Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 i 25 Þegar Nils var kominn undir þrítugt fór hann til Ólafsvíkur ásamt móður sinni og systur og var þar fáein ár við vinnu en leiddist þar fremur. Þegar systir hans og mágur fluttu til Siglufjarðar þar sem mágurinn hafði fengið starf í apóteki þá gerðist Nils fylgdarmað- ur þeirra á ferðalaginu. Málin fóru hins vegar þannig að Nils settist að á Siglufirði og átti þar heima í fjörutíu ár. Hann kvæntist þar skagfirskri konu, Steinunni Stef- ánsdóttur og þau eru í hjónabandi enn í dag. Þau hafa eignast fjögur böm sem öll em gift og hafa stofn- að sín eigin heimili. „Ég réði mig fyrst hjá manni sem hét doktor Paul, hann starfrækti heilmikla verksmiðju á Siglufírði þá á sumrin, á vetuma vann ég í verslun. Seinna réði ég mig til skrifstofustarfa hjá Síldarútvegsnefnd og þar var ég í tuttugu ár. Þegar ég var 75 ára flutti ég suður, þá vom bömin flutt þangað. Ég vann lengi við skrif- stofustörf eftir það og við bókhald vann ég þar til fyrir tveimur ámm að við hjónin fluttum hingað út á Boðahlein. Ég neita því ekki að mér finnst heldur óviðkunnanlegt að vera hættur að vinna en maður venst því eins og öðm. Pinnst þó dagamir heldur langir stundum." I samtali sem á eftir fór kom í ljós að Nils hefur alla tíð verið frem- ur lítill félagsmálamaður, „vildi fá að vera í friði“, eins og hann orðar það. Ekki er á honum að heyra að hann telji sig hafa mætt miklu mótlæti í lífinu. Þvert á móti segist hann hafa átt góðu atlæti að fagna yfirleitt. Enginn sérstakur trúmað- ur kveðst Nils vera, en kirkjurækinn í betra lagi. Bókamaður er Nils talsverður og á margar góðar bæk- ur, byijaði enda snemma að safna. Uppáhaldsrithöfundur hans er Jón Trausti en Steingrímur Thorsteins- son er í fyrsta sæti hvað snertir ljóðskald. „En maður hélt nú uppá Kristján Jónsson líka.“ segir hann, „ég hafði gaman af ljóðunum hans.“ Sjálfstæðismaður segist Nils hafa verið alla tíð.„ Ég fór að kaupa Morgunblaðið árið 1913 þegar það kom út og hef keypt það alla tíð síðan, sjálfstæðismaður varð ég þegar Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður." Þegar síga tekur á seinni hlutann í spjalli okkar Nils setjumst við inn í garðstofu hjá Steinunni konu hans og fyrr en varir snúast umræðumar um stjórnmál dagsins í dag og stjóm- málin á Siglufirði í gamla daga. „Ég var alveg sérlega á móti kommún- istum", segir Nils og brosir íbygg- inn. „Af þeim var mikið á Siglufirði hér áður, en aldrei lenti ég þó í neinum slag við þá né aðra vegna stjómmála." Þegar ég spyr um síldina vilja þau hjón meina að sílda- ræfintýrið hafi ekki verið eins stór- kostlegt í návígi og sögur herma, félagslífið í bænum hafi jafnvel lið- ið fyrir allt aðkomufólkið og vinnu- þrældóminn á sumrin. Eftir að hafa þegið molasopa við sporöskjulagaða eldhúsborðið stend ég upp og þakka fyrir mig. Frammi í forstofunni hjálpar Nils mér í káp- una og ferst það svo vel úr hendi að hann segir glaðhlakkalegur: „Ég hefði átt að verða meðhjálpari", og ég samsinni því. Að svo mæltu kveðjumst við og Nils stendur út í dyrum að gömlum og góðum sveita- sið þar til ég er komin vel í hvarf frá heimili hans. Þegar ég ek burtu verður mér hugsað til orða sem Nils lét falla í samtalinu: „Eg hef yfirleitt lítið gert af því að grufla út í hlutina, kannski of lítið,“ og ég velti vöngum yfir