Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
Átta millj. kr. hagnaður
af rekstri Kolbeinsejjar ÞH
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Við afhendingn tækjanna. Frá vinstri: Bjarni Arthursson fram-
kvæmdastjóri, Hulda Gunnlaugsdóttir hjúkrunarforstjóri, Jóhannes
Halldórsson, Stefán Arnason, Hreinn Ketilsson, Halldór Halldórsson
yfirlæknir og Hallgrímur Aðalsteinsson.
Kristneshæli gefin
sjúkraþjálfunartæki
Hagnaður af rekstri íshafs hf. á
Húsavík, sem rekur togarann
Kolbeinsey ÞH, nam á síðasta ári
um átta milljónum kr. Árið 1986
nam hagnaður af rekstri fyrir-
tækisins um 13 millj. kr. Ishaf
hf. var stofnað fyrir tveimur
árum vegna kaupa á togaranum
Kolbeinsey, sem áður var í eigu
Höfða hf. á Húsavík ásamt Júlí-
usi Havsteen ÞH. Fiskiðjusamlag
Húsavíkur á 50% hlutafjár í ís-
hafi hf. Kaupfélag Suður-Þin-
geyinga og Húsavíkurbær eiga
17% hvor, Verkalýðsfélag
Húsavíkur á 8,5% og smærri aðil-
ar eiga afganginn.
Kolbeinsey ÞH fiskaði á árinu
1987 3.328 tonn fyrir tæpar 94
milljónir króna. Aflinn skiptist í
2.326,4 tonn af þorski, 79,6 tonn
af ýsu, 350,2 tonn af ufsa, 253,2
tonn af karfa, 197,7 tonn af grá-
lúðu, 63,9 tonn af undirmálsfíski
og 57,2 tonn af öðrum tegundum.
Alls voru farnar 32 veiðiferðir á
árinu.
Eignir fyrirtækisins námu um
áramót 218,1 millj. kr. og skuldir
námu þá 154,6 millj. kr., þar af eru
langtímaskuldir 142,7 millj. kr. Eig-
ið fé fyrirtækisins íiemur 63,5 millj.
kr. Allur afli var lagður upp hjá
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur að und-
anskilinni einni veiðiferð. Þá var
siglt með 159,6 tonn á markað í
Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi.
Fyrir aflann fengust 10,4 millj. kr.
Fyrirtækið greiddi tæpar 35 millj.
kr. í laun á árinu.
Helgi Kristjánsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að reksturinn
væri viðunandi. „Framtíð skipsins
er tiygg ef við fengjum aðeins
fijálsari hendur til að nota hluta
af aflanum til sölu á erlendum
mörkuðum. Við lögðum allan afla
togarans upp hjá FH á síðasta ári
utan einnar veiðiferðar. Ljóst er að
við þurfum að standa í skilum við
okkar lánadrottna og þyrftum að
sigla þetta tvisvar til þrisvar á ári
að mfnu mati svo við fengjum betra
verð en hér fæst á innanlandsmark-
aði.“
Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi
afhenti Kristnesspítala nú í vik-
unni sjúkraþjálfunartæki fyrir
nýja sjúkraþjálfunardeild sem
tekur til starfa 1. júlí nk.
Tækin, sem eru framleidd af
Physioteq í Noregi, eru til þjálfunar
á stoðkerfí líkamans. Verð tækj-
anna nú er um 200.000 krónur.
Bjami Arthursson framkvæmda-
stjóri tók við gjöfínni fyrir hönd
spítalans. Í máli hans við afhending-
una kom fram að Vitaðsgjafí hefur
undanfarin ár stutt vel við Krist-
nesspítala með tækjagjöfum og vel-
vilja í garð sjúklinga.
Morgunbl aðið/Trausti
Frá málverkasýningu Sigurveigar Sigurðardóttur á „Vorvöku“ Li-
onsmanna á Dalvík.
Lionsklúbbur Dalvíkur:
„Vorvaka“ haldin í
hvítasunnu-blíðviðri
Nemendur 7.-9. bekkjar:
Fleiri aðhyllast safn-
skóla en hverfisskóla
Flestir vilja félagsstarfið utan skólalóðarinnar
Dalvfk.
MJÖG gott veður hefur verið að
undanförnu á Dalvik og hafa
fannir í fjöllum og þær sem allt
til þessa náðu niður undir byggð
óðar tekið upp. Lækir hafa verið
glaðir og mófuglar verið iðnir
við að syngja vorið inn í hug og
hjörtu áheyrenda. Að veiy'u fögn-
uðu Lionsmenn vorkomunni með
ýmiss konar menningarviðburð-
um um hvitasunnuna. Er það
orðinn fastur liður í starfsemi
klúbbsins og lífgar upp á menn-
ingarlíf staðarins.
