Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
21
Saga Reisen í Sviss:
Enginn selur fleiri
íslandsferðir
Morgunblaðið/Sverrir
Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri, Beat Iseli og Kjartan Lárusson
forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins skoða bækling Saga Reisen.
SAGA Reisen heitir svissnesk
ferðaskrifstofa, sem hefur und-
anfarin 10 ár sérhæft sig í Is-
landsferðum. Þótt aðeins um
l*/2% af heldarferðamanna-
fjölda, sem hingað kom i fyrra,
eða um 1800 manns, hafi ferð-
ast á vegum skrifstofunnar, er
fyrirtækið stærsti stærsti er-
lendi söluaðili íslandsferða.
Eigandi Saga Reisen, Beat Is-
eli, er staddur hérlendis á 10 ára
afmæli fyrirtækisins og er að
vinna að undirbúningi háannatím-
ans í sumar. Fyrirtæki hans er að
fara inn á nýjar brautir við að
kynna ísland fyrir svissneskum
ferðamönnum. Meðal annars hefur
Iseli látið gera V2 mínútu langa
sjónvarpsauglýsingu, sem sýnd
verður í svissnesku sjónvarpi í
apríl og maí, og einnig hefur hann
náð samstarfí við stóra svissneska
ferðaskrifstofu, sem nú auglýsir
íslandsferðir í aðalbæklingi sínum,
ásamt öðrum orlofsferðum. Að
! sögn Iselis er hvort tveggja mikill
áfangi í því starfí að kynna ís-
landsferðir svissneskum almenn-
ingi; ólíkt því sem hér tíðkast eru
auglýsingar frá ferðaskrifstofum
sjaldséðar í svissnesku sjónvarpi
og ferðir hingað hafa ekki, fyrr
en nú, fengið inni í bæklingum
yfír allar orlofsferðir sem sviss-
neskum almenningi stendur til
boða. Iseli hyggur einnig í sumar
á landvinninga á ítölskum mark-
aði, í framhaldi af því að Amar-
flug er nú að hefja áætlunarflug
til Mílanó. Hann gerir ráð fyrir
að flytja hingað í sumar 4-500
ítalska ferðamenn, auk um það
bil 2000 svissneskra.
Iseli hefur gefíð út litprentaðan
bækling um íslands- og Græn-
landsferðir Saga Reisen og ritar
Matthías A. Mathiesen samgöngu-
ráðherra ávarp í bæklinginn og fer
lofsamlegum orðum um starf fyr-
irtækisins hérlendis. Hið sama
hefur Jonathan Mozfeldt formaður
grænlensku landsstjómarinnar
gert. Kjartan Lámsson forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins og Birgir
Þorgilsson ferðamálastjóri sögðu
að viðurkenning af þessu tagi
segði meira en mörg orð um hve
góðan orðstír Saga Reisen hefur
getið sér hérlendis.
Viðskiptavinir Saga Reisen em
á öllum aldri og úr flestum stétt-
um, að sögn Iselis. Þó sagði hann
að nokkuð vantaði á að tekist hefði
að selja fjölskyldufólki með börn
ferðir hingað. Flestir ferðamann-
anna ferðast um landið þvert og
endilangt en að sögn Iselis ver um
það bil þriðjungur þeirra sem hing-
að koma á hans vegum mestum
tíma sínum í Reykjavík, býr á
hóteli meðan á allri dvölinni stend-
ur og fer í stuttar kynnisferðir til
áhugaverðra staða. Beat Iseli
sagði að ferðir til íslands væm
talsvert dýrari fyrir Svisslendinga
en sólarlandaferðir en væm fylli-
lega samkeppnishæfar við ferðir
til annarra Norðurlanda, sem væri
helsti samkeppnismarkaðurinn.
Fjölbreyttar ferðir em í boði en
algeng tíu-fjórtán daga ferð kostar
um 2000 svissneska franka, 56
þúsund íslenskar krónur, og er
gisting þá innifaldin sem og skoð-
unarferðir. Á vegum Saga Reisen
starfa íslenskir leiðsögumenn og
meðal samstarfsaðila fyrirtækisins
má nefna Samvinnuferðir, Guð-
mund Jónasson og Ferðaskrifstofu
ríkisins.
