Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
Sólarlandaferðir vinsælastar:
Stefnir í metár hjá Polaris
- segir Karl Sigurhjartarson forstjóri
Frá Alcudiaströndinni á Mallorca. í baksýn er Ciudad Blanca íbúða-
hótelið, sem er eitt þeirra hótela sem Polarisfarþegar gista á.
„ÞAÐ er ljóst að það stefnir í
enn eitt metárið hjá okkur og
sólarlandaferðimar eru þar
áberandi vinsælastar sagði
Karl Sigurhjartarson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Polaris, er
hann var spurður um eftirspurn
í sumarferðir ferðaskrifstofunn-
ar á sumri komanda. Karl sagði
að þrátt fyrir mjög gott ár í
fyrra, sem raunar var metár,
væri aukningin nú á milli 30 til
40%.
Polaris býður upp á sólarlanda-
ferðir til Mallorca og Ibiza á Spáni
og Florida í Bandaríkjunum og auk
þess ferðir í sumarhús í fjórum
Evrópulöndum, flug og bíl og svo-
kallaðar ævintýraferðir til Thai-
lands, Brasilíu, Mexico eða siglingu
á Karíbahafi. Karl sagði að mest
ásókn væri í Spánarferðimar auk
þess sem Florida ynni stöðugt á.
Eins hefði verið talsverður áhugi
fyrir siglingu um Karíbahaf, enda
væru þær ferðir tiltölulega ódýrar
miðað við þá þjónustu sem þar er
boðið upp á. „Það eru þó slólarferð-
irnar til Spánar sem fólk hefur
mestan áhuga á að þessu sinni, og
mér virðist að heldur sé að draga
úr áhuganum á sumarhúsum og
flugi og bíl, miðað við undanfarin
ár,“ sagði Karl.
A Mallorca býður Polaris upp á
dvöl á Alcudiaströndinni og sagði
Karl að þar væri óvenju góð að-
staða fyrir bamafjölskyldur enda
hefði Polaris lagt sérstaka áherslu
að hafa ofan af fyrir bömunum í
þessum ferðum. Pjakkaklúbburinn
svonefndi hefði notið mikilla vin-
sælda, jafnt meðal bama og for-
eldra auk þess sem boðið væri upp
á fjölmargt til afþreyingar og
skemmtunar, svo sem skoðanaferð-
ir og siglingar um Alcudiaflóann,
svo nokkuð sé nefnt. Polaris er með
vikulegar ferðir til Mallorca og er
nú þegar uppselt í margar þeirra.
Karl sagði að Ibizaferðir Polaris
hefðu notið mikilla vinsælda undan-
farin ár enda væri þar allt miðað
við þarfír hinna hressu og lífsglöðu.
Það væri hins vegar misskilningur
að halda að Ibiza væri aðeins fyrir
ungt fólk. Þar væri boðið upp á
eitthvað fyrir alla, ekki síður fyrir
fjölskydlufólk en aðra. Því væri hins
vegar ekki að neita að mannlífið
þar væri fjölbreyttara og skraut-
legra en víðast hvar annars staðar
á Spáni. Polaris flýgur á þriggja
vikna fresti til Ibiza og að sögn
Karls er nú uppselt í allar ferðir
nema þijár.
Hann sagði að Floridaferðimar
nytu einnig vaxandi vinsælda enda
væm ferðir til Bandaríkjanna til-
tölulega ódýrar núna vegna stöðu
dollarans. Polaris biði einnig upp á
siglingu um Karíbahaf á verði sem
flestir réðu við og hefði fólk sýnt
þessum ferðum talsverðan áhuga.
Karl sagði að ferðamátinn flug og
bíll hefðu fest sig í sessi og eins
væri alltaf talsverð eftirspum eftir
sumarhúsum og hefði Polaris úr að
velja rúmlega 10 þúsund húsum
víðs vegar um Evrópu.
„Þessi mikla eftirspum að und-
anfömu hefur vissulega komið á
óvart í ljósi þess að mikil óvissa
hefur verið á vinnumarkaði. Nú
virðist, sem betur fer, séð fyrir end-
ann þessum á vinnudeilum og því
má búast við að eftirspumin eigi
enn eftir að aukast," sagði Karl
Sigurhjartarson, forstjóri Polaris.
UPPLÖGÐ ÚTIVIST
FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA
BLAFJALLADAGUR
Á SKÍÐUM
Bláflallanefnd efnirtil sérstaks skíðadags í Bláfjöllum laugardaginn 26. mars.
Tilgangurinn er að vekja athygli á heilbrigðri útivist til fjalla og veita almenningi
kennslu í svigi og skíðagöngu.
Boðið verður upp á ókeypis kennslu í svigi og göngu í öllum hæfnisflokkum.
Allar skíðabrekkur og göngubrautir verða opnar ásamt öllum lyftum.
Sérstök bamagæsla verður á svæðinu. Svifdrekamenn munu sýna listir sínar og
Harmoníkufélagið leikur „skíðatónlist".
Veitingar verða seldar á öllum kennslusvæðum.
Hátíðin hefst kl. 10:00 og stendurtil kl. 17:00.
FJÖLMENNUM í BLÁFJÖLL, GÆTUM FYLLSTU
VARKÁRNIJAFNT í AKSTRI, SEM Á SKÍÐUM.
BLÁFJALLANEFND
TOB0PIN
nuvátt
Urbeinaður reylcriir
879r
svínahnakki
Ej Opið til kl. 20.00 í kvöld
Laugardaga til kl. Iójoo
— ----------
I Kjörbúð Lóuhólum 2-6 sími 74100 f
_ in«VíUÍ
mmmm