Morgunblaðið - 09.06.1988, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
Hí
mytí JjífmjXT
EI "J>\ 1 í/\ f) r
f.
,_________________________________________________________________________________________________
* Sterkbyggt og fallegt I
Ijósum litum.
* Hentaröllum gerðum
prentara.
* Hægt að hafa allt að 6
mismunandi pappírs-
form í einu.
* Þú skiptir um pappír
með einu handtaki án
þess að þurfa að
beygja þig.
* Ef þú þarft oft að
skipta um pappír, þá
erþetta prentaraborð
fyrir þig.
* íslensk hönnun —
íslensk framleiðsla.
* Styðjum íslenska
framleiðslu —kaupum
íslenskt.
TOLVU
VDRUR
HUGBUNADUR
SKRIFSTOFUTÆKI
SKEIFAN 17 • 108 HEYKJAVÍK • SÍMI 91687175
Burtfararprófsnemendur á vor-
önn 1988.Á innfelldu myndinni
er Jón Emilsson sem færði skó-
lanum bijóstlíkan af fyrsta
skólastjóra skólans, Emil Jóns-
syni, fyrrverandi alþingismanni
og ráðherra.
Iðnskólinn í Hafn-
arfirði 60 ára
y
HLÍÐARENDI
Skólaslit Iðnskólans í Hafnarfirði
fóru fram laugardaginn 28. maí að
viðstöddum gestum. Bárust skólan-
um ámaðaróskir og gjafir í tilefni
tímamótanna.
Böm Emils Jónssonar fyrrverandi
alþingismanns og ráðherra færðu
skólanum bijóstlíkan af föður sínum
til varðveislu í skólanum. Emil var
fyrsti skólastjóri skólans og stofn-
andi hans árið 1928 ásamt Páli
Jónssyni jámsmið og iðnaðarmönn-
um í Hafnarfirði. Tveimur ámm
áður eða árin 1926 og 1927 hafði
Emil rekið einkaskóla fyrir iðnnema
og iðnaðarmenn.
Þá færði bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar skólanum táknrænt málverk
er ber nafnið „Horft í birtuna" og
Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði
færði skólanum veglegar klukkur
til að hafa uppi í báðum byggingum
skólans.
mm
0 Ð
Okkur er ánægja að tilkynna opnun nýrrar og
glæsilegrar þjónustumiðstöðvar, HLÍÐARENDA, við
Austurveg á Hvolsvelli.
í björtum og rúmgóðum húsakynnum HLÍÐARENDA,
er fyrsta flokks aðstaða fyrir ferðamenn og þjónustan er
af margvíslegu tagi, jafnt fyrir fólk og farartæki:
Veitingasala
Kaffitería
Ferðamannaverslun
Bílaleiga
Bensínafgreiðsla
Afgreiðsla Austurleiðar
Komið við á notalegum áningarstað næst þegar leið ykkar
liggur um Suðurland. HLÍDARENDI er í alfaraleið og við
bjóðum ykkur velkomin.
ESSO OLÍUFÉLAGIÐ HF • HÓTEL HVOLSVÖLLUR • KAUPFÉLAG RANGÆINGA • AUSTURLEIÐ HF BÍLALEIGA HVOLSVALLAR
Eldri nemendur skólans stofnuðu
pg færðu skólanum tækjakaupasjóð.
í reglugerð sjóðsins segir m.a. að
hlutverk sjóðsins sé að auðvelda
skólanum að eignast tæki til kennslu
í nýrri tækni og að örva með þeim
hætti framsækni skólans á sviðum
verk- og tæknimenntunar í þágu
atvinnulífsins.
Félög og fyrirtæki hafa styrkt
tækjakaupasjóðinn með framlögum
og hafi þau mikla þökk fyrir. Það
er von skólans að tækjakaupasjóð-
urinn eigi eftir að gildna enn með
framlögum velunnara skólans svo
og fyrirtækja og stofnana sem hafa
beina hagsmuni af vel menntuðum
iðnaðar- og tæknimönnum.
Sjóðurinn er varðveittur í Iðnað-
arbankanum í Hafnarfirði á bók nr.
600011 og má leggja framlög beint
inná bókina eða senda til skólans.
Skólinn hefur þróast á undan-
fömum árum og aukið mjög við
námsframboðið. Við skólann eru
hefðbundnar brautir fyrir iðnnema,
sem eru í samningsbundnu námi en
auk þess eru verknámsbrautir í eft-
irtöldum greinum:
Háriðn, málm- og véltækniiðn,
byggingar- og innréttingariðn, raf-
og rafeindaiðn, tækniteiknun og
tölvuteiknun svo og meistaraskóli.
Þá mun væntanlega hefjast nám í
bíla- og iðnaðarmálun svo og yfir-
borðstækni um nk. áramót. Við skól-
ann er einnig boðið fomám með
starfsnámsívafi fyrir nemendur sem
ekki hafa einkunn til að setjast í
framhaldsskóla. Þá er boðið uppá
sérhæfð námskeið í tölvuteiknun,
CAD, og forritun á tölvustýrðar
vinnsluvélar, CAM, auk fleiri nám-
skeiða.
Við stefnum til framtíðar sem
mun bera í skauti sínu miklar breyt-
ingar á störfum og viðhorfum. Eitt
er víst að hraði þróunar er háður
því hve hratt iðnaðurinn getur borið
hana áfram. Þekking og hæfni á
sviðum iðnaðar og tækni mun gegna
mikilvægu og spennandi hlutverki í
framtíðinni, hlutverki sem er fullt
af möguleikum fyrir ungt fólk í dag.
Áhrifa iðnaðarmanna gætir víða.
Byggingar rísa sem eiga eftir að
standa í áratugi og jafnvel aldir og
bera vitni hugviti og handbragði
meistara sinna og handverksmanna.
Það er starf iðnaðar- og tækni-
manna að glíma við spennandi og
áhugaverð verkefni á sviði nýtækni
og svara með því kröfum tímans
um betri kjör og léttari störf. Mark-
aðurinn gerir auknar kröfur um list-
ræna tjáningu og handbragð í fram-
leiðslu og mörgum störfum iðnaðar-
manna, viðfangsefni sem skemmti-
legt er að takast á við.
Iðnfræðslukerfið er opin náms-
braut með fjölbreytt viðfangsefni
og tækifæri. Nemendur er stunda
þar nám eiga greiðan aðgang að
framhaldsmenntun bæði á sérhæfð-
um sviðum og í háskólagreinum.