Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 18

Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 18
48 :C MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 81. :MARZ 1988 Að sljórna fyrirtæki Erlendar baekur GuðmundurHeiðar Frímannsson Tom Peters: Thriving on Chaos, Macmillan 1988. Það fer ekki framhjá neinum, sem lesa fréttir, að miklar breyting- ar eiga sér stað um þessar mundir í atvinnu- og fjármálum víða um heimsbyggðina. Slíkar breytingar ganga ekki hljóðalaust fyrir sig vegna þess að miklir hagsmunir eru í húfi. En það er hins vegar ljóst, að eigi atvinnugreinar og fyrirtæki að standast samkeppni í nánustu framtíð, blómgast og dafna, þurfa þau að hafa vakandi auga á mark- aðinum, vera reiðubúin að gera sársaukafullar breytingar og grípa tækifærin, þegar þau gefast. Þetta eru auðvitað engin ný sannindi, en samt þarf sífellt að hamra á þeim. Hafi einstaklingar og fyrirtæki gert eitthvað nógu lengi, fer það að verða sjálfsagður hlutur. Því fylgir gjaman stöðnun og, þegar verst lætur, sú skoðun að einhver skuldi manni lífsviðurværi, réttur til að halda áfram að starfa áfram við það sama og maður hefur gert árum jafnvel áratugum saman. Þegar svo er komið, er öllum öðrum ljóst að stutt er í að fyrirtækið fari á haus- inn eða verði gerbreytt. Allt þetta má sjá í breytingunum, sem eru að verða í þungaiðnaði Vesturlanda. Þúsundir manna verða atvinnulausar vegna þess að sams konar vöru eða þjónustu og þeir bjóða, má fá annars staðar í lægra verði og sömu gæðum. Þessa sögu má segja um evrópskan og bandarískan stáliðnað, skipasmíða- iðnað í Vestur-Evrópu og fataiðnað. Stundum ná fyrirtækin að rétta sig við, yfirleitt eftir erfiðar breytingar, en stundum hverfa þau. Ef trúa má höfundi þessarar bók- ar, þá er langtímahneigðin í upp- byggingu fyrirtækja að þau verði smærri, gjaman ekki mikið stærri en með 50 starfsmönnum. Ástæðan fyrir þessari þróun sé sú, að slík fyrirtæki eigi auðveldara með að laga sig að snöggum og róttækum breytingum, sem stærri fyrirtæki geti ekki gert. Það sé einnig ljóst, að ekki sé hagur í stærðinni, eins og menn hafa jafnan talið. Chrysler til dæmis framleiðir sambærilega bila og General Motors á lægra verði, sem nemur 500 dölum. Skýr- ingin á muninum er sú, að 70% af þeim hlutum, sem í bílinn fara hjá Crysler, eru keyptir frá öðrum fyrir- tækjum, en einungis 30% hjá GM. Allt þetta stuðlar að því að fyrir- tæki verði minni í framtíðinni. í þessari bók eru settar fram til- lögur um, hvemig bezt sé að stjóma fyrirtæki við þessar aðstæður. Það yrði löng saga að greina frá því í öllum atriðum, því að þessi bók er hálft sjötta hundrað síðna. En í sem allra styztu máli má segja að fyrsta markmið allra fyrirtækja til að lifa af þær róttæku breytingar, sem framundan séu, sé að bregðast vel og hratt við óskum neytenda. Til að ná þessu markmiði hefur hann tillögur í tíu liðum, þar sem meðal annars er bent á að hlusta vel á hugmyndir viðskiptavina og auka gæði. í öðru lagi þarf að leggja áherzlu á nýjungar í rekstri. Til að ná því verður til dæmis að gefa starfsmönnum aukið vald og betra sé að gera takmarkaðar tilraunir með nýjungar en láta starfsmenn sífellt vera að gera tillögur. í þriðja lagi er nauðsynlegt að gera vel við starfsfólk og þjálfun þess. Að síðustu þurfi að fella þetta allt í skipulag, sem komi ekki í veg fyrir að þessum markmiðum sé náð. Þessi bók er stór í sniðum, fer vel yfír efnið, en mér fínnst hún á stundum nokkuð fullyrðingasöm og varla nógu gagnrýnin á sum rökin, sem notuð eru. En hún ætti að vera nytsamleg flestum þeim, sem vilja átta sig á nýjum stjómarháttum í fyrirtækjum framtíðarinnar. AGFA-f-3 Alltaf Gæðamyndir POTT- ÞETTAR AGOÐU Wi ^; D1 ■ Allar RING bílaperur bera merkið (|) sem þýðir að þær uppfylla ýtrustu gæðakröfur E.B.E. VKNJULIGIR I kaupbæti með Viö höfum opið skírdag 31. mars, laugardaginn 2. apríl og annan í páskum 4. apríl. illum mat. s V ;W SPRENGISANDUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.