Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B
132. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Látinn
laus eft-
ir 40 ára
fangavist
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKI presturinn Vasili
Shipilov hefur verið látinn laus
eftir meira en 40 ára vist í
þrælkunarbúðum og á geð-
veikrahælum, að því er breskur
prestur, sem barist hefur fyrir
lausn hans, sagði í gær.
Breski presturinn, séra Dick
Rogers, sem varði páskaföstunni
í búri í kirkju í London til að vekja
athygli á máli föður Vasilys Ship-
ilovs, sagði, að hinn rússneski
starfsbróðir hans hefði verið látinn
laus úr gæslu á geðveikrahæli í
Moskvu á föstudag. Þangað var
hann sendur frá geðveikrahæli í
borginni Krasnoyarsk í Síberíu,
að sögn Rogers. r
Meira er ekki vitað um þetta
mál í smáatriðum, en búist var
við, að Shipilov kæmi fram á
blaðamannafundi á vegum andófs-
mannsins Alexanders Ogorodn-
ikovs síðla dags í gær.
Fjölskylda Shipilovs var send í
útlegð til Síberíu á fjórða áratug
aldarinnar, og þar var hann í
fýrsta skipti handtekinn 17 ára
að aldri fyrir að stela mat. Hann
var öðru sinni handtekinn, er hann
bjó sig undir prestsstarf við hei-
mullegan prestaskóla, og var eftir
það óslitið í þrælkunarbúðum og
á geðveikrahælum.
Lausn Shipilovs ber upp á sama
tíma og opinber hátíðarhöld vegna
þúsund ára kristni í Sovétríkjun-
’ Mfgpfifjt - - -
Kvöldsólarglóð
Morgunblaðið / Ámi Sæberg
Sameinuðu þjóðirnar:
Alþjóðaátak í vændum til
enduireisnar í Afganistan
SÞ. Reuter.
SÞ, Reuter.
EMBÆTTISMENN Sameinuðu
þjóðanna kynntu í gær áætlun um
aðstoð til handa Afgönum sem
Lifrarbólga í Bandaríkjunum:
Einkenna leitað í
verðandi mæðrum
Atlanta, Bandaríkjunum, Reuter.
MIÐSTÖÐ sjúkdómsvarna i Bandaríkjunum, CDC, mælti með því
í gær að leitað yrði einkenna svonefndrar B-veiru lifrarbólgu í
öllum ófrískum konum í landinu. Veiran, sem berst með blóði
eða sæði, getur borist til fóstursins við fæðingu og Leitt til
lífshættulegs lifrarkrabba. Margar konur hafa veiruna í líkaman-
um án þess að einkenni komi í ljós og geta þvi smitað börnin
óafvitandi.
Dr. Mark Kane, farsóttasér-
fræðingur hjá CDC, sagði að eitt
af hverju þúsundi nýfæddra barna
í Bandaríkjunum hafi í sér veiruna
og mörg þeirra verði síðar lifrar-
krabba eða skorpulifur að bráð.
Hann sagði einnig að hægt væri
að hindra smit í 95 % tilvika með
því að beita bólusetningu og lyfja-
meðferð fyrstu 12 stundirnar eftir
fæðingu.
I skýrslu stofnunarinnar um
málið segir að 25 % barna, sem
verði fýrir smiti, deyi af völdum
veirunnar.
„Mikill munur er á áhrifum
veirunnar eftir kynjum. Um 40 %
smitaðra karlmanna missa lífið
af völdum veirunnar en aðeins 10
-13 % kvenna," segir í skýrslunni.
eiga um sárt að binda eftir átta
ára styijöld í landinu. Næstu átján
mánuði er ráðgert að veita meira
en milljarði bandaríkjadala til
uppbyggingar og verður fénu
veitt til svæða á valdi Kabúlstjórn-
arinnar jafnt sem landsvæða und-
ir stjórn frelsissveita múslima.
Nokkrar þjóðir hafa þegar ákveð-
ið að styðja átakið og viðbrögð
Sovétmanna hafa verið jákvæð.
Aðalritari SÞ, Javier Perez de
Cuellar, og framkvæmdastjóri að-
stoðar SÞ við Afgana, Sadruddin
Aga Khan, sögðu fréttamönnum í
gær að samkvæmt áætluninni yrði
uppbyggingunni fram haldið eftir
átján mánaða tímabilið með þriggja
ára endurreisnarstarfi sem kosta
myndi um 840 milljónir bandaríkjad-
ala. í næstu viku verður haldinn
fundur þeirra ríkja er hugsanlega
vilja fjármagna aðstoðina og munu
sum þeirra þegar hafa ákveðið fram-
lag sitt.
Sadruddin sagði að helmingur
fjárins í fýrri hluta áætlunarinnar
yrði notaður til að hjálpa flóttamönn-
um að snúa heim og einnig til matar-
gjafa en afgangurinn til að aðstoða
flóttamenn við að koma sér fýrir á
nýjan leik í landinu. Yfír þijár millj-
ónir afganskra flóttamanna dveljast
nú í nágrannalandinu Pakistan og
tvær milljónir í íran.
„Við erum að reyna að búa til
afmarkaða friðarskika í landinu.
Aðaláherslan verður lögð á sveita-
þorpin og við munum forðast óþarfa
miðstýringu sem fellur illa að rót-
grónum hefðum landsmanna," sagði
Sadruddin. Hann bætti því við að
komast yrði hjá því að hjálpin yrði
að pólitísku bitbeini stríðandi fylk-
inga í Afganistan. Varðandi afstöðu
Sovétmanna sagði Sadruddin að full-
trúar þeirra hefðu sýnt málinu áhuga
og myndu fýlgjast vandlega með
framvindu mála. Til greina kæmi að
þeir tækju þátt í aðstoðinni.
Mikil óvissa um úrslit
frönsku kosninganna
París. Reuter.
SNARPRI kosningabaráttu frönsku stjórnmálaflokkanna fyrir þing-
kosningarnar í dag lauk á miðnætti á föstudagskvöld. Alger óvissa
ríkir um kosningaúrslitin.
Þrátt fyrir að leiðtogar sósíalista
hafi fram á síðustu stundu eggjað
kjósendur lögeggjan, þykir þeim,
sem að skoðanakönnunum standa,
sýnt, að mjótt verði á mununum
og annað hvort fái sósíalistar mjög
nauman meirihluta eða þá vanti
herslumuninn. Sömu aðilar segja,
að lítil kosningaþátttaka í fyrri
umferðinni, þegar 34% kjósenda
sátu heima, hafi aukið óvissuna í
kosningaspám þeirra að miklum
mun. Þá fengu sósíalistar ekki
nærri eins mikið fylgi og búist hafði
verið við.
Aður en kosningabaráttan var
formlega á enda á föstudagskvöld,
var greinilegur óróleiki í liðsmönn-
um sósíalista og hétu þeir á stuðn-
ingsmenn flokksins að fara á kjör-
stað.
„í dag er hætta á því, að hægri-
menn komist aftur til valda," sagði
Michel Rocard forsætisráðherra. „Á
sunnudaginn var naut fólk þess að
vera í faðmi ijölskyldunnar. Á
sunnudaginn keinur verður fólk að
kjósa.“