Morgunblaðið - 09.06.1988, Síða 45
IQAJSWUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
Fjölmenn Þorláksvaka
Tólf tima tónlistar-
vaka í Þorlákshöfn
laugardaginn 28. mai
Ami Johnsen stjómaði fjöldasöng og var kynnir kvöldsins. Morgunblaðið/Jðn H. SiRurmundBson
Þorlákshöfn.
MARAÞON tónlistarvaka var
haldin í Þorlákshöfn laugadag-
inn 28. mai. Hátíðin hófst klukk-
an 13 með því að tvær lúðrasveit-
ir gengu um þorpið og mynduðu
skrúðgöngur sem sameinuðust í
skrúðgarðinum. Síðan magnaðist
stemmningin eftir því sem leið
og hljómlistin þagnaði ekki fyrr
en tólf tímum síðar.
Það var lúðrasveit Þorlákshafnar
sem gekkst fyrir þessari miklu tón-
listarhátíð og á hún allan heiðurinn.
Róbert Darling stjómandi sveitar-
innar fékk þessa snjöllu hugmynd
en engin hugmynd verður að veru-
leika nema til séu framkvæmda-
menn. Lúðrasveitin er svo heppin
að hafa í sínum röðum fram-
kvæmdasama og jákvæða einstakl-
inga. Þó allir félagar og aðstand-
endur sveitarinnar hafi unnið vel
sakar ekki að nefna þtjá sem lögðu
nótt við dag síðustu vikumar til að
þetta gæti orðið að veruleika. Þess-
ir heiðursmenn em Hermann Jóns-
son og bræðumir Torfi og Gestur
Askelssynir.
Vakan sjálf
Eins og áður segir hófst vakan
á því að Lúðrasveit Hveragerðis og
Lúðrasveitin Svanur gengu um
þorpið þeytandi lúðra og beijandi
bumbur. Þegar í tjaldið var komið
rak hver tónlistarviðburðurinn ann-
an. Auk áðumefndra lúðrasveita
komu fram á hátíðinni Lúðrasveit
Þorlákshafnar, Söngfélag Þorláks-
hafnar, Kirkjukór Hveragerðis og
Kotstrandar, Harmonikkuklúbbur
Hveragerðis, Dixielandband Ámes-
sýslu, þjóðlagatríóið KÚL úr Gaul-
veijabæjarhreppi, Alla Magga og
Ami frá Hveragerði ásamt dóttur
þeirra, Bergþóm. Hljómsveitimar
Ópera og Andrés Önd frá Þorláks-
höfn, Sjöund frá Vestmannaeyjum
og Liðbandið frá Stokkseyri. Ein-
leikarar vom: Baldur Loftsson
harmonikkuleikari, Ari Agnarsson,
Róbert Darling, Stefán Þorleifsson
gíanóleikarar og síðast en ekki síst
Ámi Johnsen gítarleikari kynnir og
stjómandi í fjöldasöng. Þó þeir sem
hér hafa verið taldir séu allir góðir
listamenn og sumir hvetjir hálærðir
er þó ótalinn sá kór sem vakti hvað
mesta athygli og dró að sér flesta
áhorfendur en það er blandaður kór
leikskólabama. Guðmundur Her-
mannsson sveitarstjóri Ölfushrepps
flutti ræðu við upphaf hátíðahald-
anna
Tívolí á svæðinu.
Sannkölluð tívollstemmning ríkti
á svæðinu enda búið að koma fyrir
ljölda leiktækja og þrauta auk þess
sem veðrið var eins gott og hægt
er að fara fram á á þessum árstíma.
Eitt vinsælasta skemmtiatriðið var
að bijóta niður pfanó sem komið
hafði verið fyrir á svæðinu. Ákveð-
in upphæð var borguð fyrir að beija
píanóið og safnast hafði töluverð
Morgunbladið/Jón H. Sigurmundsson
Eitt vinsælasta skemmtiatriði í tívolíinu var að fá að slá í píanó með
sleKgju. Hér má sjá Hallgrím Erlendsson veita þvi náðarhöggið.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Alla Magga, Árni og dóttir þeirra, Bergþóra, voru meðal góðra gesta.
upphæð áður en Hallgrímur Er-
lendsson náði að klára að eyði-
leggja það. Sem dæmi um aðra leiki
má nefna skeifukast, pílukast,
hestareið og fleira. Vöfflur vom
bakaðar og seldar á svæðinu og var
það vel þegið og sala góð.
Tilgangur Þorláksvöku
safna fé og auka menningu
Að sögn þeirra Hermanns, Torfa
og Gests sem aðallega vom í for-
svari var tilgangurinn með því að
halda Þorláksvökuna tvíþættur.
Auraleysi hefur háð okkur svo erf-
itt hefiir verið að endurnýja og
kaupa ný hljóðfæri þannig að hér
var kærkomið tækifæri að reyna
að bæta úr. Ágóði vökunnar er um
170 þúsund auk þess að Hrepps-
nefnd Ölfushrepps sem ávallt hefur
styrkt okkur vel ákvað að gefa
okkur aukalega tvo nýja trompeta.
Hinn tilgangurinn var sá að auka
menningu í Þorlákshöfn og vekja
athygli fjölmiðla á þessu. Ekki var
selt inn á skemmtunina en til að
safna fé var gengið í hús á Árborg-
arsvæðinu og áheitum safnað. Vel
gekk að safna en þegar kom að
innheimtu komu margir skemmti-
lega á óvart með því að stórhækka
framlag sitt vegna ánægju með
hátíðina, allt að því að menn sögðu,
ja bættu bara núlli aftan við.
Þáttur fjölmiðla
Þeir þremenningar Hermann,
Torfi og Gestur vom ekki ánægðir
með þátt fjölmiðla. Viku fyrir hátíð-
ina vom allir fjölmiðlar látnir vita
og þeim send fréttatilkynning. Aft-
ur var haft samband við þá daginn
áður og þá vom höfð um það góð
orð að mæta á staðinn og gera
þessu góð skil. Einn fréttastjórinn
tók þannig til orða, „Við komum
að því tilskildu að Álþingishúsið
brenni ekki.“ Þegar til kastanna
kom mættu engir fulltrúar ljósvaka-
miðlanna og aðspurðir síðar vom
ýmsar ástæður nefndar. En þrátt
fyrir að kynningin væri ekki eins
og vonast var til emm við samt
ánægðir og vonumst til að Þorláks-
vaka verði árlegur viðburður.Að
lokum vildu þeir þremenningar taka
fram að allir listamenn og aðrir
gáfu vinnu sína og eiga þeir allir
hinar bestu þakkir skilið.
- JHS
SER H NfJUM SIAB
Póllands-
söfnunin
Stórstúka íslands býður öllum þeim.sem lagt
hafa lið fatasendingum til Póllands, að koma
íTemplarahöllina, Eiríksgötu 5,2. hæð,
fimmtudaginn 9. júní kl. 20.30 og þiggja
veitingar og fræðast nánar um málefnið.
Stórstúka íslands.
2Horjjuní)Iatiið
Evrópumeist-
aramðtiðhór
álandi 1990
^SSapS
..
Listi yfir launatekjur NBA-teikmanna birtur I fyrsta skipti:
Pétur Guðmundsson
með 7,4 milljónir á ári
xaxsss*
4.
Veiði, bfiar, hreysti og
þáttur um hesta.
Auglýsingar í íþróttablaðið þurfa
að hafa borist auglýsingadeild
fyrir kl. 16.00. á föstudögum.
ptojgmialílfeibiíb
- btíð allra landsmanna