Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
C 5
„Ég bara geri. .. það er aldrei
neitt vandamál. Auðvitað er þetta
vinna, en mér fínnst það samt ekki.
Ég hef verið læs á tónlist síðan ég
varð læs, svo túlkun í tónlist er
mér jafn töm eða tamari heldur en
orð.“
Að kasta burt sjálfinu
„Ég hef gripið í að kenna í Söng-
skólanum meðan ég hef verið hér
og þá meðal annars sagt nemendun-
um að það gildi að kasta burt sjálf-
inu, en nota sig sem verkfæri.
Söngvarinn er hljóðfæri, sem gerir
sitt besta samkvæmt eigin tilfinn-
ingu og viðmiðun. Svo er bara að
vona að aðrir kunni líka að meta
viðleitnina.
Tónskáldin skrifa fyrir ákveðin
hljóðfæri og í ákveðnum takti. I
hljómsveitarverki tekur stjómand-
inn auðvitað mið af taktinum, en í
framkvæmd er það takturinn í
manni sjálfum sem er spilaður. Og
takturinn er breytilegur frá sýningu
til sýningar.
Sem þjálfaður píanóleikari get
ég sest niður og spilað verk, sem
ég hef ekki séð áður, verk eftir
Janácek, Mozart eða aðra. Ekki
snilldarvel í fyrstu, en hef nógu
margar stílviðmiðanir í kollinum,
svo verkið fær strax einhveija
merkingu fyrir mér, fmn strax ein-
hvetja endurómun í því.
í ópem hugar stjómandi strax
að áferð hljómsveitarleiksins og að
litnum hjá söngvurunum. í Don
Giovanni skiptir til dæmis miklu
máli að draga fram þá þætti, sem
er vitað að Mozart lagði mikla alúð
í, fagottið myndar þama eins konar
andlag, víólulínan verður að vera
skýr. Mozart dró gjarnan fram
dökku litina í tónlistinni. Þessir
hlutir týnast of oft í flutningi.
Svo er líka merkilegt hvemig
hægt er að hlusta á tónlist. Það er
hægt að hlusta yfirborðslega, eins
og við gemm kannski þegar við
heymm einhveija tónlist í lyftu. En
svo er hægt að hlusta af athygli,
til dæmis á tónleikum. Þar sjáum
við tónlistina verða til, sjáum þegar
einstök hljóðfæri koma inn og get-
um þá hlustað sérstaklega eftir
þeim. í ópemnni sést hljómsveitin
ekki, svo þar styður sjónin ekki.
Hljómsveitarspilið þarf því að vera
enn skýrara en ella. Reyndar kýs
ég alltaf skýrt spil, rétt eins og ég,
vil lesa skýrt prentaðar bækur og
án prentvillna. Fyrir sýninguna hér
unnum við mikið einmitt til að þoka
okkur í átt að skýrleika, þá líka í
framburðinum, byrja og hætta sam-
an, ná jafnvægi . . .
Auðvitað em flestir tónlistar-
menn meðvitaðir um þessi atriði,
sammála um að tónlist eigi ekki öll
að hljóma eins og þéttofin, impressj-
ónísk tónlist, sérstaklega ekki
klassísk verk, en samt sem áður
verður niðurstaðan alltaf ólík.“
„Mozart náði einhverri
fullkomnun . . .“
Mozart guðdómlegur . . . Hvað
er það í tónlist hans sem gerir hana
slíka?
„Mozart náði einhverri fullkomn-
un í tónlist sinni, í hendingum, sam-
hljómi, takti og taktbreytingum,
allt eitthvað svo rétt í tónlist hans.
Það er uppörvandi að hugsa til þess,
að þó það sé svo langt síðan hann
var að, þá streymir hið góða enn
látlaust fram. Ég vildi helst deyja
hlustandi á Mozart, til dæmis Sin-
fóníu concertante fýrir fiðlu og
víólu. Þegar einleikshljóðfærin
grípa inn í þar, þá er það eins og
ljósflæði. Á slíkum stundum hefur
Mozart komist í snertingu við eitt-
hvað handan og ofan við allt. Og
það undursamlega er að hann sat
sjaldnast-lengi yfir verkum sínum,
þau bara spruttu fram og það heyr-
ist líka á þeim. Beethoven er líka
minn maður, en hann þurfti að
hafa mikið fyrir að semja og það
er auðheyranlegt."