Að þessu sinni stóð klúbburinn
fyrir sýningu á 33 málverkum eftir
Sigurveigu Sigurðardóttur frá
Dalvík en hún er nú búsett á Akur-
eyri. Flestar myndanna málaði hún
er hún dvaldist á Ítalíu og í Indó-
nesíu. Auk þessa sýndi klúbburinn
málverk og handmálað postulín eft-
ir Evu Þórsdóttur frá Bakka í Svarf-
aðardal ásamt munum aldraðra á
Dalvík, föndur og hannyrðir.
Á annan dag hvítasunnu voru
haldnir tónleikar í Víkurröst en þá
söng karlakórinn Geysir frá Akur-
eyri og Söngsveit Ólafsfjarðar.
Margt manna hlýddi á tónleika kór-
anna og gerði góðan róm að flutn-
ingi þeirra. Góð aðsókn var að „Vor-
komunni" og kunnu gestir vel að
meta það sem fram var borið.
Fréttaritari.
AF ÞEIM 710 nemendum 7.-9.
bekkjar sem þátt tóku í könnun
æskulýðsráðs Akureyrar fyrir
skömmu, voru 29% fylgjandi
hverfisskóla en 71% aðhylltist
safnskóla þegar spurt var um
viðhorf þeirra til skólaskipulags.
Kostur var gefinn á tveimur svör-
um, annars vegar hverfísskóli þar
sem nemandinn er í sama skólanum
í 1.-9. bekk og hinsvegar safnskóli,
þar sem einungis fer fram kennsla
í 7.-9. bekk. Enginn munur var á
afstöðu kynjanna til málsins en tals-
verður munur eftir aldri, því að
yngra fólkið var hlynntara hverfís-
skólunum.
Þá var spurt í könnuninni: „Hvar
fínnst þér æskilegast að félagsstarf
unglinga fari fram?" Aðeins voru
gefnir þrír kostir sem greinilega
dugðu ekki til að allir gætu tjáð
skoðun sína á málinu því að margir
merktu við tvö svör. Svör þeirra sem
það gerðu voru ekki talin með og
því teljast aðeins 648 hafa svarað
þessari spurningu. Vafamál er
hvort hægt er að taka mark á niður-
stöðunni.
19% lýstu sig fylgjandi þvi að
félagsstarfíð færi fram í hverfís-
skólanum, þó svo að þar væri að-
eins kennt 1.-6. bekk. 33% vildu
að félagsstarfíð færi fram í safn-
skóla fyrir 7.-9. bekk en flestir eða
48% vildu að félagsstarfíð færi ekki
fram í skólahúsnæðinu. Yngra fólk-
ið vildi frekar hafa félagsstarfið í
hverfísskólanum en aðrir en 9.
bekkingar vildu ekki hafa félags-
starfíð í skólahúsnæðinu.
Kannaður var hugur nemend-
anna til kennslufyrirkomulags og
spurt: „Upp í 6. bekk er yfírleitt
einn aðalkennari sym kennir flestar
bóklegar greinar. í 7.-9. bekk koma
í meginatriðum tveir kostir til
greina. Hvor finnst þér betri?“
Síðan var gefínn kostur á tveimur
svörum, annarsvegar bekkja-
kennslu og hins vegar fagkennslu.
Yfírgnæfandi meirihluti aðhylltist
fagkennslu eða 84%. Óverulegur
munur var á afstöðu kynjanna en
bekkjakennsla átti meira fylgi að
fagna meðal yngri nemenda en
þeirra eldri.
Ólafsfjörður:
Bjami Kr. Grímsson
ráðinn bæjarstjóri
BJARNI Kristinn Grímsson
kaupfélagsstjóri á Þingeyri hef-
ur verið ráðinn bæjarstjóri á
Ólafsfirði.
Tveir umsækjendur voru um
stöðuna, Bjami Kristinn og annar
maður sem óskaði nafnleyndar.
Bjami er 32 ára gamall, fæddur
og uppalinn á Ólafsfirði og er við-
skiptafræðingur að mennt. Kona
hans er Brynja Eggertsdóttir en
saman eiga þau þijá syni. í stuttu
spjalli við Morgunblaðið sagðist
Bjami hlakka til að koma í heima-
hagana en hann hefur verið kaup-
félagsstjóri á Þingeyri í fimm og
hálft ár.
Gengið var frá ráðningu Bjarna
á bæjarstjómarfundi á þriðjudag
og mun hann hefja störf í byijun
ágúst.
STEFAHIA
96-26366 AKUREYRI 96-26366
Blaðburðarfólk
óskast í eftirtalin hverfi:
Skarðshlíð II, Kotárgerði og Lerkilund
|Us)rj0iiwM®l»ib
Hafnarstræti 85 - sími 23905.