Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 Norrænt gigtlækna- þing í Reykjavík ÁLITIÐ er að gigt hriái um 20 af hundraði allra íslendinga segir í fréttatilkynningu frá Gigtsjúkdómafélagi íslenskra lækna. í næstu viku verður haldið í Reykjavík 22. þing norrænna gigtlækna og verða þátttakendur um 500 frá Norð- urlöndunum, Bandarikjunum, Bretlandi, Frakklandi, Ung- veijalandi, Japan og víðar. Gigtsjúkdómafélag íslenskra lækna stendur fyrir þinginu að þessu sinni og hefur undirbúning- ur staðið í tvö ár en síðasta þing var haldið í Kaupmannahöfn 1986. Á því þingi var formlega gengið frá stofnun sambands norrænna gigtlæknafélaga, Scandinavian Society of Rheuma- tology, en þó samtökin hafí ekki. verið stofnuð fyrr hafa norræn þing engu að síður verið haldin Háskóli íslands: Lokapréd- ikanír í dag SJÖ guðfræðistúdentar flytja lokaprédikun sfna í dag, laugar- dag, í kapellu Háskólans. Þar sem hópurinn er svo fjöl- mennur verður honum skipt. Hefst fyrri athöfnin kl. 13.30 en þá prédika Carlos A. Ferrer, Gunnar Sigurjónsson, Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Páll Heimir Ein- arsson. Seinni athöfnin hefst kl. 15 og prédika þá Sigurður Jóns- son, Sveinbjörg Pálsdóttir og Þór- hallur Heimisson. Þessar athafnir f kapellunni eru opnar almenningi. reglulega frá árinu 1944. Fyrsti formaður samtakanna er Kári Sigurbergsson, sem jafnframt er formaður íslenska félagsins, og Kristján Erlendsson er fyrsti rit- ari þeirra. Til gigtlækningaþingsins er boðið heimsþekktum fyrirlesurum frá Bretlandi og Bandaríkjunum auk norræna sérfræðinga. Meðal þeirra má nefna Alfred D. Stein- berg, Evelyn V. Hess og Thomas S. Thomhill frá Bandaríkjunum, Vema Wright, Edward C. Husk- insson og Paul A. Dieppe frá Bret- landi. Flutt verða yfírlitserindi og kynntar niðurstöður nýrra rann- sókna i gigtarlækningum. Um- ræður verða m.a. um liðagigt, slitgigt, gigt af völdum kristalla og sjálfsofnæmissjúkdóma. Auk þess verða fyrirlestrar um skurð- aðgerðir hjá liðagigtarsjúklingum, faraldsfræði gigtsjúkdóma og nýj- ungar á sviði röntgenrannsókna. Sérstakir fyrirlestrar verða um vandamál sem fylgja liðagigt bama og eldra fólks. Samhliða þessu þingi munu fulltrúar Gigtarfélaga Norður- landa, sem em samtök sjúklinga, ræða sameiginleg hagsmunamál og málefni gigtsjúklinga, sem glíma við mjög erfíð vandamál sem þessir slæmu sjúkdómar hafa í för með sér. Gigtarfélag íslands var stofnað 1976 og er formaður þess nú Jón Þorsteinsson yfír- læknir. Undirbúningsnefnd þingsins skipa læknamir Kári Sigurbergs- son, Kristján Steinsson, Kristján Erlendsson og Jóhann Gunnar Þorbergsson. Þinghaldið fer fram í Háskólabíói og Hótel Sögu dag- ana 31. maí til 3. júní nk. Dóttir skáldsins og sonur hennar meðal leikara Heimildarmyndinni um Halldór Laxnes, sem Saga Film gerir fyrir Stöð 2 í samvinnu við Vöku/Helgafeli, miðar vel og er tökum lokið erlendis. Nú er verið að kvikmynda í Árbæjar- safni og meiningin er að tökum innanlands verði lokið 10. júní. Myndin verður um klukku- stundar löng og er stiklað á stóru í sögu Halldórs til þessa dags. Meðal leikara eru Guðný, dóttir skáldsins, og Halldór sonur hennar. Að sögn Þorgeirs Gunnarsson- ar, leikstjóra, er búið að taka upp atriði í Clervaux-klaustrinu í Lúx- emborg og í Taormínu á Sikiley, en eftir er að kvikmynda úti á landi, uppi á öræfum, í Reykjavík og í stúdíói. Myndin er gerð eftir handriti Péturs Gunnarssonar og er leikn- um atriðum og gömlum’myndum blandað saman. Efni hefur verið safnað víða, m.a. frá Svíþjóð og Þýskalandi og er verið að leita fyrir sér um efni frá Rússlandi. Einnig standa yfír samningar við Ríkissjónvarpið um aftiot af efni sem þeir eiga, bæði atriðum úr myndum eftir sögum Halldórs og með honum sjálfum. Kvikmynda- taka á leiknu atriðunum er í hönd- um Snorra Þórissonar og um alla tæknivinnu sér Saga Film. Foreldra Halldórs, Guðjón Helga Helgason og Sigríði Hall- dórsdóttur, leika Szymon Kuran og Guðný Halldórsdóttir, dóttir skáldsins. Halldór Halldórsson, sonur Guðnýjar, leikur afa sinn þriggja ára, Orri Ágústsson leikur skáldið sjö ára, Lárus Grímsson leikur hann sautján ára og Guð- mundur Ólafsson leikur Halldór á fullorðinsárum. Einnig verður í myndinni viðtal við Halldór sjálf- an.