Tónskáldið tjáir tilfinningar sínar
í tónlist sinni. Svo kemur tónlistar-
maðurinn og spilar hana. Er þá eitt-
hvert rúm fýrir persónulega tján-
ingu hans í verki tónskáldsins?
„Sjálfstjáning er öllum nauðsyn-
leg, að gera eitthvað sem greinir
þá frá öðrum og hver velur það sem
honum hentar best, hvort sem það
er að ganga í klaustur eða stefna
á að skara fram úr svo eftir verði
tekið. Ég hef enga tilhneigingu til
að semja tónlist, en í tónlistinni
fínnst mér ég vera að koma með
eitthvað frá sjálfum mér og það
veitir mér mikla og djúpa ánægju.
Nútímatónskáld eru oft ótrúlega
róleg yfir því hvernig verk þeirra
eru flutt, róleg yfir hendingaskipun
og hraða. Það segir mér að það
ferli er þeim mun fjarlægara en
sjálf sköpun verksins á blaðið var
þeim. Og það að vera frumleg-
ur . . . Það er alltaf um eitthvert
lán frá fortíðinni að ræða.“
„Grípa og hrífa“
„Það kemur hver að tónlistinni á
sinn hátt, en til að hún hrífi, verður
hún alltaf að hljóma frísklega, eins
og hún sé að verða til á þessari
stundu og þessum stað. Grípa og
hrífa . . . Ég man enn þegar ég
fékk í fýrsta skiptið tak í magann
af hrifningu yfir tónlist, var sjö ára
og settist niður til að þræða í gegn-
um Chopin-pólónesu. Það er þessi
sprennutilfinning, ákafi, sem gefur
lífinu gildi. Hæfileiki, sem bömum
er eiginlegur, en sem fullorðnir
glata oft.
Ég vil reyna að halda í þennan
hæfileika í sjálfum mér, því þessi
spenna heldur manni gangandi,
þessi ákafi. Ég vil halda í að geta
sest niður og finnast ég svífa af
hrifningu . “
Texti: Sigrún
Davíðsdóttir
Nýjung á Islandi
CLASSICA gróðurhús - glerskáli
formfagurt- sterkbyggt- dönsk hönnun
Allar upplýsingar veitir:
Heildversl. SMIÐSHÚS, E. Sigurjónsdóttir,
225 Bessastaðahreppur, sími 51800.
Versl. Akurvík, BaldurogÓskarsf.,
Akureyri. Fellabæ, Egilsstöðum.
MAZDA 929
FRA JAPAN!
MAZDA 929 skipar sér á bekk meö þeim bestu
evrópsku, þar sem öll smíði og frágangur er
með því besta sem sést hefur í bíl. Við reynslu-
akstur finnst strax að MAZDA 929 er í hærra
gæðaflokki en gerist og gengur.
MAZDA 929 gerir að auki betur en allir hinir því
hann er með hjálparstýringu á afturhjólum
ásamt mjúkri gormafjöðrun á öllum hjólum,
sem tryggja ýtrasta öryggi og þægindi í akstri,
bæði á möl og malbiki.
MAZDA 929 GLX með 4 gíra sjálfskiptingu
m/overdrive, vökvastýri, rafmagnsrúðum og
læsingum, rafstýrðum útispeglum og fl. kostar
nú aðeins 967 þúsund krónur!
MAZDA 929 er fyrir þig ef þú gerir háar kröfur
og vilt hafa það náðugt!
(gengisskr. 4.3.88)
_________Opið laugardaga frá kl. 1—5
fxl BÍLABORG H.F.
f J FOSSHÁLS11,SÍMI6812 99