Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
C 41
GÓÐ RÁÐ
Allir eiga g’óð ráð að grípa til við ýmis tækifæri. Það á
einnig við um mig og í dag ætla ég að deila nokkrum ráðum
úr safni mínu með ykkur.
+ Hafíð þið reynt að blanda
dálitlu af. majones í kjötfarsið
þegar þið búið til kjötbollur? Það
gerir bollumar afar ljúffengar.
+ Það er óþarfi að fleygja stál-
ullinni þótt sápan sé búin úr
henni. Nuddið sápu aftur í stálul-
lina og svo má nota hana á ný.
+ Eldföst ílát, sem orðin eru
dökk í botninn, er gott að hreinsa
með korktappa og salti. Vætið
tappann og dýfið honum í salt.
Nuddið svo yfir botninn.
+ Hafið þið reynt að hita upp
gamlar vöfflur í brauðrist? Prófið
bara, þær verða næstum eins og
nýjari
+ Ef þið ætlið að hafa eitthvað
fljótlegt og ljúffengt, annað hvort
í kvöldmat eða á eftir bíóferð,
reynið þá þessa „sviknu" pizzu.
Smyrjið formbrauðssneiðar
með smjöri blönduðu tómatkrafti
(purée), hrúgið rifnum osti yfir
og leggið 2-3 sardínur þar ofan
á. Látið inn í vel heitan ofn þar
til osturinn er bráðnaður. Borðið
strax.
+ Pylsur verða betri á bragðið
ef þær eru soðnar í vatni með
kjötteningi í.
+ Þægileg aðferð til að skilja
eggjarauðu frá hvítunni er að
bijóta eggið ofan í litla trekt.
Hvítan rennur þá niður, en rauðan
sitúr eftir.
+ Þegar þekja á köku með hjúp-
súkkulaði er ágætt ráð að leggja
súkkulaðið á heita kökuna í ofnin-
um og láta það bráðna á henni
smá stund. Svo er auðvelt að
slétta úr því á eftir, til dæmis
með pönnukökuhníf.
+ Látið nokkra dropa af sítrónu-
safa út í suðuvatnið á kartöflun-
um, við það verða þær ljósari og
fallegri, sérstaklega ef þær em
ekki alveg nýjar.
+ Þetta ætla ég að láta nægja
úr góðráða-safninu mínu að sinni,
en mig langar að lokum að koma
á framfæri frábærri hugmynd
sem ein af dyggum lesendum
Dyngjunnar sendi mér um það
hvemig auðvelt er að þvo hárið á
eldra fólki og/eða lasburða, sem
á erfitt með að beygja sig yfir
vask eða baðkar.
Sú sem sendi hugmyndina þvær
nú hár fullorðinnar móður sinnar
á eftirfarandi hátt: Móðirin leggst
á gafllausan svefnbekk þannig að
höfuðið er alveg við endann. Svo
leggur dóttirin stórt plast undir
höfuðið og lætur plastið ná niður
í bala sem er við endann á svefn-
bekknum. Mátulega heitu vatni
er svo ausið úr fötu yfir hárið.
Frá því hún fór að þvo hár móður
sinnar á þennan hátt hefur þvott-
urinn verið leikur einn fyrir þær
báðar. Þetta fann umhyggjusöm
dóttir upp til að láta móður sinni
líða vel.
Vona ég að aðrir geti haft gagn
af þessu og færi Sigríði þakkir
fyrir þetta innlegg. Óska svo
henni og öllum öðmm lesendum
Dyngjunnar gleðilegra páska.
Með kveðju,
Jómnn.
EB — ísrael:
Viðskiptasamn-
ingar endursendir
Evrópuþinginu
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsins ákváðu á fundi að
endursenda Evrópuþinginu í
Strassborg viðskiptasamninga á
milli bandalagsins og ísraels sem
þingið felldi 9. mars sl.
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra V-Þýskalands, sem var í
forsæti á fundi ráðherranna, sagði
að Evrópuþingið yrði að axla ábyrgð
á stefnu bandalagsins í Miðjarðar-
hafslöndunum til jafns við aðrar
stofnanir bandalagsins. Ljóst er að
ráðherramir hafa áhyggjur af þvf
að þingið skyldi fella fyrstu samn-
inga sem það fékk til meðferðar eft-
ir að nýjar starfsreglur, sem gera
því kleift að hafna samningum, tóku
gildi. Jafnframt er ljóst að ráðherr-
amir em ekki að mælast til tafar-
lausrar afgreiðslu samninganna
heldur virðast þeir telja skikkanlegt
að bíða átekta og sjá hvort ísraelar
bæta ekki ráð sitt í umgengni við
Palestínumenn á herteknu svæðun-
um. Öll aðildarríki EB hafa gagnrýnt
ísraelsku stjómina fyrir aðgerðir
hennar gagnvart Palestínumönnum,
m.a. fyrir að koma í veg fyrir að
samningur um beinan aðgang pa-
lestínskra afurða að mörkuðum EB
nái fram að ganga.
Námstefna í ferðamálum
Ferðamálanefnd Vestnorden gengst fyrir námstefnu í
sölu og markaðsmálum ferðaþjónustunnar dagana 14.
og 15. apríl á Egilsstöðum.
Framsögumenn á námstefnunni verða:
Birgir Þorgilsson, ferðamálastjóri
Kjartan Lárusson, formaður ferðamálaráðs
Peter Morell Hansen, Arctic Adventure Kaupmannahöfn
Dieter W. Jóhannsson, skrifstofu Ferðamálaráðs Frankfurt
John Melchior, Scanscape Travel London
Beat Iseli, Saga Reisen Sviss
Sigfús Erlingsson, Flugleiðir
Hildur Jónsdóttir, Samvinnuferðir
Jakup Veyhe, ferðamálastjóri Færeyjum
Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig eigi síðar en 8. apríl nk.
Allar nánari upplýsingar veitir Reynir Adólfsson í símum 96-22453
og 26234.
Ferðamálanefnd Ifestnorden
-r
■
t
simi
Skátabúðin - skarar framúr.
Snorrabraut 60
Igloo
Hollofil fylling
+ 25° C — + 15° C
Þyngd 2.000 gr.
Verð 6.790,-
Panther 3
65 lltrar
Þyngd 1.800 gr.
Verð 5.490,-
Jaguar S 75
75 lltrar
Þyngd 1.800 gr.
Verð 7.490,-
Everest 72
72 lltrar
Þyngdi.400g
Verð 3.590,-