Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 27

Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 27
88Cr SflAM ,rp. ÍIUOAOHTMMr-r flT(lAJ8VlUOHOM D 9S_ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 C 27 Í>AÐ GEFUR AUGALEIÐ ...að þú getur haft áhrif á verðlagningu vöru og þjónustu í upphafi þessa árs jók Verðlagsstofnun tíðni verðkannana sem gerðar hafa verið í mörg ár. Ástæða þótti til að kanna hvort tollalækkanir og niðurfelling vörugjalds skiluðu sér í lækkuðu vöruverði til neytenda. Þessar verðkannanir hafa leitt í ljós að gífurlegur verðmunur er oft á milli verslana og reyndar einnig innan þeirra. Því er erfitt fyrir neytendur að reyna að átta sig á eðlilegu vöruverði. f framhaldi af þessum könnunum ákvað Viðskiptaráðuneytið að láta gera auglýsingar sem hnykktu enn frekar á niðurstöðum verðkannanna með almennum og einstökum dæmum. Auglýsingar Viðskiptaráðuneytisins hafa vakið athygli og hrint af stað nýrri umræðu um verðlagsmál. En það er ekki nóg, því markmiðið hlýtur að vera að ná niður.verði, og það tekst einungis með því að þú fylgist sjálfur, neytandi góður, með verðlagningu. Pað sem skiptir máli fyrir hag neytenda og lögð hefur verið áhersla á í auglýsingunum er VERÐIÐ, en mat á gæðum og þjónustu hlýtur að vera í höndum neytandans. Það er undir þér komið í hvaða verslun þú gerir innkaupin, hvaða vörumerki þú kaupir og í hvaða magni. Með því að gera verðsamanburð veitir þú þeim sem selja vörur og þjónustu, aðhald sem örvar samkeppni og leitt getur til lægra verðs. Það liggur í augum uppi. VERUM Á VERÐI VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.