^ Áætlað er að sýna myndina í haust, eða snemma í vetur. Fyrirtækið Kvikk sf.: Selur hausklofnings- vélar til Sovétríkianna FYRIRTÆKIÐ Kvlkk sf. í Reykjavík er þessa dagana að ganga frá sölu á tveimur haus- klofningsvélum til Sovétríkjanna og viðræður standa yfir um frek- ari kaup Sovétmanna á vélum í sjávarútvegi af fyrirtækinu. Að sögn Bjarna Elíassonar, fram- kvæmdastjóra Kvikk sf., er þetta í fyrsta sinn sem slík viðskipti eiga sér stað og taldi hann góða möguleika á að með þessu væri verið að bijóta ísinn fyrir um- fangsmeiri viðskipti á þessu sviði, meðal annars vegna þess að Sovétmenn hafa boðið Kvikk sf. að taka þátt i alþjóðlegri sjáv- arútvegssýningu í Leningrad árið 1990. Vélamar tvær sem um er að ræða verka þorskhausa í svokölluð þorskfés, en þær eru framleiddar af Baader Þjónustunni hf. í Reylq'avík. Samningurinn er metinn á um fíórar milljónir króna, en í þeirri tölu er innifalinn kostnaður við varahluti, uppsetningu og þjón- ustu. Kvikk sf. er sölu- og markaðs- Flestir fjallvegir að verða færir: Lágheiðin mok- uð í næstu viku FLESTIR fjallvegir landsins eru nú orðnir færir, að sögn Sigurðar Haukssonar hjá vega- eftirliti Vegagerðar ríkisins. Víða eru þó þungatakmarkanir vegna aurbleytu, og ennþá er ekki búið að opna fyrir umferð á Tröllatungu- og Þorskafjarð- arheiði á Vestfjörðum, á Norð- austurlandi eru enn lokaðir vegirnir um Axarfjarðarheiði og Hólssand, en Vopnafjarðar- heiði er jeppafær. Hellisheiði eystri er lokuð og einnig leiðin til Ólafsfjarðar um Lágheiði, en hún verður mokuð í næstu viku. Að sögn Gísla Felixsonar, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Sauðárkróki, er áformað að hefía snjómokstur á Lágheiði næstkom- andi mánudag. A Lágheiði eru óvenju mikil snjóalög, sérstaklega Skagafjarðarmegin og bjóst Gísli við að það tæki um það bil þrjá daga að moka heiðina, það færi þó eftir hversu meyr snjórinn væri. Sendir verða snjóblásarar upp á heiðina beggja megin frá. Ekki verður heiðin þó opnuð fyrir umferð strax að loknum mokstri því vegurinn þarf að fá tíma til’ að þoma áður en það er gert, og fer það að sjálfsögðu eftir veður- fari næstu dagana á eftir. setningarfyrirtæki, sem hefur einkaleyfí á hausklofningsvélinni. Viðræðumar við Sovétmenn hóf- ust í mars í fyrra, en þessi kaup voru í raun ákveðin um mánaðamót- in október/nóvember í fyrra, þó að ekki sé gengið frá þeim fyrr en nú. Að sögn Bjama Elíassonar eru samningamir nú tilbúnir og bíða undirritunar. Bjami sagði að þessi samningur bryti blað í viðskiptum við Sovét- menn, því hingað til hefðu þeir að- eins keypt sjávarafurðir, lagmeti, ull, og eitt sinn málningu, af Islend- ingum, en íslensk tækniþekking og fískvinnsluvélar hefðu ekki verið seld þangað fyrr milliliðalaust. Þau viðskipti hefðu verið innan ramma- samningsins um viðskipti ríkjanna, en viðskiptin nú væru beint á milli íslenskra og sovéskra fyrirtækja. Bjami skrifaði bréf til Kúdijavtsevs, aðstoðarsjávarút- vegsmálaráðherra Sovétríkjanna, í desember sl. þar sem stungið var upp á að Kvikk sf. setti upp litla sýningu á tækjum í sjávarútvegi í samvinnu við nokkur önnur íslensk fyrirtæki. í apríl barst svo formlegt boð frá Expocenter í Sovétríkjun- um, þar sem Kvikk sf. var boðið á sjávarútvegssýningu í Leníngrad árið 1990, og ætla forráðamenn fyrirtækisins að ræða við íslenska framleiðendur um að sýna sameig- inlega þar, þar á meðal fyrirtæki sem hafa átt samstarf við Kvikk sf., svo sem Baader Þjónustuna, Klaka í Kópavogi, Vélsmiðju Heið- ars, Hans-vélar, og Póls-Tækni á ísafírði. Morgunblaðið/JúlíU8 Félagur í Lögreglukórum Norðurlanda ganga til Kjarvalsstada í gærmorgun. Reykjavík: Lögreglukóramót Norðurlandamót lögreglukóra hófst í Reykjavík gær og komu um 130 gestir frá hinum Norður- löndunum tíl landsinsi tilefni þess. Kóramir söfnuðust í gærmorgun saman við lögreglustöðina og gengu þaðan suður Snorrabraut, austur Flókagötu og að Kjarvalsstöðum þar sem Böðvar Bragason, lögreglu- stjóri, setti mótið. Að því loknu sátu þáttakendur hádegisverðarboð borg- arstjóra Reykjavíkur, Daviðs Odds- sonar, og í gærkvöldi sungu kóramir í Háskólabíoi. Dagurinn í dag fer í í skoðunarferðir um Reykjavík og næsta nágrenni og á morgun, sunnu- daginn 29. maí klukkan hálfþrjú verður svo haldin söngskemmtun í Hallgrímskirkju. Þar syngja kóramir kirkjulega söngva. Aðgangur að tón- leikunum er ókeypis. Myndin um Laxnes: Kvikmyndað í Arbæjarsafni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.