því á leiðinni heim hvort í slíkri afstöðu sé kannski fólginn lykillinn að langlífi, en er jafnnær - og þó. Það er vel líklegt að í fyrmefndri afstöðu sé að fínna lykil að lánsömu lífi. Glaður og lán- samur maður er svo ef til vill heilsu- betri og hefur meiri lífsvilja en aðr- ir menn. TEXTI: GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR Fuglakomur skoðaðar við Stokkseyri Fuglaverndarfélag íslands efnir tíl fuglaskoðunarferðar sunnudaginn 24. apríl nk. Ætl- unin er að huga að farfuglakom- um við Stokkseyri og i grennd. Sé veður hagstætt, má sjá stóra hópa farfugla koma af hafí. Auk þess bjóða Stokkseyri og nágrenni uppá fjölbreytt fuglalíf á þessum árstíma, en þar má sjá ýmsar teg- undir gæsa, anda, vaðfugla, máfa o.fl. Lagt verður upp frá Umferðar- miðstöðinni að vestanverðu kl. 10 og áætlaður komutími er milli 18 og 19. Þátttökugjald er 600 kr., frítt fyrir böm í fylgd fullorðinna. Leiðsögn verður í höndum reyndra fuglaskoðara. Þátttaka er öllum heimil en fólki er bent á að hafa sjónauka með. Á 7. áratugnum stóð Puglavemd- arfélagið fyrir vinsælum fuglaskoð- unarferðum, en þær lögðust niður um miðjan 8. áratuginn. Er nú ætlunin að reyna á ný og fara ekki troðnar slóðir í verkefnavali. Fram- haldið ræðst af þátttöku í þessari ferð. (Úr fréttatilkynningu) Tónleikar á vegum Tónlistarskólans Tónlistarskolinn í Reykjavík heldur tvenna tónleika eftir heler- ina. Pyrri tónleikamir verða í Bú- staðakirkju mánudaginn 25. apríl og heíjast þeir kl. 20.30. Á þeim tónleikum leikur hljómsveit Tónlist- arskólans ásamt tveimur einleikur- um og einsöngvara og eru tónleik- amir hluti af lokaprófí þeirra frá skólanum. Á efnisskrá eru þessi verk: Klari- nettkonsert í A-dúr eftir Mozart, einleikari á klarinett Ármann Helgason, Konsert í F fyrir óbó og hljómsveit, einleikari á óbó Hólm- fríður Þóroddsdóttir, Serenaða op. 48 fyrir strengjasveit eftir Tsjajk- ovskíj og Folk Songs eftir Luciano Berio, einsönngvari Guðný Áma- dóttir, mezzósópran. Stjómendur á tónleikunum em Bemharður Wilkinson og Mark Reedman. Seinni tónleikami emr 8. stigs söngtónleikar og verða í sal skól- ans, Skipholti 33, þriðjudaginn 26. apríl kl. 20.30. Hlíf Káradóttir, sópran, og Sigurdríf Jónatansdóttir, mezzósópran, flytja !ög eftir íslenska og erlenda höfunda. NISSAN Vertu NISSAN PATHFINDER Nissan megin við stvrið í ár IF,“D=I» ^ NISSAN SUNNY • Kraftmikil 2,4 eða 3ja lítra vél • Aflstýri. • Lúxusinnrétting. • Fimmgíra beinskiptur eða NISSAN SUNNT COUPÉ • Glæsileg innrétting. • Kraftmikill: 1500ccog 1600 cc fjölventla vél. • Beinskiptur eða sjálfskiptur. • Aflstýri. NISSAN MICRA • 1000 cc 4ra strokka vél. * Beinskiptur 4ra - 5 gíra. • Framhjóladrifinn. • Eyðslugrannur með afbrigðum. * Betri smábíll finnst varla. sjálfskiptur, hátt og lágt drif. • Kosinn jeppi ársins af tímaritinu „Four Wheeler". • Fjölskyldubíllinn með möguleikana. • 4ra, 5 gíra beinskipting eða • 3ja dyra — 4ra dyra — 5 dyra. sjálfskipting. • Þrjár vélastærðir: 1300, 1500, • Aflstýri. I600cc. — fjölventla. NISSAN SUNNY WAGON 4WD. • 5 dyra. • 5 gíra beinskipting með fjórhjóladrifshnappi. • Aflstýri. NISSAN PRAIRIE 4WD. • Sérstaklega lipur. • Kraftmikil 2000 cc vél. • Hæð milli gólfs og lofts 1,4 m. • 5 gíra beinskiptur. • Aflstýri. Rauðageröi Sími: 91 -33560
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.