Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
C 47
MAJORKA 06 KÝPUR
ÓDÝRAR ÚMMSmtm
15. MAÍ-14. StPTíMBíR
SUPER-APEX FARGJÖLD
Kaupmannahöfn 15.610 kr.
Oslo 15.290 kr.
Bergen 15.290 kr.
Gautaborg 15.610 kr.
Stokkhólmur 19.010 kr.
Luxembourg 15.670 kr.
Bóka þarf ferð með minnst 14 daga fyrirvara.
Lágmarksdvöl er 6 dagar, hámarksdvöl 21 dagur.
í SJÓHMÁU
MAJORKA
Majorka er áfram einn vinsœl-
asti sumarleyfisstaður okkar íslend-
inga. Þar er einstök veðurblíða
nœr allan ársins hring, landslag
fallegt og margt að sjá. Við bjóðum
þriggja vikna Majorkuferðir með
beinu leiguflugi.
Sa Coma og Cala Millor/Cala
Bona á austurströnd eyjunnar eru
staðir Úrvals á Majorku. Stutt er
síðan ferðamenn uppgötvuðu Sa
Coma og þar er ströndin, sjórinn
og allt umhverfi hreint og óspillt.
Sa Coma er kjörinn staður fyrir
fjölskyldufólk. Þar eru tennisvellir,
hestaleiga, hjólaleiga, og ,/íUto-saf-
ari“ er í nágrenninu. Skemmtilegur
golfvöllur er í næsta nágrenni og
aðeins 5 km frá Sa Coma er stœrsta
diskótek eyjunnar, DRAAH.
í Sa Coma er öll aðstaða fyrir
ferðamenn eins og best verður á
kosið. í Sa Coma og Cala Millor/
Cala Bona bjóðum við gistingu í
nýlegum og vel búnum íbúðum.
Fararstjórar okkar, Kristinn R.
Ólafsson ogRebekka Kristjánsdóttir
skipuleggja skoðunarferðir um
eyjuna.
Verðlag er hagstœtt ferða-
mönnum á Majorku. T.d. kostar
steik á góðu veitingahúsi u.þ.b.
280 kr. og rauðvínsflaska með
u.þ. b. 200 kr.
3 vikur í íbúð í Sa Coma:
Verð frá 25.750 kr.*
* Verð miðast við að 2 fullorðnir og
2 börn, 2-11 ára, ferðist saman.
Miðað er við greiðslu í reiðufé.
Til að njóta bestu kjara á
ferðum okkar til Majorku þarftu
ekki að vera meðlimur í neinum
klúbbi eða félagi. Nóg er að panta
og greiða staðfestingargjald fyrir
28. apríl.
KYPUR
Kýpur - eyja ástarinnar -
er nýr áfangastaður á sumaráœtlun
Úrvals. Þangað förum við vikulega
með áœtlunarflugi um Luxembourg
í samvinnu Flugleiða og Luxair.
Hœgt er að framlengja dvöl í
Luxembourg.
340 daga ársins (að meðal-
tali) skín sólin á Kýpur og segja
má að sumarið sé samfelldur
sólskinsdagur.
í meira en 8000 ár hafa menn
búið á Kýpur og eyjan er rík af
fornminjum sem gaman er að
skoða. Kýpurbúar eru um 640.000
talsins, 80% þeirra eru af grískum
uppruna.
$*%&**■
m.
Þeir eru frœgir fyrir gestrisni
og vingjarnlegt viðmót í garð
ókunnugra. Enska er þeim töm svo
að íslendingar þurfa ekki að kvíða
tungumálaerfiðleikum á Kýpur.
Verðlag á Kýpur er sérlega
hagstœtt fyrir okkur íslendinga.
T. d. fœst steik á góðu veitinga-
húsi fyrir tœplega 150 kr. og
rauðvínsflaska fyrir u.þ. b. 125
kr.
Limassol er nœststœrsta
borgKýpur og miðstöð vínrækt-
ar á eyjunni. Úrvalsfarþegar á
Kýpur dvelja á baðströnd í
útjaðri borgarinnar. Þar bjóð-
um við gistingu á mjög góðum
hótelum, t.d. Limassol Sheraton
og Apollonia Beach Hotel og í
íbúðahótelum.
Ströndin í Limassol er
mjög góð og hótelin sjá gestum
sínum fyrir aðstöðu til sjávar-
íþrótta, s.s. siglinga, sjóskíða,
seglbretta og jafnvel köfunar.
Fararstjóri Úrvals á Kýpur,
Inga Karlsdóttir, skipuleggur
skoðunarferðir um eyjuna en
einnig erstutt að fara þaðan til
annarra landa, s.s. ísraels og
Egyptalands.
16 dagar í íbúð:
Verð frá 33.850 kr.**
** Verð miðast við að 2 full-
orðnirog2 börn, 2-11 ára, ferð-
ist saman og að farið sé eigi síð-
ar en 19. maí. Miðað er við
greiðslu í reiðufé.
16 dagar á hóteli:
Verð frá 46.100 kr.***
*** Verð miðast við tvo fullorðna í
herbergi og að farið sé eigi síðar en
19. maí.
Miðað er við greiðslu í reiðufé.
Nú er Úrvals sumarfrí í
sjónmáli. Skoðaðu bœklinginn
okkar vel en bíddu samt ekki of
lengi með að panta til að þú
missir ekki af óskaferðinni.
YODA F12.25/SIA