Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988 Þorbjörg Daníelsdóttir „Hann varðveiti þig“ Fermingin gefur kirkjunni tækifæri til að hafa samband við safnaðar- fólkið ogf börnum og fjölskyldum tækifæri til að tengjast kirkjunni betur. Könnun á f er mingar störfunum og viðhorfum fermingarfræðara Yfirskriftin er heiti á bók eftir dr. Pétur Pétursson, sem gerð er á vegum fermingarstarfanefndar þjóðkirkjunnar og gefín út nú í apríl af Æskulýðsstarfí þjóðkirkj- unnar. Séra Guðmundur Guð- mundsson vann með dr. Pétri að eigin tilfínningar og öðlast trúar- lega reynslu eða hvort veita ætti bömunum svör við spumingum um lífíð og tilveruna og gera þau hæfari til að fást við vandamál lífsins. í svömnum kom fram að mark- úrvinnslu en nefndin samdi spum- ingamar, sem dr. Pétur vann úr. Bókin er nú til umræðu í öllum prófastsdæmum kirkjunnar til undirbúnings umíjöllunar Presta- stefnu. Dr. Pétur skiptir bókinni í 8 kafla: 1. Inngang. 2. Umgjörð og innihald. 3. Markmið. 4. Ferming- araldur. 5. Félagslegt hlutverk fermingarinnar og tengsl foreldra við fermingarstörfin. 6. Ferming- una og grunnskólann. 7. Áhrif og aðgerðir. 8. Hvað ber að gera? Markmið fræðslunnar og f ermingarinnar Spumingar könnunarinnar um markmið em meðal hinna þýðing- armestu þar sem það er einmitt það, sem kirkjan þarf sífellt að endurmeta og skýra fyrir sjálfri sér. Vitnað er til fyrri samþykkta svo að tengsl séu ekki rofín og spurt hvaða þætti brýnast væri að taka til meðferðar. Eftirfarandi atriði vom sett fram í þessari röð: 1. Aðferðir. 2. Markmið. 3. Innihald. Svörin vom þau að 45% töldu að endurmeta þyrfti aðferðir, 26% svömðu ekki, 17% vildu endur- skoða markmiðin og 12% vildu endurmeta innihald. Þegar rætt hefur verið um markmið fermingarfræðslunnar á undanfömum ámm hafa ýmis at- riði verið rædd, svo sem hvort leggja bæri höfuðáherzlu á fræðslu og þá hvort utanbókar- lærdómur væri enn ofarlega á baugi, hvort markmiðið væri helzt að kenna gmndvallaratriði kris- tinnar trúar og hjálpa til að taka sjálfstæða afstöðu til þeirra, eða hvort gefa ætti tækifæri til að tjá miðum var raðað þannig eftir mikilvægi þeirra. 1. að vekja trú 2. að kenna 3. að virkja 4. að veita svör 5. að börnin verði sjálfstæð 6. að tjá tilfinningar og öðlast trúarreynslu 7. að fást við vandamál Á þeim gmndvelli er sett fram hið þríeina markmið fermingar- starfanna: að vekja að virkja að kenna Fjöldi fræðslutíma og þátttaka í safnaðarmess- um í spumingalistanum er spurt hve marga fræðslutíma hvert bam fái fyrir ferminguna. Meðaltalið er 30 tímar. Rétt 60% gefa upp tímafjölda frá 23—34. Flest þau, sem svara, segja að börnin mæti yfírleitt mjög vel í fræðslutímana. Þá var spurt hvort kirkjusókn fermingarbarnanna á undirbún- ingstímanum væri skylda eða ekki og um þátttöku bamanna í mess- um. 70% sögðust hvetja bömin til að koma í messur, 28% sögðust gera það að skyldu, 2% svöruðu ekki. Svo virðist sem mæting sé yfír- leitt mjög góð ef um eitthvað sér- stakt er að ræða og bömin taka sjálf virkan þátt í messunni, t.d. með ritningarlestri. Prestur í Reykjavík