Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 J>4 Morgunblaðið/Bæring Halldór Finnsson, Þorsteinn Pálsson, Emil Magnússon, Soffanías Cecilsson og Svanur Guðmundsson ræða málin í fundarhléi. Afmælishátíð Sjálfstæðisfélags Eyrarsveitar Fyrirlestur um rannsóknir á sænskum vísum PRÓFESSOR Bengt R. Jonsson flytur fyrirlestur um rannsóknir á sænskum vísnakveðskap í Norrænahúsinu á morgun, mánudaginn 25. apríl, kl. 20.30. Bengt R. Jonsson er forstöðu- maður Svenskt Visarkivs. Hann hefur lengi verið umsvifamikill í norrænum þjóðfræðum, segir í frétt frá Norræna húsinu. Hann hefur um árabil verið ritstjóri tveggja norrænna tímarita, Sumlen sem fjallar um þjóðkvæði og þjóðlög og Arv sem einkum er um þjóðsögur og þjóðhætti. Bengt R. Jonsson heldur fyrir- lestur á vegum heimspekideildar Háskóla Islands um Den nordiska Balladens aldsta historia þriðjudag- inn 26. apríl, kl 17.15 í stofu 423 í Ámagarði. Söngskemmt- un í Húsa- víkurkirkju Húsavík. KÓR Reykjahlíðarsóknar í Mý- vatnssveit hélt söngskemmtun í Húsavíkurkirkju sumardaginn fyrsta. Þetta er blandaður kór með um 30 söngvurum. Stjórn- andi er Jón Árni Sigfússon og undirleikari Ragnar Þorgríms- son. Ásmundur Kristjánsson og Margrét Bóasdóttir sungu ein- söng. A söngskrá voru 16 lög, flest eftir íslenska höfunda, og var söngvurunum mjög vel tekið og sérstaklega einsöngvaranum Margréti Bóasdóttur. Á þessu ári hefur kórinn annast söng í Reykjahlíðarkirkju í 80 ár og lengst af undir stjóm Sigfúsar Hallgrímssonar frá Vogum og syni hans Jóni Árna sem tók við starfi að honum látnum. Það er mikill menningarvottur að ekki stærri sókn skuli eiga slíkan kór. — Fréttaritari Bíóhöllin: Goldberg leikurlög- reglukonu BÍÓHÖLLIN frumsýndi nýverið kvikmyndina „Hættuleg fegurð“, með Whoopi Goldberg í aðalhlut- verki. I fréttatilkynningu segir að myndin fjalli um kappsfulla fíkniefnalögreglu í Los Angeles sem á í útistöðum við yfirmenn sína. Þegar þeir banna henni að eitast við meintan glæpamann grípur hún til eigin ráða. Lögreglukonan Rita Rizzoli reynir að hafa nendur í hári manns sem hún telur vera eiturlyfjasala. Hún uppsker ekki annað en reiði yfirboð- ara sinna sem hóta henni stöðulækk- un láti hún ekki af iðju sinni. En þegar allt virðist ætla á versta veg fær Rita upplýsingar sem leiða hana á slóð eiturlyfjasalans. Kemur þá að uppgjöri við skálkinn og lýð hans þar sem Rita nýtur aðstoðar vinar síns Jimenez. Jarðhitaskól- inn kynntur á aðalfundi Brúar BRÚ, félag áhugamanna um þró- unarlönd, heldur aðalfund sinn mánudaginn 25. apríl í Skólabæ, Suðurgötu 26, og hefst hann kl. 20.30. Auk aðalfundarstarfa kynnir Jón Steinar Guðmundsson starfsemi _^jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna. Veitingar verða á boðstólum. AÐALFUNDUR og afmælishátíð Sjálfstæðisfélags Eyrarsveitar var haldinn laugardaginn 16. apríl sl. í kaffistofu S.E. Grund- arílr*". Auk venjulegra aðalfundarstarfa ræddi Þorsteinn Pálsson forsætis- ráðherra um stjómmálaviðhorfin og svaraði fyrirspumum. Flutt voru ávörp í tilefni 25 ára afmæli félags- ins. Avörp fluttu Sigríður Þórðar- dóttir oddviti, Þorsteinn Pálsson, Friðjón Þórðarson alþingismaður og Ami Emilsson útibússtjóri. 