Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988
4!>
ýmist á Eyrarbakks eða Papós.
Verslunin á Papósi var svo flutt að
Höfn í Homafirði. Það er af verslun-
inni í Vík að segja að frá árinu
1885 komu fleiri eða færri vöruskip
til Víkur á ári hveiju, allt þar til
bílamir urðu helstu flutningatæki
Skaftfellinga á ámnum milli 1930
og 1940. Með vörupöntuninni frá
Bretlandi árið 1884 og siglingu þil-
skipa til Víkur var brotið blað í
verslunarsögu Vestur-Skaftfell-
inga.
Rit Kjartans Ólafssonar
Allan þann fróðleik um þetta efni
sem hér hefur verið tíndur til er
að finna í Verslunarsögu Vestur-
Skaftfellinga, veglegri bók sem út
kom skömmu fyrir jól. Þetta er
fyrra bindi verks sem Kjartan Ól-
afsson sagnfræðingur hefur ritað
og er þar að fínna ítarlegan fróð-
leik um verslunarmál Vestur-Skaft-
fellinga allt fram til ársins 1914. í
formála segir höfundur: „Von mín
er sú að þeir sem kynnu að táta sig
nokkm varða horfna lífshætti
Skaftfellinga og fróðleik um menn
og málefni í þeim parti heimsins,
fari ekki ætíð í geitarhús ullar að
leita, ef þeir opna bókina." Það er
mála sannast að í riti þessu er
margan fysilegan fróðleik að finna.
Bókin skiptist í 12 kafla og í henni
er margt mynda.
í fyrsta kafla segir frá Eyrarbak-
kaferðum, þar er m.a gerð grein
fyrir viðskiptum Vestur-Skaftfell-
inga á Eyrarbakka og verslunar-
háttum þar. í öðmm kafla segir frá
Dyrhólaey og Landeyjakrambúð,
svo og Vestmannaeyjaferðum
Skaftfellinga. Þriðji kaflinn er um
Bændur með ullarlest ríða í hlað á Eyrarbakka. Lengst til vinstri Lefoiiiverslun.
Úr krambúðinni á Eyrarbakka
Lest á ferð yfir Jökulsá á Sól-
heimasandi
Papósverslun og yiðskipti Vestur-
Skafellinga þar. í fjórða kafla er
getið undanfara og upphafs versl-
unar í Vík í Mýrdal. í fímmta kafla
segir frá harðindum á ámnum 1881
til 1887 se_m ollu vemlegri
mannfækkun. í sjötta kafla er fjall-
að um löggildinu Víkur sem versl-
unarstaðar árið 1887. Þar er einnig
sagt frá upphafi verslunar
J.P.T.Bryde og Guðmundar á Há-
eyri. í sjöunda kafla er tekin fyrir
sauðasala og sagt frá stofnun
Stokkseyrarfélagsins, vömflutning-
um þess til Víkur og lokum við-
skipta Skaftfellinga við það félag.
I áttunda kafla er fjallað um stofn-
un Pöntunarfélags Vestur-Skafta-
fellssýslu, lagasetningu þess og
getið ólíkra umsagna um ávinning
af pöntunarstarfsemi. Einnig er
sagt frá endalokum þess félags,
deilum um það og einnig sagt frá
reikningum þess og erfiðum skulda-
skilum. Níundi kafli ijallar um
Kaupfélag Síðumanna, sagt frá fé-
lagsmönnum og Kaupfélagi Skafat-
fellinga sem stofnað var árið 1906.
í tíunda kafla er sagt frá Halldórs-
verslun 1884 til 1914, þar sem
gerð er grein fyrir þróun verslunar
Halldórs á þessu tímabili, umfangi
hennar og starfsmönnum. í ellefta
kafía er fjallað um verslun Bryde,
gerð grein fyrir atvinnustarfsemi
Bryde hér á landi og sagt frá Bryde,
mann fram af manni. Gerð er grein
fyrir upphafí þorpsmyndunar í
tengslum við fastaverslun Bryde.
Gerð grein fyrir efnahag Bryde, en
hann hafði tíföld sýslumannslaun
ár eftir ár. Tólfti kafii er yfírlit.
Sagt frá Skipakomum til Víkur frá
árinu 1895 til ársins 1913 rætt um
skiptingu milli verslanna og hlut-
deild Víkur í útflutningi lands-
manna í eitt ár miðað við aðra versl-
unarstaði Sunnanlands.
Hið nýlega útkomna fyrra bindi
Verslunarsögu Vestur-Skaftfell-
inga er 413 blaðsíður. Verður ekki
annað sagt en að menn hafí tæki-
færi til að verða stórum fróðari um
verslunarmál Vestur-Skaftafells-
sýslu og raunar nágrannasýslna að
auki við lestur þessa rits. Þó í bók-
inni sé fjallað um afmarkað svæði
landsins má leiða getum að því að
þróun verslunarmála annars staðar
á landinu hafí verið um ýmislegt
svipuð og í Vestur-Skaftafellssýslu.
Því ættu þéir sem áhuga hafa á
íslenskri verslunar og atvinnusögu
að glugga í rit þetta. Grunar mig
að höfundi verði að þeirri ósk sinni
að menn telji sig almennt ekki fara
í geitarhús ullar að leita þegar þeir
opna bókina um verslunarsögu
Vestur-Skaftfellinga.
TEXTI: GUÐRÚN
GUÐLAUGSDÓTTIR
Hjá okkur sitja gæðin í fyrirrúmi.
FAG Kúlu- og rúllulegur.
TIMKEN Keilulegur.
Ásþétti.
o^^it @nlinenfal Viftu- og tímareimar.
precision Hjöruliðir.
SACHS Höggdeifar-
og kúplingar.
Þekking Reynsla Þjónusta
fAlkinn
SUÐURLANDS8RAUT 8. SIMI 84670
af
ARISTON
Þvottavél kr. 33.805,-
með söluskatti
œ&m&wM?
Hverfisgötu 37, simar 21490 og
21846.
Víkurbraut 13, Keflavík, sími 12121,
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!