Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
SYNING
í KOLAPORTI UM PÁSKANA
Flest
athygliveróustu
farartœki landsmanna eru saman
komin á einni glœsilegustu bílasýningu
Kvartmíluklúbbsins til þessa í Kolaportinu um
páskahelgina. Tugir bíla sem aldrei hafa verió
sýndir hérlendis áóur. Margar geróir fjórhjóla,
jeppar, mótorhjól, sérsmíóaóir kvartmílubílar,
rallbílar, antikbílar og ýmis furóufarartœki
sem öll fjölskyldan hefur gaman
af að sjá.
Tilkomumiklar
myndasýningar alla dagana af
kvartmílukeppnum í Bandaríkjunum og
víðar, veitingasala og frítt kaffi fyrir alla.
Þér býóst aö taka þátt í kosningu
fallegasta, verklegasta og athygliveröasta
kvartmílubílsins ásamt kosningu
um glœsilegasta mótorhjóliö
og fornbílinn.
Miöaverð aðeins kr. 300.-
Frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd fullorðinna.
Opnunartími sýningardagana
Skírdagur 31.mars
Föstud.langi l.apríl
Laugard. 2. apríl
Páskad. 3. apríl
Annar páskad. 4. apríl
Kl. 16-22
Kl. 16-22
Kl. 14-22
Kl. 16-22
Kl. 14-22
Ö.S.UmBOÐIÐ
Skemmuvegi 22 Kópavogi
Simi 73287
Varahlutir - sérpantanir
f alla bíla frá
U.S.A., Evrópu og Japan
JÓLASVEINAR
AFOSTU
eftirKristin
Vilhjálmsson
Þriðjudaginn 8. mars birtust
nokkrar greinar um „bjórmálið“
svokallaða í Morgunblaðinu. Ein var
hógvær og málefnaleg og fjallaði
um niðurstöður skoðanakannana,
hinar með nokkrum endemum þó
að ýmsu sé maður nú vanur af
þeim haugnum þar sem hæst er um
áfengt öl galað.
Einn þeirra þremenninga á þó
hól skilið fyrir að koma fram á rit-
völlinn. Hann er nefnilega þjónn og
greinilega vel fylgispakur hús-
bændum sínum og minnugur þess
að þjónar dæla áfengi í menn eftir
uppmælingu. Annar er gamall
kennari og skólastjóri sem er vanur
að hafa meira vit á öllu milli himins
og jarðar en annað fólk. Sá þriðji
er læknir og bendir réttilega á í
grein sinni að áfengisneysla hefur
aukist meira annars staðar á Norð-
urlöndum en hér undanfarin ár.
Ekki tekst honum þó að draga þá
ályktun af þeim upplýsingum og
liggur þó beint við að drykkja hefur
aukist meira í bjórlöndum en á ís-
landi.
Þjónninn nafngreinir nokkra
heiðursmenn í ritverki sínu, meðal
annarra Árna Helgason sem hann
segir hafa leikið jólasvein fyrir börn
í gamla daga. Vel trúi ég því. Árni
er allra manna fyndnastur og fjör-
ugastur og afar bamgóður enda
leiðtogi barnastúku í áratugi.
Hitt sætir aftur á móti meiri
tíðindum að þrír jólasveinar birtist
í einu og sama blaðinu og enginn
þeirra virðist vera að leika. Og það
sem undarlegast er: Þeir eru í meira
lagi ruglaðir í ríminu, því jólin em
löngu liðin og komið fram undir
páska.
Höfundur hefur verið einn af for-
ystumönnum góðtemplara um ára-
bil.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Frá vinstri eru Björg Jónsdóttir, eigandi Finnabæjar, Elísabet Árna-
dóttir starfsstúlka, Guðrún Skúladóttir starfsstúlka og Jón Guðfinns-
dóttir, sem rekur veitingastaðinn.
Bolungarvík;
Nýr veitingaskáli
Bolung'arvík.
NÝR OG glæsilegur veitingaskáli
var opnaður í Bolungarvik sl.
laugardag. Veitingaskálinn er i
eigu Bjargar Jónsdóttur og hef-
ur hann hlotið nafnið Finnabær
í höfuðið á Guðfinni Friðriks-
syni, eigimanni Bjargar, sem
andaðist fyrir skömmu.
Það er hins vegar dóttir þeirra
hjóna, Jóna Guðfínnsdóttir, sem
rekur þennan veitingastað í eigin
nafni.
Finnabær er í um 100 fm húsi
við Kirkjuveg 1 sem er við inn-
keyrsluna í bæinn. Innréttingarnar
eru allar hinar smekklegustu, unnar
af Gíslínu Guðmundsdóttur innan-
hússarkitekt.
Á boðstólum í Finnabæ verða
Tommaborgarar, pítur, kjúklingar
og brauð ýmiss konar og svo annað
sem slíkir skyndibitastaðir bjóða
upp á. Starfsmenn verða sex og
fyrst um sinn verður staðurinn op-
inn frá kl. 11.30 til kl. 21 eh lengur
í sumar yfír ferðamannatímann.
- Gunnar
HIOKI MÆLIPENNINN
Léttur og nettur, vegur
aóeins 60 gr.
Mælisvið:
0-500V DC/AC
0-°°Viðnám
Díóðuprófun
Geymir afiestur
Eigum f lestar gerðir mæla s.s.
aSrSf NÝSENDING
A-tangir
Hitastigsmæla
Fasfylgdarsjár Kynntu þér
HIOKI
HF. Símar 685854,685855.