55 þátt- takendurá Skákþingi Norðlendinga SKÁKÞING Norðlendinga var sett í 53. sinn sl. fimmtudag, á sumardaginn fyrsta, og er það i þetta skiptið haldið á Dalvík. Þátt- takendur eru alls 55 og koma þeir víða að, allt frá Blönduósi austur til Raufarhafnar. Teflt er í þremur flokkum. í opnum flokki eru 22 keppendur, í unglinga- flokki 13-16 ára eru 16 keppendur og í barnaflokki 12 ára og yngri eru 17 þátttakendur. Núverandi skákmeistari Norður- lands er Jón Garðar Viðarsson og mun hann ekki verja titil sinn. Á skákþinginu verða tefldar sjö um- ferðir í opna flokknum og níu um- ferðir í hinum tveimur. Skákmótið er haldið í félagsheimili Dalvíkinga, Víkurröst. Strax að lokinni síðustu umferð á sunnudaginn fer fram hraðskákmót Norðlendinga og þar er öllum áhugamönnum heimil þátt- taka. Að því loknu fer fram verð- launaafhending. Verðlaunin í opna flokknum eru alls 60.000 krónur, þar af fyrstu verðlaun 20.000 krónur og eru sex fyrstu sætin verðlaunuð. Auk þess fær sigurvegari farand- bikar eins og sigurvegarar í ungl- inga- og bamaflokkum. Þýskir vor- dagará Hótel Borg EFNT verður til „þýskra vor- daga“ á Hótel Borg dagana 25. til 28. apríl næstkomandi. Af því tilefni munu koma hingð til lands tónlistarmenn frá Svartaskógi í Bæjaralandi, sem kalla sig „Orgi- nal Taugwitztaler". Hljómsveit þessi er skipuð átta hljóðfæraleikurum og spila þeir þýska kráar-, hlöðu-, og sveitatón- list eins og hún tíðkast í þeirra heimalandi. Boðið verður upp á hlaðborð á kvöldin með þjóðlegum þýskum réttum. (Úr fréttatilkynningu.) Þýska hljómsveitin „Original Taugwitztaler" skemmtir á þýsk- um vordögum á Hótel Borg. Fyrirlestur um lyfjafræði TSUNEJI Nagai, prófessor, held- ur fyrirlestur á vegum Málstofu í lyfjafræði í Háskóla íslands. Nefnist fyrirlestur hans „Influ- ence of cyclodextrins on bio- availability behaviors of drugs“. Verður fyrirlesturinn fluttur á ensku kl. 20.00 i stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Tsuneji Nagai er frá lyfjagerðar- fræðideild Hoshi-háskóla í Tókýó, Japan. Prófessor Nagai er mjög virtur vísindamáður í lyfjafræði og hefur ritað meira en 500 vísindaleg- ar ritgerðir og bækur um rannsókn- ir sínar. Rannsóknir hans hafa eink- um beinst að ýmsum þáttum sem hafa áhrif á aðgengi lyfja og hönn- un á langvirkum lyfjaformum. Hann hefur m.a. hannað langvirkt lyfjaform til notkunar í munnholi. (Fréttatilkynning) Kaupmannahöf n: Blómleg- starfsemi meðal Islendinga KauDmannahöfn. ^ Kaupmannahöf n. KULDATÍÐ og rigning var hér í Kaupmannahöfn um páskana, en nú birtir I lofti, þrátt fyrir nokkurt næturfrost. Bekkir í almenningsgörðum hafa verið þétt setnir og hvít-bláa krókusa- breiðan við Rósenborgarhöllina skartaði sínu fegursta. Hér í Jónshúsi eru málverk Tryggva Ólafssonar enn til sýnis og eru í sjálfu sér vorboði, fersk og lit- fögur sem aldrei fyrr. Hafa mörg þeirra þegar selzt. Páskaguðsþjónustu í St. Páls- kirkju sóttu á annað hundrað manns og var allt með miklum hátíðarblæ. Hinn stóri íslenzki kirkjukór söng á móti sendiráðs- prestinum undir stjóm Maríu Ágústsdóttur, sem og á pálma- sunnudag, er séra Ágúst fermdi tvö íslenzk böm í kirkjunni, Helgu Björgu Ámadóttur og Randver' Jónas Kristinsson, og sótti einnig þá fjölmenni kirkju. I páskamess- unni lék Sigríður Helga Þorsteins- dóttir á fíðlu sem oft áður, en hún og maður hennar, Jón Ingi Guð- mundsson, eru nú að hverfa héðan að námi loknu. Þá voru nokkur íslenzk böm skírð um páskana, en alls skírði sendiráðspresturinn 30 íslenzk böm víða á Norðurlöndun- um á sl. ári. í guðsþjónustu í Ála- borg í febrúar vom 2 böm skírð í Klausturkirkjunni. Lék