Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24, APRÍL 1988
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hjúkrunarfræðingar
Laus er staða deildarstjóra á sjúkradeild,
fastar stöður hjúkrunarfræðinga á sjúkra-
deild og á nýja hjúkrunar- og ellideild. Einnig
vantar hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga
á allar deildir.
Allar nánari upplýsingar um kaup og hlunn-
indi veitir hjúkrunarforstjóri á staðnum og í
síma 95-5270.
Hrafnista
Hafnarfirði
Starfsfólk vantar í sumarafleysingar:
Hjúkrunarfræðinga, sjúkaraliða og starfs-
krafta í ummönnun, ræstingu og býtibúr.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
54288.
37 ára maður
óskar eftir vel launuðu starfi. Margt kemur
til greina. Hef 2. stigs próf frá Vélskóla ís-
lands. Reynsla í stjórnun.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„A - 200“ sem fyrst.
Afgreiðslustarf
Viljum ráða í um það bil hálfa stöðu nálægt
miðbænum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. sem
fyrst, merkt: „A - 613“.
Atvinnurekendur
ath!
22 ára gömul stúlka óskar eftir vel launuðu
starfi sem fyrst. Hef margbáttaða reynslu
að baki.
Áhugasamir tali við Ingibjörgu í síma
21564/99-5167.
m REYKJHJÍKURBORG
^ jj _______________
M|f Stödívi
Arbæjarsafn
- sumarstörf
Fóstrur - Fóstrur
Forstöðumann og fóstrur vantar til starfa
hjá ísafjarðarkaupstað. Umóknarfrestur til
10. maí. Aðstoð veitt við útvegun húsnæðis.
Allar nánari upplýsingar um kaup og kjör
veita dagvistarfulltrúi og félagsmálastjóri í
síma 94-3722.
Dagvistarfulltrúi.
Vélritun -
skrifstofustörf
j||
Heilsugæslustöðin
íFossvogi
Tveir móttökuritarar óskast í 60% starf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
696780 mánudaginn 25. apríl milli kl. 9.00
og 11.00 f.h.
Árbæjarsafn óskar eftir leiðsögumönnum og
starfsfólki í miðasölu. Málakunnátta nauð-
synleg. Einnig vantar fólk til starfa við veit-
ingasölu. Um er að ræða fullt starf og/eða
afleysingar um helgar.
Laun samkv. kjarasamningi Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Árbæjarsafns í síma 84412.
Umsóknir óskast sendar til Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar eða á skrifstofu Ár-
bæjarsafns á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 1988.
Oskum að ráða nú þegar stúlku eða mann
til vélritunar, afgreiðslu og almennra skrif-
stofustarfa. Stundvísi og' samviskusemi
áskilin.
Umsóknir skulu handritaðar og sendast í
seinasta lagi 28. apríl. Engar upplýsingar
gefnar í síma.
uny
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík.
^RARIK
Bkk ^ RAFMAGNSVErrUR RlKISINS
Ólafsvík
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til
umsóknar starf skrifstofumanns á skrifstofu
Rafmagnsveitnanna í Ólafsvík. Um er að
ræða 1/2 starf.
Umsókn er tilgreini menntun, aldur og fyrri
störf sendist á skrifstofu Rafmagnsveitn-
anna, Sandholti 34, Ólafsvík, sem jafnframt
veitir allar upplýsingar um starfið. Einnig
liggja upplýsingar fyrir á svæðisskrifstofu
Rafmagnsveitna ríkisins í Stykkishólmi.
Umsóknum skal skilað fyrir 3. maí nk.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Hamraendum 2,
Stykkishólmi.
Aðstoða rversl u na r-
stjóri
Fyrirtækið er stór byggingavöruverslun á
Sv-landi.
Starfssvið: Verslunarstjórn, gerð pantana,
erlend og innlend innkaup, gerð söluáætl-
ana o.fl.
Við leitum að manni með reynslu af verslun-
arstörfum og verslunarstjórn, þekking og
reynsla af byggingavörum æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Verslunarstjóri - Sv-land“.
Hagvangur hf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta
Dagheimili
ríkisspítala
Sólhlíð
Óskum að ráða fóstrur á dagheimilið Sólhlíð
sem fyrst.
Upplýsingar gefur Elísabet Auðunsdóttir,
forstöðumaður, sími 29000-591, heimasími
612125.
Sunnuhvoll
Óskum að ráða fóstru sem fyrst á dag-
heimilið Sunnuhvol, Vífilsstöðum, 50% starf.
Nánari upplýsingar gefur Oddný Gestsdóttir,
forstöðumaður, sími 42800-58, heimasími
656318.
Reykjavík, 24. apríl 1988.
Ríkisspítalar, starfsmannahald.
RAÐGJÚF og raðnincar
Ertu á réttri hillu?
ritarar - hlutastörf
Eftirtalin störf eru hálfsdagsstörf, vinnutími
eftir hádegi og laus nú þegar:
- Ritarastarf fyrir innflutningsfyrirtæki stað-
sett í austurbæ, almennt skrifstofustarf
m.a. símavarsla, telexsendingar, rit-
vinnsla, skjalavarsla o.fl. Reynsla af skrif-
stofustörfum nauðsynleg. Æskilegur aldur
30 ára og eldri.
- Tvö ritarastörf fyrir opinbera stofnun í
miðbænum. Góð vélritunar- og íslensku-
kunnátta nauðsynleg.
Ábendi sf.,
Engjateigi 9, simi 689099.
Opið frá kl. 9-15.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLHFNA FATLAÐRA
REYKJANESSVÆÐl
Almennt starfsfólk/
meðf erða rf u lltr úa r
Svæðisstjórn Reykanessvæðis óskar eftir
fólki til starfa á sambýlum og skammtímavist-
unum Svæðisstjórnar.
Staðsetning: Kópavogur, Garðabær, Hafnar-
fjörður.
Um er að ræða störf í sumar og til lengri tíma.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri á skrif-
stofutíma í síma 651692.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Austurlandi
Nýtt starf
Svæðisstjórn málefna fatlaðra Austurlandi
óskar eftir að ráða nú þegar eða eftir sam-
komulagi sérmenntaðan starfsmann í fullt
starf með aðsetur á Höfn í Hornafirði.
Um er að ræða nýtt starf sem felst í að
veita fötluðum í Austur-Skaftafellssýslu
ásamt þrem syðstu hreppum Suður-Múla-
sýslu þjónustu og ráðgjöf skv. lögum um
málefni fatlaðra.
Til greina kemur að ráða sálfræðing, þroska-
þjálfa, félagsráðgjafa eða aðra með sér-
menntun og reynslu af starfi með fatlaða.
Verði sálfræðingur ráðinn er fyrirhugað sam-
starf við Fræðsluskrifstofu Austurlands.
Umsóknir óskast sendar skriflega til skrif-
stofu svæðisstjórnar Austurlands, Kaup-
vangi 6, 700 Egilsstaðum, fyrir 20. maí nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á sama stað
í síma 97-11833 frá kl. 8.00-17.00 alla virka
daga.