Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
47
VÍSINDI OG
SKILNINGUR
eftir Þorstein
Guðjónsson
í tímariti, sem nefnist Þjóðlíf,
febrúar 1988, og í Morgunblaðinu
15. marz birtust tvær greinar, þar
sem lítillega er minnzt á mig, og
þótti mér ekki ástæða til athuga-
semda, einkum þar sem í síðari
greininni, eftir Ragnar Gunnarsson
stud. med. var mín vinsamlega get-
ið — þó að greina mætti skoðana-
ágreining um eitt atriði.
Nú bregður svo við nokkrum
dögum síðar, að í sama blaði birtist
grein, merkt nafninu Ari Tryggva-
son, og byrjar sem svar til Ragnars
Gunnarssonar fyrir hönd Þjóðlífs,
en er að öðru leyti ein samfelld
árás á mína persónu, sem nefnd er
þrisvar sinnum, einu sinni með feitu
letri, eins og líka félag, sem ég hef
lengi starfað með.
Þar sem ég hef aldrei, svo ég
viti til, séð Ara Tryggvason og ekki
átt samstarf með honum á nokkum
hátt, né heldur andstarf, mun ég
ekki blanda mér í ritdeilur hans við
aðra menn, og verður hann að ljúka
þeim án minnar hlutdeildar.
Greinilegt er, að heiftyrði þessa
manns, A.T., beinast gegn Félagi
Nýalssinna og starfsemi þess um-
fram allt annað — eins og líka fyrri
greinin í tímaritinu Þjóðlífi hafði
gert — en ekki getur verið, að skoð-
un hans á félaginu sé sprottin af
eigin reynslu, þar sem hann er þar
öllum ókunnugur.
Þar sem A.T. minnist á vísindi,
er af mikilli vanþekkingu talað, og
heldur hann, að segulböndin séu
þar kjarni málsins. „Vísindin eru
fyrst og fremst skilningur“ hefur
vitur maður, Þorsteinn Jónsson,
sagt, að þyrftu sem flestir að hafa
gert sér það ljóst, áður en þeir fara
að nota segulböndin og hver önnur
gagnleg gagnasöfnunartæki.
Höfundur er formaður Félags
Nýalssinna.
Þvottheldni og styrkleiki
í hámarki
í fjórum gljástigum
• Kopal innimalnlngln fæst nu i fjorum gijastigum.
• Nu velur pu þann gljaa sem hentar per best og
malningln er tilbuln beint ur cfoslnni.
• Nu heyrir pað fortiðlnnl til að purfa að blanda
malnlnguna með herðl og oðrum gljaefnum.
VELDU KOPAL I FJÓRUM GLJASTIGUM:
i B wm _
með jarðarberjum
lOOg MEIRIJOGURI
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!*
* Eða réttara sagt 102 g þegar miðað er við verð á jógúrt í 180 g dósum.
Sjáðu nú til: 500 g dós af jógúrt kostar 73 kr.*
180 g dós af jógúrt kostar 33 kr.*
Sem sagt: Það er 20,4% ódýrara að kaupa stóra dós.
Tilheyrir þú samrýndri fjölskyldu sem kemur sér
saman um hlutina, þar á meðal bragðtegundir?
Þú drýgir heimilispeningana með því að kaupa
eina stóra dós af jógúrt frekar en 2-3 litlar.
Það er óneitanlega smábúbót þessa dagana. ____
HVERVUIEKKIGERAGÓÐKAUP?-n\S~
leiðbeinandi verð.