Ólafur Ein- arsson á orgelið, en íslenzki kórinn í Álaborg söng undir stjóm Sigríð- ar Eyþórsdóttur og ung telpa, Inga Hrönn Kristjánsdóttir, lék á fiðlu. í messukaffinu í félagsheimilinu í Jónshúsi á páskadag las Stefán Snævarr upp ljóð sín og smásögur, en Stefán dvelur nú í Stokkhólmi. Var ljóðabók hans „Hraðar en hljóðið" einnig til sölu. Ætíð er vel þegið að fá íslenzka gesti, sem vilja skemmta löndum sínum hér. Meðfylgjandi mynd er af séra Lárusi Þ. Guðmundssyni prófasti í Holti og konu hans Sigurveigu Georgsdóttur, en myndin er tekin við dyr St. Pálskirkju er séra Lárus messaði þar í febrúarlokin. Þau hjónin áttu dvöl hjá syni sínum Georg lögfræðingi og fjölskyldu hans, en ungu hjónin stunda hér nám eins og mörg hundruð íslend- ingar aðrir á ýmsum aldri. Þá má minnast bókmennta- kvölda, sem Bókasafn íslendinga- félagsins undir forystu umsjónar- manns þess, Kristínar Oddsdóttur Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir Séra Lárus Þ. Guðmundsson préfastur í Holti og Sigurveig Ge- orgsdóttir kona hans. Nefnist sýningm Blektár og sýna þeir Phillip Jönsson, Lars Ravn og Knud Odde þar ásamt Helga. Ný- lokið er í Malmö sýningu á myndum Helga Þorgils. Konukvöld hafa verið hér í fé- lagsheimilinu í allan vetur að venju. í apríl verður konukvöldið aldrei slíku vant opið körlum og þá höfð ijölbreytt dagskrá. Hjónin í Fræði- mannsíbúðinni, Snorri Þorsteins- son námstjóri Vesturlands og Ey- gló Guðmundsdóttir læknaritari, munu flytja samléstur um sögulegt útsýni vítt yfír úr Borgamesi með sérstöku tilliti til kvenna í sög- unni. Kirkjukór íslenzka safnaðar- ins syngur og litskyggnusýning verður frá íslandi. Snorri Þor- steinsson námstjóri dvelur hér til að rannsaka áhrif danskra lýð- háskóla á íslenzkt skóla- og menn- ingarlíf. Á sumardaginn fyrsta verður bamaskemmtun um miðjan daginn. Þar munu ung íslenzk systkini frá Malmö, Júlíana Guðrún og Jónas Gunnhallsböm, skemmta. Sýnir Jónas töfrabrögð, en Guðrún fim- leika, og em þau mjög vel þjálfuð og hafa oft komið fram í Svíþjóð en foreldrar þeirra, Gunnhalli Ant- onsson og Oddný Jónasdóttir, hafa lengi átt heimili í Malmö. Laugardaginn 23. apríl kl. 20 mun íslenzki kórinn í Lundi, sem nefnist Lundarbaggamir, skemmta í félagsheimilinu í Jónshúsi. Þetta er blandaður kór, en piltamir syngja líka einir og verður saga Adams og Evu flutt í revíuformi. Kristján Kristjánsson mun leika á gítar og munnhörpu ásamt Guð- mundi Ingólfssyni á bassa. - G.L.Ásg. Morgunblaðið/BAR Tryggvi Ólafsson listmálari, en hann sýnir verk sín i Jónshúsi í Kaupmannahöfn um þessar mundir. Bonde, stóð fyrir. Var þar lesið úr nýútkomnum bókum. — Ber að nefna gjafir, sem borizt hafa hing- að í Jónshús, en það eru geysivan- daðar og viðamiklar gestabækur með áletrun til Safns Jóns Sigurðs- sonar og félagsheimilisins, sem Ámi Kristmundsson bókbindari í Reykjavík og kona hans Sigrún Bjamadóttir hafa gefíð nýlega. — Fyrir skemmstu var sagt frá sýn- ingu Hauks Dórs og Preben Böyes í Galleri Firo, en síðan hafa þeir félagar sýnt aftur og slóst Færey- ingur í hópinn, Gunleif Gmbe, og sýndu þau í Galleri Thain á Nörre Voldgade. Helgi Þorgils Friðjónsson lista- maður opnaði nýlega sýningu á teikningum á Words End á Vest- erbro og tekur um leið þátt í sam- sýningu í sýningarsölum mennta- málaráðuneytisins í Overgaden neden Vandet á Kristjánshöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.