teikningar em flóknar
og tölumar em svo ill-læsilegar að
þær em leikmönnum nánast óskilj-
anlegar og meira að segja geta fag-
menn varla skilið hvað þar stendur.
Jafnvel nú, þegar þessari kynningu
er að Ijúka, virðast starfsmenn
Byggingaþjónustunnar þar sem
sýningin fer fram, vita sáralítið um
stærð hússins. Þeir þurftu lengi að
leita að þessum tölum þegar við
spurðum um þær í gær, og þrátt
fyrir góðan vilja gátu þeir t.d. ekki
greint hvort byggingin á að verða
21 þúsund eða 24 þúsund rúmmetr-
ar. Augljóst er að almenningur
stendur enn verr að vígi við að reyna
að átta sig á þessum svokölluðu
upplýsingum.
Norræna húsið:
NORSKI vísnasöngvarinn Erik
Bye kemur fram i Norræna hús-
inu í kvöld kl. 20.30 og syngur
eigin vísur og annarra við undir-
leik pfanóleikarans WiUy Andre-
sen. Einnig les hann upp úr bók-
um sínum. Þeir eru staddir hér
í boði Norræna hússins vegna
Norskra bókadaga, sem standa
yfir í Norræna húsinu tíl 28.
mars.
Erik Bye er afar vinsæll sjón-
varpsmaður í Noregi, en hann hefur
starfað hjá norska ríkisútvarpinu í
30 ár og stjómað og haft umsjón
með dagskrám um hin ólíkustu efni.
d. Gestabók sú sem liggur
frammi og höfð er til marks um
hve margir hafí sótt sýninguna, er
með lausum blöðum sem ekki eru
tölusett, — auk þess sem segir í
prentuðum texta á hveiju blaði að
sýningin standi yfír frá 24. apríl til
25. mars 1988.
Allt ber þetta að sama brunni
og sýnir að þessi kynning er bæði
formlega og efnislega ófullnægj-
andi og embætti yðar til lítils sóma.
3. Að lokum viljum við benda
yður á, að aðdragandi þessarar
kynningar og ummæli yðar í fjöl-
miðlum um þá afgreiðslu sem at-
hugasemdir almennings við hana
munu fá, hafa leitt til þess að fjöldi
borgarbúa tekur ekki kynninguna
alvarlega og sér því ekki ástæðu
til að senda inn athugasemdir.
Við bíðum þess því enn að skipu-
lagsuppdráttur með ráðhúsi Reyk-
víkinga fái þá lögboðnu afgreiðslu
sem ein er yfírvöldum sæmandi.
Með kveðju,
f .h. samtakanna Tjörnin lifi,
Guðrún Pétursdóttir
Auk þess er hann afkastamikill rit-
höfundur og hefur hlotið ýmsar við-
urkenningar fyrir bækur sínar.
Hann er einnig vinsæll vísnasöngv-
ari og hefur sungið inn á margar
hljómplötur og haldið tónleika víða.
Erik Bye stóð, ásamt fleirum, að
skemmtun, sem haldin var til
styrktar Vestmanneyingum vegna
gossins 1973 og var heiðraður með
fálkaorðunni. Willy Andresen, sem
leikur með Erik Bye, er einnig gam-
alreyndur tónlistarmaður og hefur
starfað hjá norska ríkisútvarpinu
um árabil.
(Fréttatílkynning)
Erik Bye syngnr vísur
og les úr eigin bókum
Plötusnúður
ársins 1988
NÚ ER framundan diskótekara-
keppni félagsmiðstöðvanna
Íriðja árið í röð. Sem fyrr er það
jtrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur og félagsmiðstöðin
Frostaskjól sem standa að þess-
ari keppni og hefur hún mælst
vel fyrir. í ár munu félagsmið-
stöðvar frá Reykjavík, Kópavogi,
Garðabæ, Mosfellssveit og Akur-
eyri senda diskótekara í keppn-
ina.
Keppnin er fyrst og fremst hugs-
uð fyrir unga og efnilega plötu-
snúða til að spreyta sig og koma
sér á framfæri.
Sá eða sú sem vinnur þessa
keppni hlýtur nafnbótina „Plötu-
snúður ársins 1988“ og kemur fram
undir því nafni í fjölmiðlum og fjöl-
mörgum diskótekum.
Vegleg verðlaun fylgja þessum
titli frá Japis, en auk þess fá allir
þátttakendur sem komast í úrslit
plötuverðlaun.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir
unga og efnilega plötusnúða að
koma sér á framfæri og er öllum
opin þátttaka á aldrinum 13—17
ára (f. 71—73 að báðum árum
meðtöldum). Skráning og pöntun
æfíngatíma fer fram í félagsmið-
stöðvunum.
Undanúrslit verða 21., 23. og 24.
marz í félagsmiðstöðinni Frosta-
skjóli og úrslitin föstudaginn 25.
marz á sama stað.
Allar nánari upplýsingar eru góð-
fúslega veittar í Frostaskjóli.
(F réttatilky nning)
rri?jif7)irri0r r/ír
t E,iíMiIViiJiKlrdUr
Hárblásari
FOEN® 1200
• 1200W
• 2 hitastillar
• Handhægur
íveski
• 220V
ogllOV
AEG
AFKÖST
ENDING
GÆÐI
Pæst hjá umboðsmönnum um land allt.
BRÆÐURNIR
ÖRMSSONHF
Lágmúla 9, sími: 38820