segir að börnin mæti vel í tíma en illa í messur og for- eldrar þó enn sjaldnar. Þeir mæti þó vel á foreldrafundi með prestin- um. Fermingaraldurinn Þá var að sjálfsögðu spurt um fermingaraldurinn, hvort bömin séu of ung eða of gömul eða hvort aldurinn sé hæfílegur eins og hann er nú, þ.e. að þau verði 14 ára á fermingarárinu. Svörin vom þau að 52% töldu núverandi ferm- ingaraldur hæfílegan, 23% töldu hann of lágan, 12% vom óviss, 10% töldu hann of háan og 3% svömðu ekki. Félagslegt hlutverk, veizlur og gjafir Spurt var um þátttöku foreldra í guðsþjónustum með bömunum á fræðslutíma þeirra. Svarið var að mæður mæta oftar en feður og virðast mikilvægasti hlekkur- inn milli kirkjunnar og fjölskyld- unnar. „Sambandið milli kirkjunn- ar eða safnaðarstarfsins og fjöl- skyldunnar í fermingunni er mjög lítið og takmarkað við það að nánustu ættingjar koma til kirkju í fermingarguðsþjónustuna. Að henni lokinni tekur hin eiginlega fjölskylduhátíð við og þá er söfn- uðurinn eða kirkjan ekki til stað- ar, nema ef vera skyldi í persónu prestsins." í svömnum kemur fram að mikill meirihluti ferming- arfræðara styður þann félagslega þátt fermingarinnar, sem birtist í fermingarveizlunni og fæstir telja að hann skyggi á eða dragi úr hinum trúarlega og kirkjulega þætti hennar," segir dr. Pétur. Svörin við spumingunni um afstöðu til fermingarveizlunnar sýna að 50% þeirra, sem svara, em jákvæð, 40% mjög jákvæð, en aðeins 1% neikvæð. Fermingarfræðslan og grunnskólinn Spurt var um það hvernig prestar teldu að skólinn gegndi kristinfræðikennslunni. 34% töldu það misjafnt, 30% illa, 20% vel, 10% svömðu ekki, 3% vom óviss og 3% ræddu málið á víðara sviði. Þá var spurt um hugmyndir presta um samband fermingar- starfa og gmnnskóla út frá lögun- um um gmnnskóla. 29% vildu tengja frekar skóla og kirkju, 29% svömðu ekki, 16% töldu ástandið gott og ekki ástæðu til breytinga, 10% ræddu málið á víðari gmnni, 8% vildu aðgreina skóla og kirkju frekar og 7% sögðust ekki þekkja lögin. Framtíðarstefnan Fermingarstarfanefndin óskaði eftir mati presta á nauðsyn nefnd- arinnar og framtíðarhlutverki hennar, ef þau teldu yfirleitt að hún ætti að starfa. 10% töldu að nefndin væri óþörf, af hinum 90% töldu 61% að hún ætti að beita sér fyrir samningu lágmarks- námsskrár fyrir fermingarstörfín, 47% töldu að hún ætti að stuðla að því að sett yrði fram stefna og markmið fermingarstarfanna og 45% að hún skyldi beita sér fyrir því að samin verði drög að nýju kveri. Þá var spurt um þörf presta fyrir aðstoð við fermingarundir- búninginn. 33% óskuðu eftir henni, 29% töldu það einstaklings- bundið, 27% töldu það alveg nauð- synlegt og 11% vildu það ekkert frekar. Óskalisti fermingarfræðara samkvæmt könnuninni lítur svona út: 1. Vinnubækur, verkefni, hefti fyrir fermingarböm 54%. 2. Myndrænt efni: kvikmyndir, myndbönd og glæmr 36%. 3. Nýtt kver 31%. Af þessum tók þriðjungur fram að það eigi að vera fmmsamið íslenzkt kver. 4. Handbækur og kennsluleið- beiningar fyrir fermingarfræð- ara 19%. 5. Leiðbeiningar um helgihald unglinga 10%. 