Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 52
52 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
fclk í
fréttum
Nabila Khashoggi veit vart
aura sinna tal. Hún á til að
mynda lystisnekkju með
glæsiíbúð, sjúkrastofu,
þyrluplani og bílskúr.
Nabila býr í Hollywood í
húsi sem eitt sinn var heim-
ili Charlie Chaplin.
Franski ljósmyndarinn
Yann Gamblin er heitbund-
inn Nabilu Khashoggi.
LISTAKOKKAR
Stjörnustaðir
í Frakklandi
Franska hjólbarðafyrirtækið Mic-
helin hefur stundað útgáfustarf-
semi í rúmlega áttatíu ár. Gefur
það nú út árbækur um hótel og
veitingastaði („rauðu Michelinana")
auk landa- og héraðalýsinga
(„grænu Michelinana") og landa-
bréfa. Útkoma „rauðu Michelinana"
á vorin vekur athygli og margir
rýna í bækumar til að kanna hvaða
staðir hafi fengið stjömu fyrir mat-
argerð eða misst stjömu sem þeir
höfðu áður. Einnig þykir forvitni-
legt hvaða hótel hafi hækkað eða
lækkað í flokki.
„Rauði Michelin" fyrir Frakkland
1988 kom nýlega út. Bókin er
hvorki meira né minna en 1302
síður og full af merkjum og skamm-
stöfunum. Bæjum og borgum em
gerð skil í stafrófsröð, og sagt frá
gistihúsum og matarstöðum.
Nokkrar almennar upplýsingar em
gefnar um hvem stað. Jafnframt
er hótelum raðað í sjö flokka eftir
gæðum, sem táknuð em með húsum
með mismörgum burstum.
Veitingastöðum er raðað með
tvennum hætti: Þeir fá allir einkunn
fyrir búnað og framreiðslu en það
eitt að þeir komist á blað merkir
að við matinn megi una miðað við
verð. Einkunnagjöfín felst í fjölda
hnífapara, sem sett em aftan við
nafn veitingahússins, ásamt því að
hnífaparasettin eru í rauðum lit ef
staðurinn þykir aðlaðandi. Þá er
aðalatriðið eftir; hin sérstaka
stjömugjöf fyrir matinn.
Aðeins lítill hluti þeirra veitinga-
húsa sem nefnd em í bókunum fá
stjömu. Góð fá eina, afar góð tvær
og hinir fágætu afbragðsstaðir fá
þijár stjömur. í öllu Frakklandi fá
529 veitingastaðir eina stjömu, 88
tvær og aðeins 18 þijár. Enda seg-
ir um þá síðastnefndu í skýringum
að vert sé að gera sér sérstaka ferð
til að snæða þar. Um tveggja
stjömu staði segir að þeir séu þess
virði að leggja lykkju á leið sína til
að kynnast matreiðslunni.
Þeir sem ráða ríkjum á bestu
Guérard, meistari léttra máltíða.
RÍKIDÆMI
COSPER
Gæfa og gjörvileiki
Nabila Khashoggi hefur allt
sem hugur girnist. Hún er 25
ára moldrík fegurðardís, dóttir
auðkýfíngsins Adnans Khashoggi.
Hún er meira að segja hamingju-
söm. „Ég nýt hvers einasta dags,“
segpr hún, „mér fínnst alltaf jafn
gaman þegar pabbi hringir og
stingur upp á að við skreppum til
Parísar í hádegismat. Gjafir gleðja
mig ekki minna nú en þegar ég var
yngri..."
Nabila býr í Hollywood þar sem
hún hyggst freista gæfunnar við
kvikmyndaleik. Hún gekk í leiklist-
arskóla í borginni í þijú misseri og
lék nýlega gestahlutverk í Dynasty
þáttunum. I tímaritsviðtali kveðst
hún ekki vilja að faðir hennar kosti
gerð myndar sem hún fer með aðal-
hlutverk í. „Ég vil miklu heldur
verða mér úti um hlutverk upp á
eigin spýtur,“ segir hún.
Charlie Chaplin lét byggja húsið
sem Nabila festi kaup á í Holly-
wood. Hún er þriðji eigandi þess,
en George Hamilton góðkunningi
Elizabetar Taylor bjó þar um hríð.
Umhverfis hvítkalkað glæsihúsið
er stór og ræktarlegur garður með
sundlaug. Nabila fær sér sund-
sprett í lauginni á morgnana og
iðkar leikfími í sal þar sem æfínga-
tækin munu skreytt eðalsteinum og
upphafsstöfum hennar. Innbú húss-
ins valdi hún sjálf í samráði við
franskan heitmann sinn, Yann
Gamblin.
Sá er liósmvndari við vikuritið
Paris Match. Að sögn Nabilu hyggj-
ast þau ganga í hjónaband innan
skamms, og vonast hún til að Yann
segi starfí sínu lausu og flytji inn
til hennar í Hollywood. Telur Na-
bila það góðs viti að varðhundurinn
Hogan urrar ekki á Yann, eins og
fyrri kærasta.
Vopnasalinn Adnan Khashoggi
átti Nabilu með breskri eiginkonu
sinni, Sandra Daly. Sandra tók isl-
amstrú fyrir giftinguna og hlaut
nafnið Soraya. Hún skildi við Adnan
fyrir nokkrum árum og fyllir nú
flokk svokallaðs þotufólks. Hún
lætur sig ekki muna um að hoppa
upp í flugvél og sækja frumsýningu
eða veislu í annarri heimsálfu. Na-
bilu líkar lífsstfll móður sinnar illa
ncr hafp h«ar mcnrScnir Ktil camcl/’infi
— Ég var búinn að gleyma því að það er 1. í dag.