Morgunblaðið - 09.06.1988, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
fclk f
fréttum
Mikið fjölmenni var við hátíðahöld í tilefni eins árs afmælis útvarps Stjörnunnar.
Morgunblaðið/Ol.K.M.
l.ÁRS AFMÆLI
Nær sjö þúsund gestir
í afmæli Sljömunnar
UTVARP Stjarnan bauð
hlustendum sínum til af-
mælisveislu á eins árs afmælinu
á laugardaginn var. Að sögn Ól-
afs Haukssonar útvarpsstjóra
komu á að giska 6—7 þúsund
manns og þáðu veitingar og
fylgdust með skemmtiatriðum.
Afmælisgestunum var boðið upp á
útigrill, gos og íspinna og sagði
Ólafur Hauksson að um 11 þúsund
íspinnar hefðu gengið út.
Ýmislegt var til skemmtunar í veisl-
unni sem stóð frá kl.13—16 á laug-
ardaginn. Brúðubíllinn var með sýn-
ingu, Eiríkur Fjalar frumflutti af-
mælislag Stjörnunnar, kokkamir
úr Heilsubælinu komu í heimsókn,
Hljómsveit Magnúsar Kjartansson-
ar lék og sænski dúettinn Visitors
kom fram. Einnig tóku tveir starfs-
menn Stjömunnar lagið í tilefni
dagsins, þeir Þorgeir Ástvaldsson
og Björgvin Halldórsson.
Ólafur Hauksson sagði afmælis-
veisluna hafa lukkast mjög vel,
veður verið hið besta og sannkölluð
hátíðarstemmning.
MÆLSKUKEPPNI GRUNNSKÓLA
Málglaðir krakkar
Iþrótta- og tómstundaráð hef-
ur staðið fyrir mælskukeppni
meðal nemenda í grunnskólum
Reykjavíkur. Keppnin hefur ver-
ið skemmtileg og spennandi, og
hafa nemendur sýnt henni mik-
inn áhuga.
í maímánuði var keppt til úr-
slita, en það voru lið Árbæjar-
skóla og Hólabrekkuskóla sem
ræddu um málefnið „Eiga 17
ára unglingar að flytja að heim-
an.“ Árbæjarskóli sigraði naum-
lega, í öðru sæti varð Hóla-
brekkuskóli og í þriðja og fjórða
sæti urðu Austurbæjarskóli og
Fellaskóli.
Verðlaun í keppnina gaf íþrótta-
og tómstundaráð Reykjavíkur.
Sigursveit Árbæjarskóla i mælskukeppmnni. Þau heita: Dagur
Eggertsson, Ágústa Kristófersdóttir, Ásta Hlin Ólafsdóttir og
Magnús Björnsson.
Gísli M. Baldursson í ræðustól.
MADONNA
Hryllileg leikkona
Madonna hlaut heldur óblíðar
móttökur þegar leikrit sem
hún leikur í þessa dagana var frum-
sýnt á Broadway fyrir skömmu.
Þetta var frumraun söngkonunnar
á leiksviði, og gagnrýnin sem hún
fékk var óvægin.
„Hún er einstök söngkona, já alveg
stórkostleg', en sem leikkona er hún
alveg hryllileg. “ Þetta sögðu gagn-
rýnendur í dómum sínum um sýn-
inguna.
Frumsýningarinnar hafði verið beð-
ið með eftirvæntingu, og var hvert
sæti í leikhúsinu setið. Þó fór svo
að margir áhorfendanna gengu út
af sýningunni fyrir hlé. Madonna
var að sjálfsögðu gráti næst að lok-
inni leiksýningunni. „Mig sem hefur
alltaf dreymt um að fá tækifæri til
þess að leika á Broadway. Og svo
fer þetta svona.“
Morgunblaðið/Andrés Pétursson
HALLDÓR HALLDÓRSSON
Byrjaður að æfa knattspyrnu
U alldór Halldórsson, fyrsti íslenski hjartaþeginn, sést hér með félögum sínum í Augnabliki á
■ ■ knattspyrnuæfingu fyrir skömmu. Hundurinn Perró fékk að sjálfsögðu að vera með á myndinni.