6. Leiðbeiningar og námskeið fyrir foreldra fermingarbama 7%. Þess vil ég svo geta í lokin að fermingarstarfanefnd hefur þegar skipulagt námskeið fyrir presta og þau önnur, sem starfa að ferm- ingamndirbúningi. Það verður haldið í Norræna húsinu 12.—14. september. Fermingin rædd á prestastefnu Fermingin verður viðfangsefni á næstu Prestastefnu, sem verður haldin í Reykjavík í júnílok. Um- ræða hennar hefur verið undirbú- in í kirkjunni jafnt og þétt með þeim störfum og umfjöllun, sem sífellt fer fram í söfnuðunum um allt landið. En hún hefur líka ver- ið undirbúin af þeim tveimur nefndum, sem kirkjustjómin hef- ur skipað til að fjalla um ferming- una, fermingarstarfanefnd og kirkjufræðslunefnd. Kirkju- fræðslunefnd, sem Kirkjuráð skip- aði árið 1978, gerði könnun á fermingarstörfunum og samdi afar góða greinargerð til Kirkju- þings árið 1980. Hún lagði svo til að sérstakri fermingamefnd yrði falin umfjöllun þessa máls. Fermingarstarfanefnd hefur starfað á grundvelli þess, sem þegar hafði verið gert, og varð- veitt nauðsynlegt framhald þess. Til að ná áfanga í þeim störfum efndi hún til könnunar meðal presta um núverandi stöðu og mótun framtíðarstefnu. Niður- staða könnunarinnar verður síðan rædd á Prestastefnu. í fermingar- starfanefnd em nú Stella Guð- mundsdóttir skólastjóri og séra Solveig Lára Guðmundsdóttir, séra Torfí Hjaltalín Stefánsson, sem tók við af séra Guðmundi Guðmundssyni, sem var formaður nefndarinnar er könnunin var gerð, séra Bjami Sigurðsson og séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sem bæði voru í fyrri fermingar- starfanefnd. í henni vom líka séra Ingólfur Guðmundsson, séra Ag- nes M. Sigurðardóttir, Helga Steinunn Hróbjartsdóttir og séra Tómas Sveinsson. Biblíulestur vikunnar Sunnudagur: Róm. 15.30 Þrenningin Mánudagur: Gal. 3.1—5 Guð veitir andann vegna Jesú Þriðjudagur: Gal. 4.6. Guð sendir anda sonar síns í hjörtun Miðvikudagur: Ef. 2.18 Fyrir Jesúm svarar Guð okkur í einum anda Fimmtudagur: Ef. 5.19—20: Þakkið Guði í nafni Jesú með ljóðum andans Föstudagur: 2. Þess. 2.13: Guð útvelur þau, sem Drottinn elskar í helgun andans Laugardagur: Títus 3.4—6: Guð úthellir anda sínum fyrir Jesúm Japan: Vidskiptahagnaður dróst saman um 20% í maí Tokyo. Reuter. VIÐSKIPTAHAGNAÐUR Jap- ans dróst saman um rúmlega 20% í maímánuði, þegar á heildina er litið, og enn meira gagnvart Bandaríkjunum. Efnahagssér- fræðingar eru nú vongóðir um, að áframhald geti orðið á þess- ari þróun. „Innflutningur Japana vex hrað- ar en áður og við getum átt von á, að hann vaxi jafnvel enn hraðar á næstunni," sagði Masam Takagi, hagfræðingur hjá Fuji-bankanum. Stjómvöld tilkynntu á fimmtudag, að viðskiptahagnaður hefði minnk- að um fimmtung í maímánuði og numið ríflega 5 milljörðum dollara. í fyrra nam hagnaðurinn 6,42 millj- örðum dollara í sama mánuði. Þetta er þrettándi mánuðurinn í röð, sem viðskiptahagnaður Japana dregst saman. „Við emm mjög ánægðir með þennan árangur," sagði Takagi, „og ég er bjartsýnn á, að sama þróun haldist á þessu og næsta ári.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.