Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
Minning:
*
Arsæll Jónsson
húsasmíðameistari
Fæddur 31. janúar 1928
Dáinn 18. mars 1988
Eftir langa baráttu við þungbær
veikindi er nú fallinn frá Arsæll
Jónsson starfsmaður Akraneskaup-
staðar. Um 35 ára skeið starfaði
Ársæll í slökkviliði Akraness og var
varaslökkviliðsstjóri um árabil.
Hann tók virkan þátt í uppbyggingu
slökkviliðsins og á sinn þátt í því
að gera það að því öfluga og vel
búna liði sem það er í dag. 'Þannig
skilur Ársæll eftir sig spor sem
.0
^eðslurafhlaöas.^^.^.
SSfeSST-
. Tracer“Sérle9avönduðr^élmeðni
hléðslurathlöðuAiv®rr hn|)urT1 Stór
SSSjfSfi--
• Tveg9Ía r®k*l,.n
ratmagnsrakv •
Sérlega vönduð og
nútíman'eg
honnun.Fliótand'
rakhausar með 9u
ritumhvor.
Bartskeri. Halli a
vélarhaus sem
auðveldarratóturá
ertiöaristoðum.Fer
vel í hendi.
HIHðarpokitylQ •
Fáanleg I rauðu og
svörtu.
.Priggla^r
ratmagnsr^
HverhausmeðlZ
siáHbrýnanó'
sssssr
'sern auðve'öar þrit.
Ivönduðtaska.
'' •Dömu,akVés°S'SmhnÍblaöi.og
------- rakvél.Rakhausm^vé larhaus.auú-
- i SSb-S'íT1’
* vikur við venjulega notk
PHILIPS
iHuEinzCBE^M
ESZBISEIZEzniES}
v
<ö>
He\rr\i»istaek'
\ hf
seint verða afmáð. Frá árinu 1982
starfaði Ársæll sem eftirlitsmaður
eldvama á Akranesi og frá árinu
1985 bættust Skilmannahreppur og
Innri-Akraneshreppur við skyldu-
störf hans. Slökkviliðið átti hug
Ársæls allan og því var honum ljúft
að sinna skyldum sínum af natni
og alúð. Ársæll skilaði farsælu
starfi til bæjarfélagsins sem aldrei
verður að fullu þakkað.
Með þessari fátæklegu kveðju
bæjarstjómar og starfsmanna
Akraneskaupstaðar eru innilegustu
samúðarkveðjur sendar eftirlifandi
eiginkonu Ársæls, Margréti
Ágústsdóttur, bömum þeirra og
aðstandendum.
Virðingarfyllst,
Gísli Gíslason
Kveðja frá
Kiwanisklúbbnum Þyrli
Félagar í Kiwanisklúbbnum Þyrli
á Akranesi sjá nú á bak einum fé-
laga sinna, Arsæli Jónssyni, húsa-
smíðameistara, sem andaðist um
aldur fram 18. mars sl. 60 ára gam-
all. Ársæll var aldursforseti klúbbs-
ins og var fyrstur félaga til að ná
60 ára aldri en það varð hinn 31.
janúar sl. Ársæll var þá orðinn fár-
sjúkur maður og sýnt að hvetju
stefndi þannig að fátt gat orðið um
fagnað meðal klúbbfélaga með hon-
um_á þessum afmælisdegi.
Ársæll var fæddur á Akranesi.
Ólst þar upp og bjó þar allan sinn
aldur. Hann var næstyngstur sjö
bama þeirra hjónana Guðrúnar Jó-
hannesdóttur og Jóns Péturssonar,
viktarmanns í Sandvík, en svo hefur
húsið á Vesturgötu 77 ætíð verið
nefnt og í daglegu tali meðal fólks
var hann gjaman kallaður Alli í
Sandvík.
Ársæll var húsasmíðameistari að
iðn og lengst af starfsferils síns
vann hann við smíðar, húsasmíðar
og skipasmíðar, ýmist hjá öðmm
eða á eigin vegum. Hin síðustu ár
var hann umsjónarmaður Slökkvi-
stöðvar Akraness en hann hafði
lengi verið slökkviliðsmaður og m.a.
gegnt starfi varaslökkviliðsstjóra.
Arsæll var með hærri mönnum
að vexti og vel á sig kominn. Hann
lét til sín taka á ýmsum sviðum og
var einlægur og áhugasamur þar
sem hann tók til hendi. Það sem
einkenndi hann mjög í daglegri
umgengni og á góðri stund var
gáskafull gamansemi, græskulaus
og upplífgandi, sem kom öðrum
jafnan í gott skap. Við félagamir
í Kiwanisklúbbnum Þyrli nutum í
nkum mæli þessa ágæta eiginleika
Ársæls.
Kiwanisklúbburinn Þyrill tók til
starfa á árinu 1970 og gekk Ársæll
í upphafí í klúbbinn og tók þátt í
starfi hans allt til síðustu stundar.
Starfsemi klúbbsins hefur ávallt
verið mjög blómleg og félagar verið
virkir. Ársæll lét þar sinn hlut ekki
eftir liggja og hér skulu honum
færðar þakkir frá klúbbfélögum
fyrir þann góða skerf, sam hann
lagði að mörkum í þágu sameigin-
legra markmiða. Hér mætti margt
tina til, en þeim sem þessar línur
ritar er minnisstætt, er sendinefnd
fór frá klúbbnum um hvítasunnu
árið 1974 til að taka við hinum
kunna kútter Sigurfara, sem klúbb-
urinn hafði forgöngu um að fá frá
Færeyjum. Kútterinn hafði verið
tekinn í tog a_f öðru skipi og var
nú að koma til íslands aftur. Vorum
við þrír félagar í nefndinni og var
Arsæll einn þeirra. Var ekið sleitu-
laust frá Akranesi til Neskaupstað-
ar aðfaranótt hvítasunnudags og
kúttemum veitt viðtaka þar árla
morguns er hann lagðist að
bryggju. Eftir skamma viðdvöl og
hvfld var snúið aftur til Akraness
og haldið suður fyrir. Var öllum
hringveginum lokað á einum og
hálfum sólarhring.
Fráfall Ársæls Jonssonar ber að
allt of fljótt. í hugum þeirra, sem
hann hafði samneyti við ríkja tregi
og söknuður um þessar mundir.
Þyngst kemur þetta þó niður á
hans nánustu, eiginkonu og böm-
um. Árið 1953 steig Ársæll það
heillaspor að eiga elskulega og
mæta konu, Margréti Ágústsdóttur
frá Þingeyri í Dýrafírði. Síðan hafa
þau búið saman í hamingjuríki
hjónabandi og lifir Margrét mann
sinn ásamt fjórum uppkomnum
bömum þeirra, Guðmundi, Guð-
rúnu, Eddu og Gunnari. Við þessi
þungbæm tímamót senda Kiwanis-
félagar á Akranesi hugheilar sam-
úðarkveðjur til Margrétar, bama
þeirra og annarra aðstandenda, sem
eiga um sárt að binda.
Blessuð sé minning hins glað-
sinna féiaga okkar, Ársæls Jóns-
sonar.
F.h. félaga í Kiwanis-
klúbbnum Þyrli,
Guðmundur Vésteinsson
6
HITACHI HUOMTÆKJASETT
með geislaspilara
og fjarstýríngu
Verð með geíslaspilara:
kr. 63.100
kr. 59.945,-
stgr.
Verð án geislaspilara:
kr. 44.000,-
kr. 41.800,-
Meiriháttar tæki á ótrúlegu verði.
Góð afborgunarkjör.