Útivist:
Fjölbreyttar
páskaferðir
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist gengst
fyrir lengri og skemmri ferðum
til ýmissa áfangastaða um pásk-
ana.
Á skírdag, föstudaginn langa,
laugardag og annan dag páska
verða famar dagsferðir. Lagt verð-
ur af stað frá BSÍ klukkan 13.
Meðal áfangastaða er Tröllafoss en
einnig verður farin 10. gangan í
ferðasyrpu, þar sem gengið er með
ströndum í landmámi Ingólfs. Boðið
er upp á fleiri ferðir, meðal annars
verður farið til kræklingatínslu.
Útivist gengst einnig fyrir 3 og
5 daga ferðum í Þórsmörk og á
Snæfellsnes. í Þórsmerkurferðum
er gist í skála félagsins í Básum.
Skipulagðar eru lengri og skemmri
gönguferðir um Mörkina og meðal
annars er í boði 5 daga skíðagöngu-
ferð á Fimmvörðuháls. Á Snæfells-
nesi er gist í félagsheimilinu Lýsu-
hóli í Staðasveit. Auk Jökulgöngu
verða famar strandgöngur á þekkt-
ar jafnt og lítt þekktar slóðir.
Nánari upplýsingar um ferðir
Útivistar em veittar á skrifstofu
félagsins að Grófinni 1.
GEFÐU FERMINGARBARNINU HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐU FRÁ NESCO LAUGAVEGI
H LJÓMTÆKJ ASAMSTÆÐUR
FRÁ 13.900 KR.
<
</)
£
Hljómtækjasamstæöa er vinsælasta ferm-
ingargjöfin. Hjá Nesco Laugavegi færðu
v.þýskar Schneider og japanskar Akai
hljómtækjasamstæður í miklu úrvali.
Hvaöa samstæöu langar þig helst til að
gefa?
Schneider midi 2100 *40 wött *tvöfalt
kassettutæki *tengi fyrir hljóðnema og
höfuðtól *hraðupptaka *stöðug spilun
*plötuspilari *kostar aðeins I3.900k|r-
(stgr.)
Schneider midi 2600 *80 yvött *þráðlaus
fjarsfyring *útvarp með fm-, mið- og lang-
bylgju *5 banda tónjafnari *tvöfalt kassettu-
tæki *hraðupptaka og stöðug spilun *sjálf-
virkur veljari fyrir króm- og normal kassettur
*plötuspilari með magnetísku tónhöfði
*geislaspilari með 16 laga minni og 3ja
geisla tónhöfði *góðir hátalarar *svartur
skápur *kostar aðeins 26.900 kr. (stgr.)
Með geislaspilara 38.800 kr. (stgr.)
Akai m-312L * 180 wött *digital útvarp
með fm-, mið- og langbylgju *16 stöðva
minni *5 banda tónjafnari *tvöfalt kassettu-
tæki *hraðupptaka og stöðug spilun *sjálf-
virkur veljari fyrir króm- og normal kassettur
*vandaður plötuspilari *góðir hátalarar
*geislaspilari með 16 laga minni og 3ja geisla
tónhöfði *kostar aðeins 35.900 kr- (stgr.)
Með geislaspilara 47.8OO kr- (stgr.)
Akai m-512L *220 wött *þráðlaus fjarstýr-
ing *digital útvarp með fm.-, mið- og lang-
bylgju *16 stöðva minni *5 banda tónjafn-
ari *tvöfalt kassettutæki *hraðupptaka og
stöðug spilun *vandaður plötuspilari *góðir
hátalarar *geislaspilari með 16 laga minni
og 3ja geisla tónhöfði *einnig til í breiðari
útfærslu (42,5 cm) *kostar aðeins 41.800
kr. (stgr.) Með geislaspilara 53.700
(stgr.)
Eigum einnig Schneider spp 112 *40 wött
*kostar aðeins 18.900 kr-
Schneider midi 2800 * 100 wött
*kostar aðeins 35.900 kr-
Athugiðl Hvergi lengri ábyrgð en hjá
gKKUI1. ---------------——--------------------1
IRUGRI/EGUR HF
Laugavegi 10, sími 27788